Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Þungunarrof verður refsiverður glæpur í Alabama

Öld­ung­ar­deild­ar­þing­menn í Alabama í Banda­ríkj­unum hafa sam­þykkt frum­varp sem gerir þung­un­ar­rofs­að­gerðir að refsi­verðum glæp. Verði lögin sam­þykkt gætu læknar sem fram­kvæma þung­un­ar­rof átt mögu­leika á lífs­tíð­ar­dóm. CNN greinir frá.

Þingmenn Repúblik­ana í Alabama standa á bak við frum­varpið og hafa þrýst á laga­setn­ing­una í von um að koll­varpa Roe v. Wade dómnum. Roe v. Wade var tíma­móta­mál í banda­rískri rétt­ar­sögu en dóm­ur­inn heim­il­aði þung­un­ar­rof árið 1973. Atkvæða­greiðsla fór fram í gær­kvöldi og kusu 25 af 31 frum­varp­inu í vil. Lögunum fylgir ein und­an­tekn­ing en konum yrði heim­ilt að enda þungun ef áfram­hald­andi með­ganga myndi stefna heilsu þeirra í hættu. Eins og áður segir gæti læknum verið refsað með 99 ára fang­els­is­vist. Konunum yrði ekki refsað.

Demókratar börð­ust fyrir breyt­ing­ar­til­lögu þar sem fórn­ar­lömbum nauðg­unar og sifja­spells yrðu veitt und­an­tekn­ing á lög­gjöf­inni. Þeirri til­lögu var hafnað í atkvæða­greiðslu 11-21. Kay Ivey, rík­is­stjóri Alabama, fær sex daga frest til að sam­þykkja laga­setn­ing­una. Hún tekur gildi sex mán­uðum eftir sam­þykki. Ivey hefur ekki tjáð sig opin­ber­lega um frum­varpið en hefur áður sett sig á móti þung­un­ar­rofum.

Brian Kemp, Rík­is­stjóri Georgíu, sam­þykkti nýverið lög­gjöf um þung­un­ar­rof í fylk­inu. Þá er konum ekki heim­ilt að enda með­göngu eftir að hjart­sláttur grein­ist í fóstri. Hjart­sláttur er grein­an­legur á sjöttu viku með­göngu.

Frumvarp um þung­un­ar­rof á 22 viku var sam­þykkt síð­ast lið­inn mánu­dag hjá íslenska þing­inu. Hér heima var frum­varpi um þung­un­ar­rof gert konum kleift að enda með­göngu til og með 22. viku. Sé frum­varpið í Alabama sett í sam­hengi við íslenska frum­varpið felst grund­vall­ar­munur á milli þeirra. Á Íslandi var áhersla lögð á rétt kvenna til sjálfs­á­kvörð­unar um eigin lík­ama. í Alabama er mark­miðið þver­öf­ugt.

Eins og á Íslandi er málið afar umdeilt. Vivian Figures, öld­ung­ar­deild­ar­þing­maður Demókrata, hefur harð­lega gagn­rýnt frum­varpið. „Þú þarft ekki að ala upp barnið, þú þarft ekki að ganga með barnið, þú þarft ekki að gera neitt fyrir barnið.“ sagði Figures sem beindi athuga­semdum sínum að Clyde Chambliss, öld­un­ar­deild­ar­þing­manni Repúblik­ana, sem styður frum­varpið. „En samt viltu taka þessa ákvörðun fyrir þessa konu, að þetta þurfi hún bara að gera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas