Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Vigdís um Hildi Lilliendahl: „Karlmenn hafa verið reknir frá hinu opinbera af miklu minna tilefni“

„Karlmenn hafa verið reknir frá hinu opin­bera af miklu minna til­efni/ummælum – ekki furða að Heimi og Kolbrúnu sé mis­boðið,“ segir Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, á Facebook, vegna „ríða, drepa, gift­ast“ brand­ara Hildar Lilli­endahl á T witter .

Vigdís um Hildi Lilliendahl: „Karlmenn hafa verið reknir frá hinu opinbera af miklu minna tilefni“
Vigdís Hauks­dóttir

Hildur deildi myndum af fyrr­ver­andi ráð­herrum sem lýst hafa sig and­snúna sam­þykkt þriðja orku­pakk­ans undir fyr­ir­sögn­unum „ríða, drepa gift­ast?“. Grínið hefur vakið nokkur við­brögð enda látið falla skömmu eftir að Hildur var sjálf afar gagn­rýnin á ummæli skrif­stofu­stjóra Alþingis, Helga Bern­ód­us­sonar, í við­tali vegna starfs­loka hans.

Ummælin sem fóru fyrir brjóstið á Hildi og fleirum eru: „Málþóf á ekk­ert skylt við mál­frelsi, ekki frekar en nauðgun við kyn­frelsi“. Hildur gagn­rýndi Helga fyrir ummælin á Facebook. „Mig langar ekki að sam­fé­lag­inu mínu sé stýrt af körlum sem hafa nægi­lega tak­mark­aðan skiln­ing á reynslu­heimi kvenna til þess að þeir finni sig í því að líkja nauðg­unum við mál­þóf. Þetta er nið­ur­lægj­andi og ógeðs­legt.“

Kolbrún ósátt við Hildi

Kolbrún Berg­þórs­dóttir, blaða­kona á Frétta­blað­inu, til­eink­aði Hildi leið­ara í blað­inu sem ber heitið „Dólga­femín­ismi“.

Þar skrifar hún um þá femínista sem hún telur skaða femíniskan mál­stað­inn í staðin fyrir að vinna honum gagn með því að setja sig strax í „árás­ar­stell­ingar“. Hún kallar þessa femínista „dólga­femínistar“ og tekur Hildi Lilli­endahl sem dæmi um einn slíkan. „Hildur Lilli­endahl er ein af þeim dólga­femínistum sem stendur vakt­ina af mik­illi sam­visku­semi. Orði ein­hver hlut­ina ekki nákvæm­lega eins og henni líkar fær sá hinn sami yfir­haln­ingu sem síðan er yfir­færð á hóp karl­manna sem eru afgreiddir eins og þeir séu fremur við­bjóðs­leg fyr­ir­bæri, sannir skað­valdar í þessum heimi,“ skrifar Kolbrún meðal ann­ars.

Kolbrún gerir athuga­semd við við­brögð Hildar vegna ummæla skrif­stofu­stjóra Alþingis. „Hildur stóð vakt­ina af stakri sam­visku­semi og greip feg­ins­hendi orð sem Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, lét falla í ræða á sum­ar­há­tíð­inni. Hann sagði að mál­þóf ætti ekk­ert skylt við mál­frelsi. Það er nokkuð til í því hjá honum. Hann bætti svo við að nauðgun ætti ekk­ert skylt við kyn­frelsi. Nokkuð sem erfitt er að vera ósam­mála. Ekkert í þessum orðum hans var þess eðlis að ástæða væri til að ærast yfir þeim. Hildi tókst það samt, enda þaul­vön að æsa sig af litlu til­efni og líður yfir­leitt einkar vel í því hlut­verki. Hún sagði Helga hafa líkt nauðgun við mál­þóf. Ein­hverjir urðu svo vit­an­lega til að taka undir með henni og hella sér yfir Helga. Helgi var þó alls ekki að líkja nauðgun við mál­þóf. Hann var að bera saman tvo hluti, mál­þóf og mál­frelsi ann­ars vegar og nauðgun og kyn­frelsi hins vegar. “

Um „ríða, drepa, gift­ast?“ skrifar Kolbrún. „Konum er þarna gefið val um hvað þær vilja gera við þá. Enginn þarf að efast um að ef karl­maður hefði birt myndir af þekktum konum með þess­ari sömu yfir­skrift hefði hann kallað yfir sig almenna for­dæm­ingu og verið stimpl­aður sem kven­hat­ari af verstu sort.“

Dagur spurður út í ummæli Hildar

Hildur var enn fremur til umræðu í þætt­inum Í Bítið á Bylgj­unni. Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar, var til við­tals. Hann var spurður hvaða skoðun hann hefði á ummælum Hildar sem starfar sem verk­efn­is­stjóri hjá Reykja­vík­ur­borg. „Ég ætla ekki að fara tjá mig um ein­stakar Facebook-færslur starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar. Ég hef ekki lesið þær,“ svar­aði borg­ar­stjóri.

„Ef þetta hefði verið karl­maður sem hefði sett svona fram um kven­ráð­herra. Heldur þú að hann væri í starfi sínu í dag?“ spurði Heimir Karlsson, annar þátta­stjórn­andi þátt­ar­ins. Dagur vildi ekki svara efn­is­lega. Aðspurður hvort honum þætti í lagi að setja fram ummæli sem þessi svar­aði Dagur: „Þetta er vænt­an­lega ein­hver mis­heppn­aður brand­ari,“.

Ríða, drepa gift­ast vitnar til hug­ar­leiks sem árum saman hefur notið vin­sælda meðal ungra sem aldr­aðra. Þátt­tak­endur geta verið frá tveimur og upp. Alla jafna skipt­ist fólk á að nefna þrjú nöfn og aðrir þátt­tak­endur svara til um hverjum þau myndu ríða, hverjum gift­ast og hvern drepa.

Sjá einnig: Kolbrún lætur Hildi Lilli­endahl heyra það

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina