Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Lætur allt flakka

Jonathan Duffy frum­sýnir nýja uppi­stands­sýn­ingu, It‘s been a while eða Það er svo­lítið síðan, í Tjarn­ar­bíói í kvöld. Í sam­tali við Mannlíf seg­ist ástr­alski grínist­inn sem er nýkom­inn úr uppi­stands­reisu um heim­inn með Hugleiki Dagssyni, ætla að vera samur við sig og láta allt flakka. En þó með nýju sniði.

Lætur allt flakka
|Jonathan Duffy mætir ferskur til leiks í Tjarn­ar­bíói í kvöld

„Þetta verður svo­lítið ólíkt öðru sem ég gert að því leyt­inu til að sýn­ing­arnar mínar hafa yfir­leitt byggst á ein­hverju til­teknu þema,“ útskýrir Jonathan þegar hann spurður að því hvernig sýn­ingin komi til með skera sig frá fyrri sýn­ingum hans. „Sú síð­asta, I wouldn‘t date me either eða Ég myndi ekki deita mig heldur, fjall­aði til dæmis öll um stefnu­mót. Þessi sýn­ing aftur á móti snýst meira um það sem ég hef verið að gera und­an­farið og ýmis áhuga­verð atriði sem ég hef veitt athygli. En gagn­stætt því sem sumir virð­ast telja hef ég alls ekki setið auðum höndum frá sein­ustu sýn­ingu heldur verið alveg á fullu að gera alls konar áhuga­verða og spenn­andi hluti, eins og að heim­sækja fjöl­skyld­una mína í Ástralíu, setja saman minn eigin spjall­þátt og að þjálfa fyrir hálf­mara­þon – eða alla vega verið að reyna það. Þannig að þótt ég komi bara til með standa einn á sviði, með ekk­ert nema geislandi per­sónu­leik­ann, verður af nógu að taka.“

Heilt ár er liðið síðan Jonathan tróð upp einn og segir hann að það sé í raun helsta ástæðan fyrir því að hann ákvað að semja nýja sýn­ingu. „Eftir að áhorf­andi kom upp að mér eftir uppi­stand á Kex og sagð­ist hafa haldið að ég væri fluttur aftur til Ástralíu þá fannst mér tíma­bært að henda í sól­ó­sýn­ingu,“ segir hann léttur í bragði. „Þú veist, svona til að láta fólk almennt vita að ég er enn á Íslandi og að ég er ekki dauður.“

Jonathan Duffy mætir ferskur til leiks í Tjarn­ar­bíói í kvöld, eftir að hafa túrað um heim­inn með Hugleiki Dagssyni.

Hann segir að það sem geri sýn­ing­una líka spenn­andi sé að efnið sé splunku­nýtt. „Já, ég hef verið að skrifa það á síð­ustu vikum svo þetta verður ferskt og spenn­andi en skelfi­lega taugatrekkj­andi líka.“

Óttaðist móttökurnar í Austur-Evrópu

Eins og áður sagði er Jonathan nýkom­inn til lands­ins eftir að túrað um heim­inn ásamt Hugleiki Dagssyni. Spurður hvernig ferða­lagið hafi gengið segir hann að í hrein­skilni hafi þetta verið kreisí keyrsla. „Við nátt­úr­lega tróðum upp í nýju landi nán­ast dag­lega og það kom nokkrum sinnum alveg fyrir að ég vissi ekki hvar við vorum að koma fram, ég var orð­inn svo ringlaður,“ játar hann og hlær. „En þarna gafst gott tæki­færi til að sjá hvort brand­ar­arnir mínir féllu í kramið hjá öðrum menn­ing­ar­sam­fé­lögum, sem þeir gerðu nú, sem betur fer. Svo var líka spenn­andi og áhuga­vert fyrir mig per­sónu­lega sem sam­kyn­hneigðan karl að skemmta í löndum eins og Serbíu, Króatíu og Tékk­landi þar sem sam­kyn­hneigð er ekk­ert sér­stak­lega sam­þykkt.“

„Við nátt­úr­lega tróðum upp í nýju landi nán­ast dag­lega og það kom nokkrum sinnum alveg fyrir að ég vissi ekki hvar við vorum að koma fram, ég var orð­inn svo ringlaður.“

Hann seg­ist til dæmis alls ekki hafa búist við að grín­inu hans yrði vel tekið í Serbíu. Sem varð þó raunin. Áhorf­endur þar hafi satt best að segja elskað brand­ar­ana hans. „Annað sem kom á óvart var að ég bjóst allt eins við því að það yrði ein­hver tími aflögu til að gera ekki neitt. En það gerð­ist aldrei. Maður bara vakn­aði, fór á flug­völl­inn, ferð­að­ist eitt­hvert, kom fram, fór að sofa og svo bara byrj­aði ballið upp á nýtt. Þetta var alveg galið en nokkuð sem flesta grínista dreymir um að gera, svo í raun og veru getur maður ekki leyft sér að kvarta.“

Við nán­ari umhugsun segir hann að áhorf­end­urnir í Austur-Evrópu hafi reyndar um margt minnt hann á Íslend­inga. Þeir séu með sama svarta húmor­inn og finn­ist virki­lega gaman þegar grínistar ganga eins langt og þeir geta. „Ég tók líka eftir því að þeir njóta þess að vera skot­spónn gríns­ins, alveg eins og þið.“

Gisti á hryllingshóteli

Jonathan segir að ann­ars hafi margt stórfurðu­legt komið upp í ferða­lag­inu. „Eins og til dæmis þegar við tékk­uðum inn á hótel í Serbíu sem hefði getað verið úr Shining eða þegar rann upp fyrir mér að í raun og veru er ég ekki með neitt brjál­æð­is­legt blæti fyrir Íslandi,“ segir hann og kímir. „Hins vegar ætla ég mér ekk­ert að fara nánar út í þá sálma að sinni, fólk verður bara að mæta á sýn­ing­una mína ef það vill vita meira.“

Nánari upp­lýs­ingar um hana megi finna á vef Tjarn­ar­bíós, www.tjarnarbio.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina