Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Sjúkdómurinn hefur tekið ákvörðun fyrir mig“

„Stærsti þátt­ur­inn hjá mér er ófrjó­semin,“ segir Guðný Maja Riba um áhrif endó­metríósu á líf hennar. Hún greind­ist með sjúk­dóm­inn árið 2007, þá 23 ára gömul.

„Sjúkdómurinn hefur tekið ákvörðun fyrir mig“
12. tbl. 2019

Þessa stund­ina stendur yfir vika endó­metríósu og á morgun, fimmtu­dag­inn 21.mars, verður mál­þing undir yfir­skrift­inni „Endó og (ó)frjó­semi“ haldið í Hringsal Land­spít­al­ans, klukkan 17:00-18:30.

Guðný Maja Riba er ein þeirra sem við­fangs­efni mál­þings­ins snertir við en hún greind­ist með endó­metríósu, oft­ast kallað endó í dag­legu tali, árið 2007, þá 23 ára gömul.

„Árið 2007 fékk ég grein­ingu eftir að hafa farið í lækn­is­skoðun vegna þess að ég hafði ekki verið á neinni getn­að­ar­vörn í eitt og hálft ár en varð ekki ólétt. Ég gerði mér ekki grein fyrir því að ég gæti verið með þennan sjúk­dóm,“ segir Guðný.

Það hlaut að vera eitt­hvað að en ég vissi ekki hvað.

Hún segir að grein­ingin hafi komið sér á óvart þrátt fyrir að hafa fundið fyrir nokkrum ein­kennum endó­metríósu áður en hún fékk grein­ingu. Sem dæmi hafði hún mikla verki á blæð­ingum, útþan­inn kvið og miklar og langar blæð­ingar. „Það hlaut að vera eitt­hvað að en ég vissi ekki hvað,“ útskýrir Guðný.

„Ég var ekki nema 23 ára þegar ég fékk grein­ingu og skila­boðin frá lækn­inum þá voru þau að ég ætti að fara að huga að barn­eignum ef ég vildi eign­ast börn,“ útskýrir Guðný. Hún kveðst hafa verið til­búin til að eign­ast barn á þessum tíma en að grein­ingin hafi orðið til þess að hún ein­beitti sér lík­lega mun meira að barn­eignum en ella, ef ekki hefði verið fyrir sjúk­dóm­inn. „Þarna fór auð­vitað allt að snú­ast um það að eign­ast barn.“

Ófrjósemin stærsti þátturinn

Þegar Guðný er beðin um að lýsa því hvaða áhrif sjúk­dóm­ur­inn hefur haft á líf hennar segir hún: „Verkja­lega séð hafa áhrifin verið til­tölu­lega lítil. Ég hef getað stundað skóla, vinnu og íþróttir. En á síð­ustu árum hafa blæð­ingar verið mjög miklar sem getur verið pínu­lítið snúið þegar maður þarf að nota almenn­ings­sal­erni.“

Guðný segir mikla verki ein­kenna sjúk­dóm­inn en í hennar til­felli eru þeir ekki það slæmir að hún hafi þurft að vera á sér­stökum verkja­lyfjum, þurft að leggj­ast inn á spít­ala eða misst úr vinnu eða skóla.

„Þetta hefur sem sagt ekki beint háð mér vinnu- eða náms­lega séð. Stærsti þátt­ur­inn hjá mér er ófrjó­semin. Í dag þakka ég fyrir það að eiga barn og vera það lánsöm að hafa náð að verða ólétt einu sinni,“ segir Guðný sem gekkst undir fimm tækni­frjóvg­anir áður en hún varð ófrísk að syni sínum, Óla Pedro.

Guðný Maja og Óli Pedro. Guðný hefur í gegnum tíð­ina talað opin­skátt um endó og ófrjó­sem­ina sem sjúk­dóm­ur­inn hefur valdið. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

„Það var alveg ynd­is­legt að fá þetta „já“ en ég náði ekki að njóta með­göng­unnar eins og skildi. Henni fylgdi mikið stress og kvíði. Ég var alltaf hrædd um að þetta yrði tekið af mér, eftir alla þessa bið. Þetta var erf­iður tími því maður var svo hræddur um að missa fóstrið,“ útskýrir Guðný.

Ég var alltaf hrædd um að þetta yrði tekið af mér, eftir alla þessa bið.

Um leið og Óli Pedro kom í heim­inn árið 2012, mynd­að­ist tog­streita innra með henni. Hún vildi staldra við og njóta þess að hafa loks­ins eign­ast barn en á sama tíma vildi hún ekki láta of langan tíma líða áður en hún færi á biðlista eftir næstu tækni­frjóvgun en biðlist­inn getur verið langur.

„Stundum horfði ég á Óla Pedro og hugs­aði með mér að hann væri alveg nóg, að það væri nóg að eiga bara eitt barn. Og auð­vitað er hann nóg og ég er svo þakk­lát fyrir hann, en auð­vitað vill maður geta eign­ast fleiri börn. Það sem er svo vont er það að sjúk­dóm­ur­inn hefur tekið ákvörðun fyrir mig. Ég fæ svo litlu ráðið um þetta og maður reynir bara að sætta sig við þetta hlut­skipti,“ segir Guðný.

Treystu sér ekki strax í aðra meðferð

Hún segir tækni­frjóvg­anir reyna bæði á lík­ama og sál og eftir mikla umhugsun komst hún og mað­ur­inn hennar, Óskar, að þeirri nið­ur­stöðu að hún treysti sér ekki strax í aðra með­ferð.

„Sjúk­dóm­ur­inn hefur mikil áhrif á gæði eggj­anna þannig að það er erfitt að standa frammi fyrir því að þurfa að taka ákvörðun um að bíða eða ekki. Sjúk­dóm­ur­inn skemmir æxl­un­ar­færin smátt og smátt þannig að tím­inn vinnur alls ekki með manni. En maður þarf samt að taka ákvörðun um hvort maður treysti sér í aðra með­ferð og hvort það borgi sig að leggja út fyrir með­ferð­inni, sem mis­heppn­ast svo kannski. Þetta eru miklir pen­ingar til að taka áhættu með og því stór ákvörðun,“ segir Guðný. Hún og mað­ur­inn hennar tóku ákvörðun um að bíða í sex ár eftir að sonur þeirra kom í heim­inn, áður en þau fóru í aðra með­ferð.

„Við ákváðum að bíða sem voru í raun mis­tök. Sjúk­dóm­ur­inn hefur bara ágerst,“ segir Guðný sem fór síðar meir í tvær upp­setn­ingar á frystum fóst­ur­vísum en þær með­ferðir heppn­uð­ust ekki. „Líkaminn var bara ekki til­bú­inn í þetta aftur.“

Við ákváðum að bíða sem voru í raun mis­tök. Sjúk­dóm­ur­inn hefur bara ágerst.

Hún bætir við að vissu­lega fylgi sjúk­dómnum verkir í hennar til­felli. En ég væri kannski meira að pæla í verkj­unum ef ófrjó­semin væri ekki svona fyr­ir­ferð­ar­mikil afleið­ing. Verkirnir verða smá­vægi­legir í sam­an­burði við þá stað­reynd að ég hef átt í miklum erf­ið­leikum með að eign­ast börn.“

„Búið að ræna þig þínum plönum og draumum“

Aðspurð hvort fólk hafi almennt sýnt henni skiln­ing hvað sjúk­dóm­inn varðar svarar Guðný: „Ég er mjög opin og er ófeimin við að tala um mína ófrjó­semi og minn sjúk­dóm. Mér finnst fólk reyna að sýna skiln­ing en það getur verið mjög erfitt að sýna ein­hverju skiln­ing sem þú þekkir lítið eða hefur ekki reynt sjálfur.

Til dæmis það að geta ekki átt barn, það er raun­veru­lega búið að ræna þig þínum plönum og draumum – fjöl­skyld­unni sem þú ætl­aðir að stofna. Lífið sýn­ist að stórum hluta um að stofna fjöl­skyldu og það er mikið áfall þegar þú kemst svo að að því að kannski getir þú það ekki,“ segir Guðný sem hefur lagt mikla áherslu á að tala opin­skátt um sjúk­dóm­inn og reyna að fræða fólk um hann.

Með mál­þing­inu „Endó og (ó)frjó­semi“ er verið að vekja athygli á endó­metríósu og áhrifum sjúk­dóms­ins en að sögn Guðnýjar er afar mis­jafnt hvort fólk þekkir sjúk­dóm­inn eða ekki. Sjálf þekkti hún hann ekki þegar hún greind­ist. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

„En í gegnum tíð­ina þá hefur maður alveg orðið var við að fólk vilji meina að þetta séu bara túr­verkir og geri lítið úr verkj­unum sem ein­kenna endó­metríósu. En það er ekki algengt. Það er samt talað til­tölu­lega lítið um þennan sjúk­dóm miðað við aðra sjúk­dóma og það vantar mikið upp á skiln­ing og stuðn­ing frá stjórn­völdum. Manni líður eins og þessi sjúk­dómur sé ekki skil­greindur sem alvar­legur sjúk­dómur. En þetta er svo sann­ar­lega alvar­legur sjúk­dómur,“ segir Guðný sem er nýbúin í aðgerð þar sem hægri eggja­leið­ar­inn var tek­inn vegna sjúk­dóms­ins. „Þetta alvar­legur sjúk­dómur sem getur haft stór­feng­legar afleið­ingar fyrir konur. Og það er ekki til lækn­ing við honum.“

Manni líður eins og þessi sjúk­dómur sé ekki skil­greindur sem alvar­legur sjúk­dómur.

Þess má geta að umdeildar breyt­ingar voru gerðar á reglu­gerð um greiðslu­þátt­töku hins opin­bera við tækni­frjóvg­anir og tóku breyt­ing­arnar gildi um ára­mótin.

Fyrir breyt­ingu á reglu­gerð var greiðslu­þátt­taka rík­is­ins engin í fyrstu tækni­frjóvgun en var 50% ef fram­kvæma þurfti aðgerð­ina í annað, þriðja og fjórða sinn. Eftir breyt­ing­una er greiðslu­þátt­taka rík­is­ins 5% í fyrsta skipti og 30% í annað sinn. Greiðslu­þátt­takan er engin þegar farið er í þriðja eða fjórða sinn í tækni­frjóvgun. Nánar á vef Livio.

Guðný leggur áherslu á að það að glíma við ófrjó­semi reyni mikið á sál­ar­lífið og ofan á það koma fjár­hags­á­hyggjur. „Þetta kostar alveg rosa­lega mikið. Stuðn­ingur frá rík­inu er lít­ill. Ef við ætlum að halda áfram núna þá þyrftum við að nota pen­inga sem eiga að fara í hús­næð­is­kaup. Það er ekki eðli­legt.“

„Við erum ekki að mæta skiln­ingi stjórn­valda þar sem nið­ur­greiðsla er mjög lítil.“

Áhuga­sömum er bent á mál­þingið Endó og (ó)frjó­semi sem haldið verður á morgun, fimmtu­dag­inn 21. mars, klukkan 17:00. Nánar á vef Samtaka um endó­metríósu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina