Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fékk ekki krónu borgaða fyrstu árin

Tómas Þór Þórð­ar­son, sem nýverið var ráð­inn til að lýsa enska bolt­anum í Sjón­varpi Símans næsta hausti, hefur verið lengi í íþrótta­f­rétta­mennsk­unni og byrj­aði strax á ung­lings­aldri að skrifa um leiki á heima­síðu síns félags, Víkings. En hvað kom til að hann tók þá ákvörðun að gera þetta að ævi­starfi?

„Ég hef alltaf haft brjál­aðan áhuga á íþróttum og ég held ég hafi alltaf vitað innst inni að þetta yrði fram­tíð­ar­starf mitt. Á þeim tíma var ekk­ert auð­velt að kom­ast í starfið, held það sé auð­veld­ara í dag, en þetta var árið 2007 og ég byrj­aði með því að skrifa á fot­bolti.net og hef haldið tryggð við þá síðan, meira að segja verið með útvarps­þátt í þeirra nafni í tíu ár. Ég fékk ekki krónu borg­aða fyrstu árin en var mjög metn­að­ar­fullur, mætti á alla lands­leiki og fullt af öðrum leikjum og skrif­aði um þá og þá fóru ein­hverjir að taka eftir mér. Ég átti ágætis félaga sem heitir Benedikt Bóas og þegar það losn­aði staða hjá honum á DV 2008 fór ég þangað. Settist við skrif­borð þar 2. jan­úar 2008 í mínu fyrsta starfi sem blaða­maður á launum og hef síðan verið í þessu starfi í rúm ell­efu ár,“

segir Tómas í ítar­legu for­síðu­við­tali í Mannlífi. Frá DV fór Tómas yfir á Morg­un­blaðið, þar sem hann var í rúm tvö ár en þá fékk hann til­boð um starf hjá Frétta­blað­inu og þrátt fyrir að líka vel á Mogganum end­aði með því að hann tók því. „Ég kunni vel við mig á Mogganum og ætl­aði ekk­ert að fara þaðan en 365 miðlar sóttu hart að fá mig yfir til sín og buðu mér hærri laun, þannig að ég bað um mjög litla kaup­hækkun hjá Mogganum til að vera þar áfram en yfir­menn þar höfðu ekki þá fram­tíð­ar­sýn að halda mér. Það var í raun­inni allt gott á Mogganum nema æðstu yfir­menn á þeim tíma. Þannig að ég gekk þaðan út, svo­lítið von­svik­inn yfir því að þeir vildu ekki halda í mig, og fór yfir á Frétta­blaðið og Vísi í byrjun febr­úar 2014 og hef verið þar síðan. Fylgdi svo Vísis- og Stöðvar 2 Sport-pakk­anum yfir til Sýnar.“

Hvernig leggst í þig að skipta um vinnu­stað eftir svona langan tíma á sama stað? „Ég er nátt­úr­lega að fara inn í nýtt fyr­ir­tæki, í nýjar höf­uð­stöðvar með nýju fólki, þannig að maður þarf að fara í nafna­leik­inn aftur,“ segir Tómas og glottir. „Það leggst bara vel í mig þótt ég sé í grunn­inn eng­inn maður breyt­inga og finn­ist mjög þægi­legt að vera í því sem ég þekki. Ef ég fengi alltaf að velja í líf­inu vildi ég helst bara borða það sama, vinna við það sama og gera það sama. Þetta eru reyndar kannski smá­ýkjur en mér líður mjög vel þar sem ég er en svona ger­ast bara kaupin á eyr­inni í þessum bransa og ég er mjög sáttur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina