Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ekki lengur bara tískubylgja

Samfelld aukn­ing á notkun munn­tó­baks er veru­legt áhyggju­efni og er aukn­ingin slík að ekki er hægt að tala um tísku­bylgju lengur. Notkun eykst þrátt fyrir að verð á tóbaki hafi hækkað um mörg hund­ruð pró­sent.

Ekki lengur bara tískubylgja

Í nýút­kominni árs­skýrslu ÁTVR kom fram að sala á íslensku nef­tó­baki hafi aldrei veri ðmeiri en í fyrra. Selt magn nam tæp­lega 45 tonnum. Þó að um nef­tó­bak sé að ræða er áætlað að á milli 70 til 80 pró­sent tóbaks­ins sé notað í munn sam­kvæmt rann­sókn Embættis land­læknis. Notkunin er mest á meðal karl­manna á aldrin – um 18 til 34 ára. Í þessum ald­urs – hópi nota 14 pró­sent karla tóbak í vör dag­lega og rúm­lega 6 pró­sent sjaldnar en dag­lega. Heild­ar­hlut­fall ungra karl­manna sem notar tóbak er því tæp­lega 22 pró­sent.

Þetta er svipað og verið hefur und­an­farin ár en það sem er nýtt er að ungar konur eru farnar að nota tóbak í vör í auknum mæli. „Það hefur orðið aukn­ing á tóbaks­notkun ungra kvenna í Noregi en þetta er alveg ný mynd fyrir okkur. Þetta vekur upp áhyggjur þótt þessi við­bót skýri alls ekki alla aukn­ing­una,“ segir Viðar Jensson, verk­efn­is­stjóri tóbaks­varna hjá Embætti land­læknis.

„Það hefur orðið aukn­ing á tóbaks­notkun ungra kvenna í Noregi en þetta er alveg ný mynd fyri rokkur. Þetta vekur upp áhyggjur …“

Um tvö pró­sent kvenna á aldr­inum 18 til 34 ára nota munn­tó­bak dag­lega og 5 öðru hvoru. Árið 2002 nam selt magn nef­tó­baks 10,9 tonnum og hefur neyslan því fjór­fald­ast síðan þá þrátt fyrir að smá­sölu­verð hafi auk­ist um mörg hund­ruð pró­sent. „Það er ekki hægt að kalla þetta tísku­bylgju lengur þegar við höfum verið að horfa upp á sam­fellda aukn­ingu í 15 ár. Við sjáum í gögnum frá Svíþjóð að þegar ungir karl­menn eru orðnir háðir munn­tó­baki þá er með­al­neysla 13 til 14 tímar á dag. Menn þurfa stöðugt að vera að nota tóbak og þar af leið­andi er erfitt að hætta,“ segir Viðar sem telur þrátt fyrir allt að verð­stýr­ing hafi haft áhrif.

„Ráð­legg­ingar Alþjóða heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar þegar kemur að for­vörnum eru númer eitt að hækka verð, sér­stak­lega þegar kemur að ungu fólki. Það voru miklar hækk­anir 2013 og um þar­síð­ustu ára­mót og þá sló á aukn­ing­una en áhrifin dvína eftir því sem lengra líður frá. Þannig að þessar hækk­anir virka en þær þurfa að vera meira við­var­andi.“

Töldu að neyslan myndi deyja út
Upp­haf­legt mark­mið með banni á inn­flutn­ingi munn­tó­baks að sporna við neyslu meðal ung­menna. Það kom því flatt upp á marga þegar fólk fór að taka upp á því að nota íslenska munn­tó­bakið í vör­ina.

„Ég byrj­aði að vinna í tóbaks­vörnum árið 1998 og þá sáu menn þetta alls ekki fyrir. Ástæðan fyrir því að íslenskt nef­tó­bak var selt áfram á Íslandi og ekki bannað sam­hliða hinu tóbak­inu var ákvæði í EES-samn­ingnum sem segir að ef það er vara fyrir á mark­aði sem hefur ákveðna hefð, þá mátti leyfa hana. Það var notað fyrir nef­tó­bakið á sínum tíma og svo sáu menn fyrir sér að það myndi bara deyja út.“ Ekki hefur komið til tals innan emb­ætt­is­ins að mæla með að banna íslenskt nef­tó­bak með öllu líkt og gert var með það inn­flutta.

„Fyrir mörgum árum gerði ÍBR áhuga­verða könnun sem leiddi í ljós að drengir sem stunda íþróttir nota tóbak í vör til jafns á við aðra sem eru ekki í íþróttum. Það er þess vegna ekki þannig að það sé algeng­ara að íþrótta­fólk taki í vör­ina.“

Viðar segir að reglu­lega upp­götvi menn eitt­hvað nýtt þegar kemur að tóbaks­notkun. Þannig gáfu menn sér að þeir sem not­uðu nef­tó­bak í nefið væru einkum eldri karl­menn. „Svo þegar við gerðum stóra könnun árið 2012 sáum við að stærsti hóp­ur­inn var karl­menn á miðjum aldri. Notkunin minnkar stöðugt eftir því sem ald­ur­inn
fær­ist ofar eða neðar. Þetta breytti al gjör­lega heims­mynd­inni.“

Íþrótta­menn hafðir fyrir rangri sök
Munn­tó­baksneysla hefur gjarnan verið tengd við íþrótta­iðkun, það er að ungir menn komi saman í bún­ings­klef­anum fyrir og eftir æfingar og fái sér í vör­ina. Kannanir sýna hins vegar að þetta er byggt á falskri ímynd. „Fyrir mörgum árum gerði ÍBR áhuga­verða könnun sem leiddi í ljós að drengir sem stunda íþróttir nota tóbak í vör til jafns á við aðra sem eru ekki í íþróttum. Það er þess vegna ekki þannig að það sé algeng­ara að íþrótta­fólk taki í vör­ina. Þetta verður hins vegar sýni­legra meðal íþrótta­fólks og þess vegna er stutt í full­yrð­ingar að það sé fyrst og fremst íþrótta­fólk sem notar þetta, þótt það sé ekki endi­lega satt,“ segir Viðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina