Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Spyr Katrínu hvers vegna hún kallar eftir sameiningu vinstrisins erlendis en myndar hægristjórn hér

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gagn­rýndi Katrínu Jak­obs­dóttur í morgun fyrir að kalla eftir því „ fram­sæknar hreyf­ingar og vinstri flokkar sam­ein­ist um að hrinda af stað rót­tækum, fram­sæknum og lýð­ræð­is­legum breyt­ingum, póli­tískum og félags­legum“ í erlendu fræði­riti en hafa sjálf myndað stjórn til hægri.

Spyr Katrínu hvers vegna hún kallar eftir sameiningu vinstrisins erlendis en myndar hægristjórn hér

„Evr­ópskir vinstri­flokkar deila grund­vall­ar­gildum um mann­lega reisn, frið, algild mann­rétt­indi og mik­il­vægi félags­legrar verndar” sagði  Logi í ræðu sinni og vitn­aði í grein for­sæt­is­ráð­herra í rit­inu A Vision for Europe eða Sýn fyrir Evrópu. „Á tímum lofts­lags­breyt­inga og efna­hags­legs ójöfn­uðar þarf að marka djarfa, fram­sýna og sam­ein­andi stefnu með áherslu á félags­legt rétt­læti, kynja­jafn­rétti, grænt hag­kerfi og alþjóð­legar kerf­is­breyt­ingar,“ skrifar Katrín og kallar eftir því að vinstri­flokka sam­ein­ist um rót­tækar lausnir.

„Engu að síður valdi þessi sami ráð­herra sjálf að mynda rík­is­stjórn með íhalds­sömum hægri flokkum og rétt­lætir í sífelldu sam­starfið með því að tala um gildi mála­miðl­ana og mik­il­vægi þess að skapa traust,” sagði Logi á þingi í morgun.

Logi kall­aði eftir svörum frá for­sæt­is­ráð­herra um hvers vegna hún kaus að mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokk með aðstoð Fram­sókn­ar­flokks í stað stjórnar VG, Fram­sókn­ar­flokks, Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar. „Getur hæst­virtur ráð­herra á tveimur mín­útum útskýrt þann eðl­is­mun sem er á Íslandi og öðrum Evr­ópu­löndum og hvers vegna hún telji að það þurfi ann­ars konar flokka­sam­starf og þar með önnur stjórn­tæki og aðrar aðgerðir til að leysa vanda­mál íbú­anna hér á Íslandi en ann­ars staðar í Evrópu?”

For­sæt­is­ráð­herra tók næst til máls: „Ég þakka hátt­virtum þing­manni fyrir að ræða þessi grund­vall­ar­mál en ég er þó ekki sam­mála þeirri for­sendu sem hann gefur sér í lok spurn­ingar sinnar” sagði Katrín. „Finnst mér skipta máli að vinstri flokkar beiti sér fyrir þeim málum, hvernig sem þeir gera það, til að ná árangri fyrir almenn­ing í land­inu? Já, mér finnst það. Tala ég fyrir því erlendis? Já. Tala ég fyrir því hér heima? Já. Ég held að þetta svari spurn­ingum hátt­virtum þing­manns.”

Sakaði forsætisráðherra um útúrsnúning í svörum

Logi sneri aftur í pont­una og sak­aði Katrínu um að snúa út úr spurn­ing­unum. „Vænt­an­lega geta vinstri flokkar í Evrópu starfað að mála­miðl­unum með hægri flokkum þar líka, jafn­vel ógeð­felldum. Ég er ekki að gagn­rýna allt sem hér hefur verið gert. Ég tel að það hefði verið hægt að ganga lengra með hreinu vinstra sam­starfi.”

Þá spurði hann Katrínu hvort henni finn­ist lík­leg­ast að ná öllu fram í sam­starfi með Sjálf­stæð­is­flokknum. „Ég minni á að for­maður flokks­ins greiddi atkvæði gegn lögum um þung­un­ar­rof kvenna á dög­unum og þar að auki hefur flokk­ur­inn lagt fram mjög ómann­úð­legt frum­varp varð­andi útlend­inga­mál.” Logi bað fyrir frek­ari svörum frá for­sæt­is­ráð­herra: „Eru önnur lög­mál á Íslandi en ann­ars staðar í Evrópu? Hefði ekki verið hægt að hrinda þessum breyt­ingum öllum með skýr­ari hætti fram með hreinni vinstri stjórn?”

Ekki hægt að mynda vinstri stjórn

For­sæt­is­ráð­herra tók aftur til máls: „Ég er ekki sam­mála því að ég hafi snúið út úr spurn­ing­unni. Ég er ekki sam­mála því heldur, nema stærð­fræði­kunn­áttan bregð­ist, að hægt hefði verið að mynda hreina vinstri stjórn eftir síð­ustu kosn­ingar, a.m.k. lá fylgi þess­ara átta flokka ekki þannig. En hátt­virtur þing­maður veit ósköp vel að okkar flokkar hafa unnið vel saman á fyrri tíð” svar­aði Katrín.

„Það er eðli máls sam­kvæmt og auð­vitað er auð­veld­ast ef hægt er að mynda hreinar stjórnir en við verðum að horfa á árang­ur­inn af því sem kemur út úr rík­is­stjórn­ar­sam­starfi. Þar er ég full­kom­lega sam­kvæm sjálfri mér hvar sem ég tala” sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina