Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Glæpur sem kemst næst manndrápi“

„Lausnin á ráð­gát­unni um afdrif Geir­finns Ein­ars­sonar fel­ast í hinum röngu sak­ar­giftum svo og fram­burði Guðjóns Skarp­héð­ins­sonar, slíkt hlýtur að vera öllum hugs­andi mönnum ljóst sem kynna sér dóm Hæsta­réttar Íslands frá 22. febr­úar 1980. Það svarar um leið spurn­ing­unni hvað eigi að verða um frum­varp það sem birt er á þing­skj. nr. 184.“

„Glæpur sem kemst næst manndrápi“

Þannig lýkur umsögn Magnúsar Leo­polds­sonar, Einars Gunnars Bolla­sonar og Valdi­mars Olsen um til­lögu um heim­ild stjórn­valda til að greiða bætur til þeirra sem hlutu dóm í Guð­mundar- og Geir­finns­málum. Í umsögn­inni fara und­ir­rit­aðir hörðum orðum um þátt Erlu Bolla­dóttur, en fram­burður hennar varð til þess að þeir voru hnepptir í gæslu­varð­hald í 105 daga vegna meints morðs á Geir­finni Ein­ars­syni 19. nóv­em­ber 1974.

Í umsögn­inni er rakið hvernig Magnús, Einar og Valdimar voru hand­teknir 26. jan­úar 1976, á grund­velli fram­burðar Erlu, Sævars Marínó Ciesielski og Krist­jáns Viðars Við­ars­sonar.

„Lög­reglan tjáði okkur að best væri að með­ganga strax þar sem fram­burðir þeirra Erlu, Sævars og Krist­jáns um þátt okkar þriggja væru afdrátt­ar­lausir. Þær yfir­heyrslur tóku mjög á okkur og fjöl­skyldur okkar og þarf engan að undra þar sem sann­leik­ur­inn var sá að eng­inn okkar hafði farið til Kefla­víkur á þessum tíma, eng­inn okkar hafði hitt eða þekkt Geirfinn Ein­ars­son og inn­byrðis tengsl á milli okkar voru engin.“

Magnús, Einar og Valdimar segja hinar röngu sak­ar­giftir ekki hafa verið bornar fram í eitt skipti heldur ítrekað. „Erla bar und­ir­rit­aðan Magnús sökum í sjö skipti, und­ir­rit­aðan Einar, bróður sinn, bar hún röngum sökum í sjö skipti, Sig­ur­björn [Eiríks­son] bar hún röngum sökum í þrjú skipti og und­ir­rit­aðan Valdimar bar hún sökum í tvö skipti. Svipað var með þá Sævar og Kristján sem báru okkur röngum sökum ítrekað,“ segir í umsögn­inni.

„Eftir að við vorum látnir lausir hinn 9. maí 1976 vorum við allir í far­banni mán­uðum saman og máttum sæta mik­illi félags­legri útskúfun og alvar­legum for­dómum um allt íslenskt þjóð­fé­lag. Það var fyrst við upp­kvaðn­ingu dóms saka­dóms Reykja­víkur 19. des­em­ber 1977 að það varð loks opin­ber­lega stað­fest að við fjór­menn­ing­arnir höfðum allir verið hnepptir sak­lausir í gæslu­varð­hald á grund­velli rangra sak­ar­gifta dóm­felldu í mál­inu,“ segir enn fremur.

Segja Erlu hafa „blygðunarlaust“ blekkt dómara, lögmenn og lögreglumenn

Í umsögn­inni kemur fram að vistin í Síðu­múlafang­elsi hafi verið Magnúsi, Einari, Valdi­mari og Sig­ur­birni ákaf­lega erfið. Að sitja sak­laus inni, svo og að koma aftur út í þjóð­fé­lagið hafi reynst þrautin þyngri.

„Að vera bor­inn þeim sökum að hafa ráðið manni bana – án nokk­urs til­efnis – er glæpur sem kemst næst mann­drápi.“

Þre­menn­ing­arnir segj­ast allir hafa mátt þolað miklar hörm­ungar sem Erla var upp­hafs­mað­ur­inn að. „Líf okkar snérist árum saman um að minna á að við stóðum ekki að vígi Geir­finns Ein­ars­sonar, þótt í áranna rás hafi margir sam­borg­arar okkar ekki gert mik­inn mun á þeim sem voru dæmd fyrir þau mann­dráp ásamt öðrum afbrotum og okkur sem sak­lausir voru færðir inn í atburða­rás­ina af dóm­felldu í mál­inu.“

Erla Bolla­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson

Í umsögn­inni er því lýst hvernig Erla hafi „blygð­un­ar­laust“ blekkt dóm­ara, lög­menn og lög­reglu­menn marg­sinnis. Því hafi þeir sjálfir orðið vitni að þegar þeir voru sam­próf­aðir með Erlu. „Í sam­próf­unum var hún stað­föst án þess að nokkur lög­reglu­mann­anna hefði afskipti af.“

Það mik­il­væg­asta hafi þó verið þegar Guðjón Skarp­héð­ins­son var hand­tek­inn og gaf skýrslu þar sem hann upp­lýsti að eng­inn fjór­menn­ing­anna hefði átt þátt í hvarfi Geir­finns. Guðjón hefði lýst því að hann hefði tekið nærri sér að vita af hinum röngu sak­ar­giftum en ekki haft kjart til að stíga fram og segja frá því fyrr.

„Augljóst er af fram­burði Guðjóns við þessar aðstæður að hann var við málið rið­inn úr því að hann vissi um sak­leysi okkar.“

Magnús, Einar og Valdimar segja „mann­orðs­morðið“ hafa verið þeim dýr­keypt; heilsu­fars­lega, fjár­hags­lega, sam­fé­lags­lega og sál­ar­lega. „Sig­ur­björn Eiríks­son lagð­ist fljót­lega í rúmið vegna afleið­inga af inni­lok­un­inni, hann náði aldrei að jafna sig. Hver okkar hinna hafa átt í mis­miklum erf­ið­leikum sem allt má rekja til fram­burðar Erlu, Sævars og Krist­jáns Viðars. Margra ára for­dómar kyn­slóða í garð okkar og enda­laus grunur um að við höfum átt þátt í að bana manni hefur skaðað okkur og fjöl­skyldur okkar meira en nokkur orð fá lýst,“ segir í umsögn­inni.

Fara þre­menn­ing­arnir hörðum orðum um þátt Erlu og segja fjar­stæðu­kennt að ætla að greiða henni bætur. Þá fái þeir ekki séð að unnt sé að fall­ast á bætur til handa öðrum dæmdum þar sem þeir hafi verið fundnir sekir um fjölda ann­arra brota.

„Sá sem ber ein­hvern röngum sökum gerir það vegna þess að hann hefur eitt­hvað að fela,“ segja þeir undir lok umsagn­ar­innar.

Umsögn Magnúsar, Einars og Valdi­mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Guðmundar- og Geirfinnsmál

FréttirGuðmundar- og Geirfinnsmál

Hefur unnið að sáttum fyrir hönd for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins en hafnar því að lög­regla hafi beitt harð­ræði

Guðjóni Skarp­héð­ins­syni, einum hinna sýkn­uðu í Guð­mundar- og Geir­finns­málum, er sjálfum kennt um rangan dóm Hæsta­réttar yfir sér í grein­ar­gerð setts rík­is­lög­manns, Andra Árna­sonar, sem hafnar því að rann­sak­endur hafi brotið með refsi­verðum hætti gegn Guðjóni. Andri hafði sam­band við aðstand­endur í vor „til að skoða til­tekna sátta­mögu­leika fyrir ráðu­neytið“.
InnlentGuðmundar- og Geirfinnsmál

„Ég er ekki til­bú­in að gef­ast upp.“

„Á meðan við erum enn dæmd sek fyr­ir mein­særi stend­ur málið þannig að ríkið ber ekki ábyrgð á því gagn­vart okk­ur hvernig þessi rann­sókn var fram­kvæmd,“ segir Erla Bolla­dóttir við Morg­un­blaðið. Hún hefur ákveðið að stefna íslenska rík­inu sökum höfn­unar end­ur­upp­töku­nefndar á beiðni um upp­töku á dóm hennar í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ