Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Frumvarp um þungunarrof samþykkt á Alþingi með yfirgnæfandi meirihluta

Frumvarp um þung­un­ar­rof var sam­þykkt í atkvæða­greiðslu á Alþingi rétt í þessu. Frum­varpið var sam­þykkt með yfir­gnæf­andi meiri­hluta.

40 þing­menn greiddu atkvæði með frum­varp­inu en 18 gegn. Þrír þing­menn greiddu ekki atkvæði. Klappað var á áhorf­endapöllum þingsals­ins eftir að ljóst var að frum­varpið hefði verið sam­þykkt.

Frum­varpið hefur mætt mik­illar and­stöðu í þing­inu og verið nokkuð umdeilt. And­stæð­ingar frum­varps­ins lögðu fram dag­skrár­breyt­ingu í þing­inu fyrr í dag. Markmið þeirrar breyt­ingar var að fresta atkvæða­greiðslu um frum­varpið en hún var felld.

Með sam­þykkt frum­varps­ins er ákvörðun um eyð­ingu fóst­urs alfarið á for­sendum kvenna sem óska eftir að enda þungun fyrstu 22. vikur með­göngu. Í gild­andi lögum er þung­un­ar­rof heimil fram að 22. viku með sam­þykki nefndar hjá land­lækni.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefði viljað ganga lengra en gert er í frum­varp­inu og heim­ila þung­un­ar­rof án tíma­marka. Þetta kom fram í ræðu Katrínar fyrir atkvæða­greiðsl­una. For­sæt­is­ráð­herra sagði að með frum­varp­inu sé far­inn milli­vegur ólíkra sjón­ar­miða.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði málið mik­il­vægt en við­kvæmt. Hann greiddi atkvæði gegn frum­varp­inu. Í þing­inu sagð­ist hann hafa vonað að þingið tæki sér betri tíma til að fara yfir málið. Bjarni sagði svarið við gagn­rýni og álita­málum alltaf hafa verið kven­frelsi. Hann teldi kven­frelsi mik­il­vægt en það trompi ekki öll álita­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Þungunarrof

InnlentÞungunarrof

Þrauta­ganga kvenna sem vilja enda þungun „Útlimir barns­ins þíns verða rifnir af, höfuð þess verður kramið“

And­stæð­ingar þung­un­ar­rofs í Banda­rík­unum beita harka­legum aðferðum til að þrýsta á konur að leita ekki réttar síns og rjúfa þungun. „Ekki drepa barnið þitt,“ og „Við getum hjálpað þér“ er meðal þess sem mót­mæl­endur gegn þung­un­ar­rofi kalla á konur sem leita sér aðstoðar. Konur sem vilja fóst­ur­eyð­ingu njóta fylgdar sjálf­boða­liða í gegnum hóp mót­mæl­enda.
Innlent

„Að blanda ein­hverfu í þetta er út í hött“

María Rut Krist­indóttir er ein margra sem gagn­rýnir Við­skipta­blaðið fyrir nafn­lausan pistil þar sem Greta Thunberg, sænska stúlkan sem hefur barist í lofts­lags­málum, er gagn­rýnd og vakin athygli á því að hún er ein­hverf. Mannlíf tók saman nokkrar sleggjur lið­innar viku. „Ósmekk­legt. Og að blanda ein­hverfu í þetta er út í hött … Og já umhverf­is­mál snú­ast ekki um vinstri-hægri...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina