Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Öld öfganna er runnin upp á ný

Gamla þjóð­ern­is­hyggjan, sós­í­al­ism­inn og lofts­lagspóli­tík spretta úr spori

Öld öfganna er runnin upp á ný
Dr. Eiríkur Bergmann

Úrslit í nýaf­stöðnum kosn­ingum til Evr­ópu­þings­ins gefa enn eina vís­bend­ingu um að miðjan sé að hverfa úr stjórn­málum en fylgi hefur verið að flytj­ast út á jaðrana til vinstri og hægri. Sama þróun hefur átt sér stað í Banda­ríkj­unum, Brasilíu og í Ung­verja­landi. Skýr­ing­una er að finna í örum sam­fé­lags­breyt­ingum og breyttu dag­skrár­valdi fjöl­miðla.

„Það blasir við að það hefur átt sér stað pól­aris­er­ing í stjórn­mál­unum þar sem jaðr­arnir hafa verið að styrkj­ast. Fyrst með upp­gangi þjóð­ern­ispop­ul­ískra flokka víða í Evrópu og síðan Trump í Banda­ríkj­unum. Þessir flokkar hafa að mörgu leyti gjör­breytt stjórn­mál­unum, póli­tískri umræðu og flór­unni í póli­tík álf­unnar,“ segir dr. Eiríkur Bergmann, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskól­ann á Bifröst.

Eiríkur segir að síðan hafi þessir flokkar verið að koma upp vinstra megin þar sem ein­arðir sós­íal­ískir flokkar eru að koma fram á sjón­ar­sviðið. „Einnig frjáls­lyndir flokkar sem sumir hverjir eru kannski tengdir inn í hina gömlu hefð­bundnu miðju en hins vegar birt­ist pól­aris­er­ingin á þann hátt að þeir eru enn frjáls­lynd­ari en áður var,“ útskýrir hann og tekur Emmanuel Macron, for­seta Frakk­lands, sem dæmi en hann hefur í auknum mæli stillt sér upp sem and-popúl­ískum. „Hefð­bundnu flokk­arnir í Frakk­landi hrynja og við taka hægri þjóð­ern­is­sinnar undir for­ystu Marine Le Pen og mót­vægið við það er hinn frjáls­lyndi Macron.“

Þá segir Eiríkur að í ljósi lofts­lags­um­ræð­unnar séu Græn­ingj­arnir að styrkja sig víða. „Hefð­bundnu flokk­arnir, eins og hóf­samir hægri flokkar og sós­í­alde­mókratar, hafa verið að missa fylgi til þess­ara flokka. Mesta breyt­ingin hefur verið hjá sós­í­alde­mókrötum sem hafa verið að missa tölu­vert fylgi yfir til þjóð­ern­ispopúl­ískra hægri flokka. Þannig að það er mikið flot á þessu.“

Margleit­ari sam­fé­lög en áður er ein af skýr­ing­unum á þessum sveiflum, að mati Eiríks. „Á 20. öld­inni var stefna vest­rænna ríkja í sömu átt meira og minna. Enda tók stjórn­mála­lífið mið af því,“ segir hann og dregur fram að ákveðin sam­svörun hafi verið í stjórn­mál­unum og fjöl­miðlum.

„Það blasir við að það hefur átt sér stað pól­aris­er­ing í stjórn­mál­unum þar sem jaðr­arnir hafa verið að styrkj­ast.“

„Meg­in­straums­fjöl­miðl­arnir römm­uðu inn umræð­una, rit­stýrðu henni og héldu utan við hana alls konar röddum sem nú hafa komið fram en heyrð­ust ekki áður. Stjórn­málin á tutt­ug­ustu öld­inni gengu eftir mjög svip­uðum brautum. Síðan ger­ist það með þessum miklu sam­fé­lags­breyt­ingum sem hafa átt sér stað und­an­farin 20 ár, sér í lagi með tækni­fram­förum, að öll sam­fé­lags­myndin verður marg­slungn­ari. Fjöl­miðl­unin verður miklu upp­brotn­ari og það end­ur­spegl­ast síðan í stjórn­mál­unum. Þetta er sama þró­unin,“ segir Eiríkur.

Ástandið í Bret­landi er sér­stakt að mörgu leyti, að sögn Eiríks, þar sem fylk­ingar þjóð­hyggj­unnar og alþjóða­sam­starfs sæki báðar í sig veðrið. „Ef skoð­aður er upp­gangur þjóð­ern­is­hug­mynda í Bret­landi, þá er honum mætt með enn þá meiri alþjóða­hugsun hinum megin frá. Þannig að upp­gangur beggja afla er eig­in­lega álíka mik­ill. Eðli máls­ins sam­kvæmt höfum við horft miklu meira á ein­angr­unaröflin enda er þar að finna rót­tæk­ari breyt­ingu.“

Eiríkur dregur ekki dul á það að svipuð þróun eigi sér stað á vett­vangi stjórn­mál­anna hér á landi þó að birt­inga­mynd hennar sé ekki endi­lega sú sama. „Við sjáum þessa þróun í upp­broti fjór­flokks­ins sem hafði hér ægi­vald, naut um 90 pró­senta fylgis sem dreifð­ist á þessa fjóra flokka. Aðrir gátu ekki gert sér miklar vonir um langvar­andi stuðn­ing þó svo að fimmti flokk­ur­inn væri oft með inni á þingi. Þetta kerfi er að breyt­ast mjög mikið. Nýir flokkar hafa verið að ryðja sér til rúms, sem ekki eiga þessa rót í tutt­ug­ustu öld­inni og þessu hefð­bundna kerfi. Það er sam­svar­andi þróun uppi á ten­ingnum í stjórn­málum víð­ast hvar þó að birt­ing­ar­myndin geti verið ólík frá einu landi til ann­ars.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina