Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ráðuneytið skoðar mál Erlu Bolladóttur: Gefnar sannleikssprautur og tilraunir gerðar til dáleiðslu

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur óskað eftir því að dóms­mála­ráðu­neytið skoði mál Erlu Bolla­dóttur. Eins og kunn­ugt er var Erla dæmd fyrir mein­særi í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu. Vísir greinir frá.

Ráðuneytið skoðar mál Erlu Bolladóttur: Gefnar sannleikssprautur og tilraunir gerðar til dáleiðslu
Erla Bolla­dóttir

Erla er sú eina af hinum dóm­felldu í mál­inu sem ekki fékk mál sitt end­ur­upp­tekið síð­ast­liðið haust. Hún var sak­felld fyrir rangar sak­ar­giftir ásamt Krist­jáni Viðari Júl­í­us­syni og Sævari Marínó Ciesielski. Dómurinn stendur enn þótt sýknað hafi verið af aðild að hvarfi Geir­finns. „óháð því hvernig orð mín voru fengin fram á sínum tíma. Að lifa með þessum dómi hefur reynst þung­bært og að sökin skuli standa enn í dag er áfall út af fyrir sig” sagði Erla í við­tali við Mannlíf.

Sjá einnig: Það er verið að hrúga salti í öll sár, dag eftir dag

Erla sat í gæslu­varð­haldi í 239 daga vegna máls­ins. Í yfir­heyrslum var henni gefið svo­kall­aðar sann­leiks­sprautur og gerðar til­raunir til að dáleiða hana. Það átti að hjálpa henni að rifja upp atburði í mál­inu. Hún ját­aði á sig ýmis afbrot meðan á gæslu­varð­hald­inu stóð. Meðal ann­ars að hafa skotið Geirfinn með riffli.

Gísli Guð­jóns­son rétt­arsál­fræð­ingur segir gæslu­varð­halds­vistin og langar yfir­heyrslur hafi farið illa með Erlu. Þá telur hann að ekki sé hægt að taka mark á fram­burði sem var feng­inn með þessum hætti. Fjallað er um matið í skýrslu starfs­hóps dóms­mála­ráð­herra.

„Forsenda fyrir meinsæri augjóslega brostin“

Erla var í ítar­legu við­tali við Mannlíf í byrjun maí­mán­aðar. Þá lýsti hún yfir ósætti í garð stjórn­valda og þeirra fram­komu. „Það sem mér finnst erfitt núna er að það er verið að hrúga salti í öll sár, dag eftir dag, á meðan eng­inn lætur í sér heyra. Að auki liggur þarna inni krafa frá mér um skaða­bætur vegna ein­angr­unar minnar 1976 því hún var klár­lega ólög­leg, hvað sem öllu öðru líður. En það hefur eng­inn talað við mig. Það er bara eins og ég sé ekki til en það erindi fór samt form­lega í jan­úar frá lög­manni mínum til „sátta­nefndar“. Ég hef ekki verið virt við­lits.“

Eftir dóms­úr­skurð­inn síð­ast­liðið haust ákvað Erla að biðja um við­tal við Katrínu Jak­obs­dóttur til þess að ræða sitt mál. „Erindi mitt við Katrínu var meðal ann­ars að reifa þann mögu­leika að ef ég kærði nið­ur­stöðu end­ur­upp­töku­nefndar sam­þykkti hún að rík­is­lög­maður semdi við mig utan dóms með því að sam­þykkja ógild­ing­una; ég er jú með mjög sterkt mál í hönd­unum. Þetta kæmi í veg fyrir heilt ár í dóms­sölum með öllu því álagi og öllum þeim kostn­aði sem því fylgir.

Ég hef fundið mig milli steins og sleggju í ákvarð­ana­töku um næsta skref en góðu heilli lærði ég síð­ast­lið­inn mánu­dag að mér er fært að krefj­ast aftur end­ur­upp­töku í ljósi nýrra gagna, þ.e. að dómur um mein­særi stand­ist ekki þar sem allir þeir sem dæmdir voru fyrir morð á Geir­finni eru sýkn­aðir. Um leið er for­senda fyrir mein­særi aug­ljós­lega brostin.“

Troðið í Erlu risavöxnum lyfjaskammti fjórum sinnum á dag

Erla lýsir ómann­úð­legri fram­komu yfir­valda í við­tali sínu við Mannlíf. „Þeir virð­ast hafa haft eitt­hvert annað mark­mið en það að upp­lýsa hvarf Geir­finns og svo virð­ist sem, leynt og ljóst frá árinu 1972, að það hafi verið að koma höggi á Sig­ur­björn Eiríks­son sem átti Klúbbinn í Reykja­vík en Hall­varður Ein­varðs­son hafði þá horn í síðu þeirra Klúbbs­manna” var haft eftir Erlu sem útskýrði að Hall­varður hafi verið vara­rík­is­sak­sókn­ari á þessum tíma ogg kom mikið að rann­sókn­inni sjálfri.

„Hann var við­staddur yfir­heyrslur en ég hitti hann í fyrsta sinn þegar ég var fengin til þess að játa að ég hefði myrt Geirfinn. Þeir vissu full­vel að ég gerði það ekki en þeir töldu sig þurfa játn­ing­una frá mér til að að geta sett mig í gæslu­varð­hald. Í kjöl­farið hófu þeir að troða í mig risa­vöxnum lyfja­skammti fjórum sinnum á dag og hnoða saman ein­hvers konar atburða­rás sem hent­aði þeirra mark­miði frá fyrsta degi.“

„Þessu máli er ekki lokið fyrr en ég, Sævar og Kristján höfum verið sýknuð af röngum sak­ar­giftum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Guðmundar- og Geirfinnsmál

FréttirGuðmundar- og Geirfinnsmál

Hefur unnið að sáttum fyrir hönd for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins en hafnar því að lög­regla hafi beitt harð­ræði

Guðjóni Skarp­héð­ins­syni, einum hinna sýkn­uðu í Guð­mundar- og Geir­finns­málum, er sjálfum kennt um rangan dóm Hæsta­réttar yfir sér í grein­ar­gerð setts rík­is­lög­manns, Andra Árna­sonar, sem hafnar því að rann­sak­endur hafi brotið með refsi­verðum hætti gegn Guðjóni. Andri hafði sam­band við aðstand­endur í vor „til að skoða til­tekna sátta­mögu­leika fyrir ráðu­neytið“.
InnlentGuðmundar- og Geirfinnsmál

„Ég er ekki til­bú­in að gef­ast upp.“

„Á meðan við erum enn dæmd sek fyr­ir mein­særi stend­ur málið þannig að ríkið ber ekki ábyrgð á því gagn­vart okk­ur hvernig þessi rann­sókn var fram­kvæmd,“ segir Erla Bolla­dóttir við Morg­un­blaðið. Hún hefur ákveðið að stefna íslenska rík­inu sökum höfn­unar end­ur­upp­töku­nefndar á beiðni um upp­töku á dóm hennar í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi