Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hatrið hefur oft reynt að sigra: Stríð, fordómar og pólitísk átök

Póli­tískar deilur, for­dómar og jafn­vel stríðs­á­tök hafa lengi sett svip á Eurovision. Þrátt fyrir að því sé ítrekað haldið fram að keppnin sé ópóli­tísk er raunin önnur. Menn­ing­ar­munur og sam­skipti þjóða hafa því alltaf haft áhrif á keppn­ina. Eurovision er stærsti tón­list­ar­við­burður í sjón­varpi. Um 300 milljón manns horfa á keppn­ina ár hvert.

Hatrið hefur oft reynt að sigra: Stríð, fordómar og pólitísk átök
|||Sunna Mím­is­dóttir bíður í ofvæni eftir úrslita­kvöld­inu. |Svan­hildur Hólm ætlar meðal ann­ars að borða tóma vit­leysu

Hin aust­ur­ríska Conchita Wurst sigr­aði keppn­ina árið 2014 með lagið Rise Like a Pheonix. Forseti Rúss­lands Vladimir Putin gagn­rýndi atriðið og var hneyksl­aður á fram­lagi Aust­ur­ríkis. „Fólk hefur rétt á að lifa sam­kvæmt eigin sann­fær­ingu. En það ætti ekki að vera svona ögrandi eða sýna sig svona“ var haft eftir Putin. Tolmachevy systur með lagið Shine voru fram­lag Rúss­lands sama ár. Áhorf­endur púuðu ítrekað á meðan atrið­inu stóð. Vladimir Putin hefur áður komið við sögu í Eurovision. Georgía sendi inn lagið sitt We Don´t Wanna Put In árið 2009 þegar Rússland hélt keppn­ina. Ágrein­ingur milli ríkj­anna stóð þá yfir og lagið talið vera pólítískur áróður. Georgía dró sig úr keppn­inni það árið.

Dana International sigr­aði keppn­ina árið 1998 fyrir hönd Ísraels með lag­inu Diva. Strang­trú­aðir gyð­ingar í Ísrael voru ekki sáttir með sig­ur­inn en Dana er trans­kona. Henni var hótað líf­láti og sögð við­bjóðs­leg.

Reglur keppn­innar eru skýrar. Nokkur dæmi eru þó um að hluti útsend­ingar á keppn­inni hafi verið rit­skoðuð í ein­staka löndum. Þeir sem hafa sýn­ing­ar­rétt eru skyldugir til að sýna keppn­ina í heild sinni. Nokkrar deilur hafa verið í kringum keppn­innar ár sökum þess að hún er haldin í Ísrael. Kallað hefur verið eftir snið­göngu á keppn­inni, þar á meðal Íslandi. Þá hafa um 27.000 manns skrifað undir áskorun til RÚV um að draga sig úr keppn­inni. Hatari, fram­lag Íslands, hafa gagn­rýnt Ísrael með ýmsum hætti.

Jórdanía í afneitun yfir sigri Ísraels

Rík­is­sjón­varp Jórdaníu klippti út fram­lag Ísraels, A-Ba-Ni-B, árið 1978. Stöðin sýndi myndir af blómum í stað­inn. Málin flækt­ust þegar að Ísrael end­aði á að vinna keppn­ina það árið. Jórdaníska sjón­varpið sleit útsend­ing­unni fyrir úrslitin. Þá til­kynntu þeir áhorf­endum að Belgía, sem end­aði í öðru sæti, hefði unnið. Ástæðan var langvar­andi stríðs­á­tök milli ríkj­anna. Ágrein­ing­ur­inn náði yfir tæp­lega fjóra ára­tugi milli 1948-1987.

Truflanir í útsendingu þegar framlag Armeníu var sýnt

Ictimai TV, rík­is­sjónarp Azerbaijan, var sektað fyrir brot árið 2009. Stöðin rugl­aði í útsend­ing­unni þegar fram­lag Armeníu var sýnt. Lagið Jan Jan var flutt af systr­unum Inga og Janus. Azerbaijan máðu einnig út nið­ur­stöður Armeníu í atkvæða­greiðsl­unni. Ágrein­ingur um yfir­ráða­svæði ríkj­anna hefur staðið yfir síðan 1988.

Líbanon reyndi að sneiða framhjá Ísrael

Líbanon dró sig úr keppn­inni árið 2005. Rík­is­sjón­varpið Tele-liban neit­aði að sýna fram­lag Ísraels, lagið Hasheket Shenish’ar með Shiri Maimon. Ágrein­ingur milli ríkj­anna hefur staðið yfir frá 1948. Átök við landa­mærin stóðu yfir milli 2000-2006.

Tyrkir ósáttir við framlag Finnlands

Tyrk­neska rík­is­sjón­varpið TRT neit­aði að sýna Eurovision árið 2013. Sam­kyn­hneigðir aðgerð­ar­sinnar sögðu ástæð­una vera fram­lag Finn­lands, lagið Marry Me með Krista Sieg­frids. Í atrið­inu kyssti hún einn kven­kyns dansar­ann. Með því var Sieg­fried að berj­ast fyrir nýrri lög­gjöf um hjóna­band sam­kyn­hneigðra. Á vef­síðu TRT vari ástæðan sögð vera tak­mark­aður áhugi lands­manna, áhorfs­tölur yrðu of lágar. Tyrkland dró sig úr keppni sama ár og hefur ekki snúið aftur.

Klipptu til og máðu út öll merki um samkynhneigð

Kín­verska streym­isveitan Mango TV fékk sýn­ing­ar­rétt á Eurovision árið 2014. Hún missti hins vegar rétt­inn 2018 eftir að hafa klippt út atriði Írlands, Together með Ryan O´Shaug­hnessy. Fram­lagið inni­hélt tvo karl­kyns dans­ara í hlut­verki sam­kyn­hneigðs pars. Mango TV máði líka út regn­boga­fána sem kom fram í öðru atriði. Dauða­refs­ing vegna sam­kyn­hneigðar var lögð niður í Kína 1997. Þá var kyn­hneigðin afskráð sem geð­sjúk­dómur árið 2001. Réttindi sam­kyn­hneigðra í Kína hefur farið hægt batn­andi. Pörum er þó ekki heim­ilt að gifta sig eða ætt­leiða börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina