Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Orðin eru okkar kastalar

Orðin eru okkar kastalar

Skoðun
Eftir / Jóhönnu Vigdísi Guð­munds­dóttur

Sam­skipti við og í gegnum tölvur og snjall­tæki eru orðin stór hluti okkar dag­lega lífs. Hingað til hefur megnið af þessum sam­skiptum þurft að fara fram á öðrum tungu­málum en íslensku. Mál­tækni­á­ætlun fyrir íslensku er ætlað að sjá til þess að íslenska verði not­hæf og notuð í staf­rænni tækni, það er í sam­skiptum manns við tölvur og snjall­tæki en ekki síður í sam­skiptum manns í gegnum tölvur og snjall­tæki. Þetta þurfum við að gera ein­fald­lega vegna þess að það sem er ekki notað, gleym­ist og týn­ist. Ef ekki er hægt að nota íslensku á svona fyr­ir­ferð­ar­miklu sviði dag­legs lífs er hætta á því að við töpum tungu­mál­inu okkar.

Til þess að þetta verði að veru­leika skiptir miklu máli að byggja upp nýsköp­un­ar­sam­fé­lag í mál­tækni á Íslandi. Ef við berum þetta ferli saman við það að byggja hús, þá má segja að grunn­ur­inn að allri nýsköpun í mál­tækni á íslensku séu mál­föng; gögn fyrir íslensku á borð við risa­mál­heild og ákveðin grunn­tól sem gera rann­sak­endum kleift að vinna með tungu­málið. Ofan á þennan grunn má síðan steypa sjálft húsið, hinar svoköll­uðu kjarna­lausnir; tal­greini, tal­gervil, vél­þýð­ingar og mál­rýni. Þegar húsið hefur verið steypt taka nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki og fleiri rann­sak­endur síðan við og nýta þessar kjarna­lausnir, gögn – tól – hug­búnað, og smíða ofan á þær mál­tækni­lausnir fyrir neyt­enda­markað, sem við síðan notum til dæmis til að geta átt sam­skipti við heima­bank­ann okkar með tali í stað þess að skrifa á lykla­borð.

Vigdís Finn­boga­dóttir, fyrr­ver­andi for­seti Íslands og vel­gjörð­ar­sendi­herra tungu­mála hjá UNESCO, sagði í inn­setn­ing­ar­ræðu sinni árið 1980 að orðin væru kast­alar okkar Íslend­inga, að við hefðum aldrei gleymt að setja í orð allan hag okkar og alla hugsun, og að orðin væru hinn eini var­an­legi efni­viður sem við ættum. Þarna tókst Vigdísi, eins og svo oft fyrr og síðar, að kjarna mik­il­vægi tungu­máls­ins fyrir okkur Íslend­inga. Hún lagði áherslu á að það væri íslensk tunga, öðru fremur, sem gerði okkur að Íslend­ingum, væri okkar raun­veru­lega sam­ein­ing­ar­tákn og sam­ein­ing­ar­afl.

Það er því sam­eig­in­legt verk­efni okkar allra að sjá til þess að við getum áfram tjáð hug­myndir okkar og hugs­anir á móð­ur­mál­inu, um leið og við opnum dyrnar og sýnum þeim sem vilja til­einka sér tungu­málið umburð­ar­lyndi og veitum þeim þá hjálp sem þeir þurfa til að læra það. Það er stundum auð­veld­ara að varð­veita það sem hægt er að snerta, það sem er hlut­bundið, heldur en það sem er óhlut­bundið. Með því að byggja upp sam­fé­lag nýsköp­unar í mál­tækni á Íslandi mun okkur von­andi takast að vernda orðin, kast­al­ana okkar, um leið og við byggjum íslensk­unni nýtt hús.

Höfundur er fram­kvæmda­stjóri Almannaróms – Mið­stöðvar um mál­tækni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina