Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Skoða hvort Skúli hafi blekkt kröfuhafa

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs eru kröfu­hafar WOW nú að skoða laga­lega stöðu sína vegna útgáfu skulda­bréfa fyr­ir­tæk­is­ins í sept­em­ber 2018. WOW skil­aði 22 millj­arða króna tapi á síð­asta ári og telja aðilar innan kröfu­hafa­hóps fyr­ir­tæk­is­ins ekki hafa fengið rétta mynd af fjár­hags­lega stöðu fyr­ir­tæk­is­ins þegar þeir tóku þátt í skulda­bréfa­út­gáfu WOW og lögðu um sjö millj­arða króna til rekst­urs­ins (50 millj­ónir evra).

Skoða hvort Skúli hafi blekkt kröfuhafa

Umsjón­ar­að­ili útboðs­ins ásamt for­stjóra WOW, Skúla Mogensen, kynntu fram­tíð­ar­sýn WOW og fjár­hags­á­ætl­anir fyrir fjár­festum á þessum tíma. Mannlíf fjall­aði fyrst um málið á þriðju­dag að kröfu­hafar myndu skoða laga­lega stöðu sína.

Í hádeg­is­fréttum RÚV var haft eftir Guðmundi Ingva Sig­urðs­syni lög­manni kröfu­hafa WOW að of snemmt væri að segja til um hvort kröfu­hafar skoði laga­lega stöðu sína. Hann árett­aði að umbreyt­ing krafna í hlutafé gengi nú til baka, þannig að skulda­bréfa­eig­endur geri nú kröfur í þrota­búið ásamt öðrum. Talið er að mun meira fé hafi þurft inn í rekstur WOW en gefið var til kynna við skulda­bréfa­út­gáfu flug­fé­lags­ins.

Í sept­em­ber 2018 til­kynnti WOW um útgáfu skulda­bréfa­flokks, þar sem 50 millj­ónir evra voru seldar fjár­festum og til­kynnt var að 10 millj­ónir evra til við­bótar yrðu seldar. Skulda­bréfa­flokk­ur­inn var til þriggja ára og vextir níu pró­sent ofan á þriggja mán­aða Euribor vexti.

Í til­kynn­ingu WOW á þessum tíma sagði: „Par­eto Securities hefur fyrir hönd WOW air umsjón með skulda­bréfa­út­boð­inu ásamt Arct­ica Fin­ance. Bréfin verða gefin út með raf­rænum hætti í Vær­dipap­ir­sentra­len ASA í Nor­egi og verða í kjöl­farið skráð til við­skipta í Nas­daq kaup­höll­inni í Stokk­hólmi. Þátt­tak­endur voru bæði inn­lendir og erlendir fjár­fest­ar.“

Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air sagði við sama til­efni að nið­ur­staðan hafi verið mikil  hvatn­ing og þakkar fyrir þann góða stuðn­ing sem félagið hafi fengið í „gegnum þetta ferli sem og öllum þeim sem tóku þátt í útboð­in­u.“

22 milljarða taprekstur kom markaðsaðilum á óvart

Í kjöl­far útboðs­ins var fljót­lega ljóst fyrir mark­aðs­að­ilum að fjár­hags­leg staða fyr­ir­tæk­is­ins væri mun veik­ari en gefið hafði verið til kynna af stjórn­endum WOW, bæði í fjöl­miðlum sem og í kynn­ingu til fjár­festa. Þá kom það mörgum mark­aðs­að­ilum á óvart þegar til­kynnt var um 22 millj­arða króna tap WOW á síð­asta ári sem gaf skýrt til kynna að mun meira fé hefði þurft inn í rekst­ur­inn en áður var gefið til kynna.

Stjórn­endur Icelandair hafa komið í tvígang að samn­inga­borð­inu við WOW á síð­ustu vikum og mán­uðum og ef marka má yfir­lýs­ingar for­stjóra og stjórn­ar­for­manns Icelandair þá virð­ist rekstr­ar­staða WOW hafa komið mönnum á óvart og mun meiri áhætta væri fólgin í aðkomu Icelandair að félag­inu en talið var. Ef kröfu­hafar telja sig hafa verið blekkta við útgáfu skulda­bréfa með rangri upp­lýs­inga­gjöf þá myndi sú mál­sókn vænt­an­lega bein­ast að Skúla Mogensen for­stjóra og stjórn­ar­mönnum WOW.

Í við­tali við Frétta­blaðið sagði Úlfar Stein­dórs­son þann 30.nóv­em­ber 2018: „Annars vegar var ljóst að skil­yrðin yrðu ekki upp­fyllt og hins vegar teikn­að­ist upp sú staða að það var tölu­vert meiri áhætta en menn töldu þegar þeir lögðu af stað. Þegar þetta tvennt lagð­ist saman þá var nið­ur­staðan aug­ljós.“

Við nið­ur­stöðu skulda­bréfa­út­boðs WOW í sept­em­ber fékkst ekki upp­gefið hvaða fjár­festar tóku þátt í útboð­inu en þó hefur Mannlíf áður fjallað að Skúli Mogensen hafi lagt nýja fjár­muni inn á þeim tíma í formi per­sónu­legs láns. Því til trygg­ingar hafi hann lagt heim­ili sitt og jörð í Hval­firði að veði. Í við­tali við RÚV í gær­dag sagði Skúli að hann hefði sett allt sitt í WOW: „Í setti aleig­una í þennan rekstur.“

790 milljónir króna í ný veð á fasteignir Skúla

Í umfjöllun Stund­ar­innar í des­em­ber var greint frá skulda­stöðu Skúla Mogensen. Þar var sagt frá því að 5,7 millj­ónum evra (um 790 millj­ónum króna) hafi verið þing­lýst á fast­eignir í eigu Skúla og tengdum félögum í sept­em­ber 2018, á sama tíma og skulda­bréfa­út­gáfa WOW fór fram. Arion banki á veð í helstu eignum Skúla sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs.

Helstu kröfuhafar WOW air

Samkvæmt heim­ildum Við­skipta­blaðs­ins er eft­ir­far­andi sund­ur­liðin á stærstu kröfu­höfum WOW um síð­ustu mán­að­ar­mót:

Skráð skulda­bréf: 6,9 millj­arðar króna

Lán frá Arion banka (þrjú aðskilin lán): 1,6 millj­arðar króna

IBM Financing: 14,5 millj­ónir króna

Dell Financing: 4,6 millj­ónir króna

Isavia: 1,8 millj­arðar króna

Avalon: 1,9 millj­arðar

ALC: 1,7 millj­arðar króna

ICBC: 400 millj­ónir króna

Goshawk: 250 millj­ónir króna

Rolls Royce: 446 millj­ónir króna

Títan Fjár­fest­inga­fé­lag: 769 millj­ónir króna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina