Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Breiða út samsæriskenningar öfgaaflanna

Vefur Útvarps Sögu hefur margoft end­ur­birt efni af síðum sem birta falskar og skrum­skældar fréttir sem ætlað er að kasta rýrð á inn­flytj­endur. Sænskur sér­fræð­ingur segir umræddar síður grafa undan stofn­unum lýð­ræð­is­ins og kynda undir for­dómum.

Breiða út samsæriskenningar öfgaaflanna

Upp­gangur öfga­sinn­aðra afla í Evrópu, Banda­ríkj­unum og víðar hefur hald­ist í hendur við útbreiðslu fjöl­miðla á Netinu sem dreifa hat­urs­fullum boð­skap, setja á flot sam­sær­is­kenn­ingar og falsa eða skrum­skæla fréttir í þeim til­gangi að kynda undir hatri gagn­vart minni­hluta­hópum.

Í sumum Evr­ópu­löndum hafa þessi fyr­ir­bæri, sem oft eru tengd nánum böndum, náð fót­festu og þó nokk­urri útbreiðslu, ekki síst með stór­auk­inni notkun sam­fé­lags­miðla og á síð­ustu árum hefur hug­takið „fals­fréttir“ bæði orðið að raun­veru­legu vanda­máli og er ofnot­aður frasi stjórn­mála­manna og fylgitungla þeirra.

Ísland hefur fram til þessa verið að mestu laust við þessi fyr­ir­bæri. Þeim flokkum sem hafa boðið sig fram undir merkjum útlend­inga­hat­urs hefur verið fálega tekið og íslenskir fjöl­miðlar hafa snið­gengið frétta­miðla sem þessa. Und­an­tekn­ingin er þó vefur Útvarps Sögu þar sem ítrekað eru birtar fréttir sem vísa í umfjöllun öfga­sinn­aðra miðla sem breiða út kyn­þátta­hyggju og sam­sær­is­kenn­ingar.

Þetta eru miðlar eins og Fri­atider, Sam­hällsnytt, Nya Tider og Nyheter Idag í Svíþjóð. Þannig hefur á vef útvarps­stöðv­arnnar birst fjöldi greina þar sem ýjað er að því að Svíþjóð sé í helj­ar­g­reipum inn­flytj­enda og að þar ríki við­var­andi neyð­ar­á­stand. Annars staðar er sótt í smiðju öfga­hægr­is­ins í Evrópu með hefð­bundnum sam­sær­is­kenn­ingum um George Soros, Evr­ópu­sam­bandið og afneitun vís­inda­legra nið­ur­staðna, einkum er varðar lofts­lags­mál. Vefurinn fer heldur ekki leynt með aðdáun sína á stjórn­mála­mönnum á borð við Donald Trump og Viktor Orban.

Leiðandi í framleiðslu „ruslfrétta“

Rannsókn sem gerð var fyrir þing­kosn­ing­arnar í Svíþjóð í fyrra sýndi að ein af hverjum þremur fréttum sem dreift var á sam­fé­lags­miðlum í aðdrag­anda kosn­ing­anna hafi verið svo­kall­aðar „rusl­fréttir“ (e. junk news). 86 pró­sent þess­ara frétta komu frá Sam­hällsnytt, Fria Tider og Nyheter Idag.

Til að bregð­ast við frétta­flutn­ingi af þessu tagi hafa fjöl­miðlar og önnur sam­tök tekið að sér það verk­efni að stað­reyna sann­leiks­gildi frétta. Þar eru umræddir jað­ar­miðlar fyr­ir­ferð­ar­miklir. Åsa Larsson, blaða­maður Metro sem stað­reynir fréttir undir merkjum Viralgranskaren, kann­ast vel við mál­efni Fri­atider.

„Þetta er hægri síða sem skrifar mikið um inn­flytj­endur. Þeir eru hluti af rót­tæku hægri hreyf­ing­unni og hafa tengsl við jað­ar­hóp sem kallar sig Granskning Sverige og hefur ráðið fólk til að áreita blaða­menn, stjórn­mála­menn og fleiri. Þeir eru óná­kvæmir, við höfum margoft farið yfir fréttir þeirra og sýnt fram á að þeir snúa út úr frá­sögnum hefð­bund­inna miðla. Það er hins vegar ekki hægt að afskrifa allt sem þau skrifa byggt á því hver þau eru, það þarf að sann­reyna allar full­yrð­ingar.“

Aðgerðasinnar með tilgang

Jonathan Leman, sér­fræð­ingur hjá Expo sem eru sam­tök sem berj­ast gegn kyn­þátta­hatri, segir umrædda miðla þjóna tvennum til­gangi. „Annars vegar að sýna inn­flytj­endur í nei­kvæðu ljósi og kenna þeim um allt sem aflaga fer í sam­fé­lag­inu. Hins vegar að útmála póli­tíska and­stæð­inga sem svik­ara og hluta af spilltri elítu. Þetta eru aðgerða­sinnar með til­gang.“

Jonathan Leman, sér­fræð­ingur hjá Expo.

Leman segir að þótt til­gangur þess­ara miðla sé iðu­lega sá sami, þá sé ekki hægt að setja þá alla undir sama hatt. Sumir miðl­anna séu dyggir stuðn­ings­menn Sví­þjóð­ar­demókrata, sem er sá flokkur sem rekur hvað harð­asta inn­flytj­enda­stefnu, á meðan aðrir miðlar séu jafn­vel enn lengra til hægri og tengdir Norrænu and­spyrnu­hreyf­ing­unni sem eru hrein­ræktuð nýnas­ista­sam­tök. Þá séu efn­is­tök miðl­anna ólík.

Sam­hällsnytt keyri til að mynda meira á eigin fréttum sem settar séu fram undir orð­ræðu hægri popúl­isma á meðan NyaTider sé mjög langt til hægri og geri til að mynda mikið úr ætl­uðu gyð­inga­sam­særi. „Það sem er kannski sér­stakt í þessu öllu saman að flestir þessir miðlar gefa sig út fyrir að vera að segja fréttir sem hinir hefð­bundnu miðlar þagga niður, samt gera þeir lítið annað en að end­ur­segja fréttir hefð­bundnu miðl­anna en skrum­skæla þær þannig að þær láta inn­flytj­endur líta illa út.“

Þessir miðlar hafa áhrif. Þeir grafa undan trausti á póli­tískum stofn­unum og hafa kynt undir rót­tækni og útlend­inga­hatri í sam­fé­lag­inu.

Auk þess að hafa tengsl við stjórn­mála- og öfga­hreyf­ingar í heima­land­inu þá hafa þessir frétta­miðlar sam­bönd við sams konar hópa í Evrópu og víðar. Til að mynda eru margir þess­ara miðla hallir undir stjórn­völd í Rúss­landi og bendir Leman á að útgef­andi Nya Tider hafi náin tengsl við Alexandr Dugin, þekktan rúss­neskan fas­ista. „Þessir miðlar hafa áhrif. Þeir grafa undan trausti á póli­tískum stofn­unum og hafa kynt undir rót­tækni og útlend­inga­hatri í sam­fé­lag­inu,“ segir Leman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina