Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Erla slegin óhug: „Þetta er slóð óhugnaðar alla leið“

Erla Bolla­dóttir um nýj­ustu upp­ljóstr­anir í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu.

Erla slegin óhug: „Þetta er slóð óhugnaðar alla leið“
Erla Bolla­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson

„Þetta er ítrekun á öllum mínum von­brigðum með aðkomu stjórn­valda að þessu máli, sem er til mik­illar skammar á öllum stigum þess. Bara öllum. Þetta er slóð óhugn­aðar og von­brigða alla leið,“ segir Erla Bolla­dóttir, um þær fréttir að íslensk yfir­völd hafi aldrei með form­legum hætti óskað gagna eða aðstoðar þýskra yfir­valda við upp­gjör Guð­mundar- og Geir­finns­máls­ins þrátt fyrir aðkomu þýska rann­sókn­ar­ráð­gjafans Karl Schütz að rann­sókn máls­ins, eins og kom fram í Mannlífi í dag. Þar var jafn­framt greint frá að þessar upp­lýs­ingar hefðu komið fram í svari við fyr­ir­spurn Andrejs Hunko, þing­manns Die Linke í þýska þing­inu.

Erla seg­ist jafn­framt hafa verið slegin óhug við að sjá á prenti umfjöllun um athafnir Karls Schütz, manns­ins sem er sagður hafa kennt íslenskum lög­reglu­mönnum pynt­ingar sem voru nýttar við yfir­heyrslur yfir sak­born­ingum í mál­inu.
„Sam­skipti mín við þennan mann rifj­ast upp, meðal ann­ars hvað hann var þaul­skipu­lagður í að spila inn á til­finn­ingar mínar á óhugna­legan hátt, bæði í yfir­heyrsl­unum og utan þeirra. Nokkuð sem ég gleymi seint. Bara það eitt að sjá nafn hans í blað­inu ykkar rifjar upp óhugnað,“ segir hún, en í við­tal­inu við þing­mann­inn Hunko í Mannlífi í dag segir hann meðal ann­ars ótrú­legt til þess að hugsa að pynt­ingar skuli hafa verið not­aðar til að fá fram játn­ingar í mál­inu.

Eins og fram kemur í umræddu við­tali er talið að þýsk lög­reglu­yf­ir­völd gætu átt nokkuð af gögnum er varða rann­sókn máls­ins á átt­unda ára­tugnum. Erlu finnst grát­legt að heyra það og telur það vera lýsandi fyrir vinnu­brögð íslenskra stjórn­valda að þau skuli aldrei hafa séð ástæðu til að kalla eftir þeim.
„Einmitt þegar ég hélt að þau gætu ekki málað sig meira út í horn í þessu þá kemur þetta á dag­inn. Stjórn­völd hafa haft nægan tíma til að hugsa málið og ljúka því á þann hátt að allir geti verið sáttir. En svo virð­ist að frá upp­hafi snú­ist öll við­leytni íslenskra stjórn­valda um að loka augum og eyrum og vona að þetta mál hverfi. Það hefur vantað alla virð­ingu fyrir því fólki sem hefur mátt líða fyrir ófor­svar­an­lega með­ferð á öllu stigum í ára­tugi. Betra væri fyrir alla ef stjórn­völd átt­uðu sig á þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir og öxl­uðu hana.“

Þess má geta að Erla var í stóru við­tali í Mannlífi fyrr á árinu. Þar gagn­rýndi hún rann­sókn­ina harð­lega og benti á að nýjir þýskir þættir, Skandall, sem fjalla meðal ann­ars um rann­sókn­ina, sýni vel þá und­ar­legu afgreiðslu sem málið fékk á sínum tíma hjá lög­regl­unni, fyrst í Keflavík en síðan í Reykja­vík.

Lestu um nýj­ustu vend­ingar í mál­inu hér.
Ítar­legri umfjöllun verður svo um það um helg­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Guðmundar- og Geirfinnsmál

FréttirGuðmundar- og Geirfinnsmál

Hefur unnið að sáttum fyrir hönd for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins en hafnar því að lög­regla hafi beitt harð­ræði

Guðjóni Skarp­héð­ins­syni, einum hinna sýkn­uðu í Guð­mundar- og Geir­finns­málum, er sjálfum kennt um rangan dóm Hæsta­réttar yfir sér í grein­ar­gerð setts rík­is­lög­manns, Andra Árna­sonar, sem hafnar því að rann­sak­endur hafi brotið með refsi­verðum hætti gegn Guðjóni. Andri hafði sam­band við aðstand­endur í vor „til að skoða til­tekna sátta­mögu­leika fyrir ráðu­neytið“.
InnlentGuðmundar- og Geirfinnsmál

„Ég er ekki til­bú­in að gef­ast upp.“

„Á meðan við erum enn dæmd sek fyr­ir mein­særi stend­ur málið þannig að ríkið ber ekki ábyrgð á því gagn­vart okk­ur hvernig þessi rann­sókn var fram­kvæmd,“ segir Erla Bolla­dóttir við Morg­un­blaðið. Hún hefur ákveðið að stefna íslenska rík­inu sökum höfn­unar end­ur­upp­töku­nefndar á beiðni um upp­töku á dóm hennar í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti