Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Vegna umfjöllunar um málefni Siðmenntar

Vegna umfjöllunar um málefni Siðmenntar
sið­mennt

Sigurður Hólm Gunn­ars­son, fyrrum for­maður Sið­menntar, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna umfjöll­unar um mál­efni félags­ins.

Í nýjasta tölu­blaði Mannlífs er fjallað um harka­legar deilur sem hafa átt sér stað í kringum stjórn Sið­menntar þar sem miklar hrær­ingar hafa verið und­an­farið ár. Rætt var við aðila sem þekkja vel til innan félags­ins og lýstu þeir sinni upp­lifun af mál­inu.

Rit­stjórn Mannlífs vill taka fram að leitað var til Sigurðar við vinnslu frétt­ar­innar þar sem hann kaus að tjá sig ekki efn­is­lega um málið. Yfir­lýs­ingu hans má lesa hér að neðan.

_____________________

Í blað­inu Mannlíf í dag, 15. mars 2019, er ótrú­leg umfjöllun um Siðmennt sem er upp­full af rang­færslum sem ákveðnir ein­stak­lingar innan félags­ins hafa haft opin­ber­lega. Þau sem hafa haldið þessum rang­færslum fram eru þau Bjarni Jónsson, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri, Helga Jóhanna Úlf­ars­dóttir, núver­andi for­maður, og að ein­hverju leyti Jóhann Björns­son fyrr­ver­andi for­maður. Fáir aðrir hafa tekið undir þetta enda öll gögn máls­ins skýr. Þar sem í umfjöllun blaðs­ins koma fram ein­hliða og rangar full­yrð­ingar hef ég tekið ákvörðun um að svara henni beint opin­ber­lega og vísa í öll helstu skjöl máls­ins. Vitni að máls­at­vikum skrifa undir þessa yfir­lýs­ingu neðst í þessu skjali.

Ég vona inni­lega að fljót­lega kom­ist vinnu­friður á hjá félag­inu á ný.  Það er fullt af frá­bæru, góð­hjört­uðu og hæfi­leik­a­ríku fólki í Siðmennt og því ekki ástæða til ann­ars en að horfa bjart­sýn­is­augum á fram­tíð­ina.

Í umfjöllun Mannlífs segir:
„Deil­urnar virð­ast hafa náð hámarki síð­ast­liðið vor þegar fram­kvæmda­stjóri félags­ins, Bjarni Jónsson, sagði af sér vegna auk­ins þrýst­ings frá stjórn félags­ins að „stjórn og vara­menn í stjórn fengju greidd laun fyrir hvert ein­asta við­vik“, eins og einn heim­ild­ar­manna kemst að orði. Í kjöl­farið, eða um mitt síð­asta sumar, ákvað þáver­andi for­maður [JB] félags­ins, einnig að hætta.“

Þetta er rangt
1) Bjarni Jónsson sagði ekki aðeins af sér vegna þrýst­ings frá stjórn félags­ins um launa­mál. Hann sagði af sér fyrst og fremst eftir að hafa fengið ítrek­aðar athuga­semdir um störf sín. Hann hafði áður, nokkrum sinnum, óskað eftir því að ræða hvort hann hefði traust stjórnar vegna gagn­rýni. Ekkert af þeim málum sner­ist um launa­mál. Um þetta má allt lesa í erindi sem ég sendi félags­mönnum í Siðmennt 20. febr­úar 2019. Þar er vísað í gögn, vitni og stað­reyndir.

Sjá „Erindi til félags­manna í Siðmennt sent 20. febr­úar 2019”: https://docs.google.com/document/d/1Aanuzsmx0lX_XZ1DojRDfdB9uXnjiPPThsvX5VWcQSw/edit?usp=sharing

2) Það var eng­inn þrýst­ingur á að „stjórn og vara­menn í stjórn fengju greidd laun fyrir hvert ein­asta við­vik“. Fyrir það fyrsta eru alls ekki allir í stjórn eða vara­stjórn í laun­aðri vinnu fyrir félagið og eng­inn með laun vegna stjórn­ar­starfa. Nokkrir í stjórn sinna vinnu í verk­töku fyrir félagið. Þáver­andi for­maður, Jóhann Björns­son, var og er kennslu­stjóri og kenn­ari í borg­ara­legri ferm­ingu, Hope Knútsson þáver­andi og núver­andi með­stjórn­andi starfar sem fram­kvæmda­stjóri borg­ara­legrar ferm­ingar og ég hef í mörg ár séð um öll vef- og tölvu­mál fyrir félagið, lengst af í sjálf­boða­vinnu. Bjarni Jónsson hafði alltaf stutt að Jóhann fengi greidd góð laun fyrir sína vinnu og að hann sjálfur fengi laun sem athafna­stjóri félags­ins meðan hann var í stjórn. Þetta snýst ekki bara um launa­mál eins og aug­ljóst er af öllum gögnum máls­ins.

3) Jóhann Björns­son hætti svo heldur ekki út af launa­málum heldur vegna þess að hann vildi ekki vinna með nýjum fram­kvæmda­stjóra auk þess sem hann treysti sér ekki að starfa sem for­maður á þessum umbrota- og álags­tímum sem fylgdu því að fram­kvæmda­stjóri sagði upp skyndi­lega og beðið var eftir að nýr tæki til starfa.

Allt þetta má stað­festa út frá gögnum máls­ins.

Í umfjöllun Mannlífs segir:
„Samkvæmt þeim greiddi Sigurður sér líka þrjá mán­uði aft­ur­virkt þegar hann tók við for­mennsku á síð­asta ári“

Þetta er rangt:

1) Ég greiddi mér engin laun og ég fékk engin laun aft­ur­virkt eftir að ég tók við for­mennsku félags­ins. Auk þess er það ekki ég sem greiði neinum laun. Það gerir fram­kvæmda­stjóri félags­ins.

2) Stjórn félags­ins, undir for­ystu Jóhanns Björns­sonar sem þá var for­maður, stofn­aði sér­staka launa­nefnd til að fara yfir störf sumra í félag­inu. Launa­nefndin skil­aði af sér minn­is­blaði og eftir umræður um hana voru launa­kjör sam­þykkt sam­hljóma. Ég vék vita­skuld af fundi þegar sú afgreiðsla fór fram. Þar sem starf launa­nefndar dróst um nokkra mán­uði var ákveðið að launa­breyt­ingar allar yrðu aft­ur­virkar frá ára­mótum (frá jan­úar til mars 2018). Launa­nefnd fjall­aði ein­ungis um laun fram­kvæmda­stjóra borg­ara­legra ferm­inga, aðstoð­ar­manns fram­kvæmd­stjóra borg­ar­legra ferm­inga og vef- og tölvu­stjóra. Eftir breyt­ingar voru þessir aðilar engu að síður með marg­falt (7,5 sinnum) lægra tíma­kaup en kennslu­stjóri borg­ar­legra ferm­ingar sem þá var for­maður. Nið­ur­staða launa­nefndar var sam­þykkt af öllum í stjórn og allir sáttir.

Í umfjöllun Mannlífs segir:

„Samkvæmt fyrr­nefndum heim­ild­ar­mönnum versn­aði dag­legur rekstur félags­ins eftir þau stjórn­ar­skipti. „Það má segja að starf­semi félags­ins hafi farið „hnign­andi“. „Allt var gert á handa­hlaupum og öll skila­boð frá for­manni voru óvönduð“

Þetta er rangt:

1) Daglegur rekstur fór ekki versn­andi eftir að Jóhann sagði skyndi­lega af sér og ég þurfti að taka við sem starf­andi for­maður. Þvert á móti hefur vinnu­semi stjórnar aldrei verið meiri. Um þetta geta allir við­staddir vitnað til um. Það var þó erfitt að vera skyndi­lega án bæði fram­kvæmda­stjóra og for­manns og því vann það stjórn­ar­fólk sem eftir var óvenju mikið á þessu tíma­bili til að vinna úr flóknum málum. Ekkert var gert á „handa­hlaupum“ heldur voru frekar teknar ákvarð­anir um að fresta ákveðnum við­burðum til að allt sem gert væri yrði gert fag­lega.

2) Aðeins ein mann­eskja kvart­aði yfir vondum sam­skiptum við mig á meðan ég var for­maður. Það er núver­andi starf­andi for­maður félags­ins Helga Jóhanna Úlf­ars­dóttir. Hún hefur þó aldrei getað bent á hvaða sam­skipti eiga að hafa verið óvönduð þrátt fyrir að vera beðin um það ítrekað. Hún end­ur­tók þessar athuga­semdir sínar ásamt öllum þeim rang­færslum sem fjallað er um í umfjöllun Mannlífs á félags­fundi Sið­menntar 12. mars síð­ast­lið­inn. Aftur voru rang­færsl­urnar leið­réttar og aftur var hún spurð út í óvönd­uðu sam­skiptin og aftur var engu svarað.

Umfjöllun og upp­töku af þeim fundi má skoða hér. Upptakan er þó aðeins aðgengi­leg félags­mönnum Sið­menntar eins og eðli­legt er:
https://docs.google.com/document/d/1jRN1mYL1VRtBA75Pvkyx7Z_Ti4OsYh2ZW5d1Vwr7jHo/edit?usp=sharing

Í umfjöllun Mannlífs segir:
„
hefur Mannlíf eftir einum heim­ild­ar­manna sem bætir við að stjórnin hafi látið nokkra mán­uði líða áður en nýr fram­kvæmda­stjóri var ráð­inn.”

Þetta er einnig rangt eins og má lesa um í „Erindi til félags­manna í Siðmennt sent 20. febr­úar 2019“.

Nánast allt sem fram kemur í umfjöllun Mannlífs er bein­línis rangt og það er auð­velt að sýna fram á það með gögnum. Því óska ég eftir því að fjöl­miðla­fyr­ir­tækið leið­rétti þessar ein­hliða, röngu og meið­andi full­yrð­ingar.

Ítarefni

  • Erindi til félags­manna í Siðmennt sent 20. febr­úar 2019

https://docs.google.com/document/d/1Aanuzsmx0lX_XZ1DojRDfdB9uXnjiPPThsvX5VWcQSw/edit?usp=sharing

Sigurður Hólm Gunn­ars­son

  1. mars 2019

Undirrituð staðfesta að það sem hér segir er satt og rétt

Hope Knútsson, stofn­andi Sið­menntar, for­maður til 19 ára og stjórn­ar­maður frá upp­hafi

Auður Sturlu­dóttir, fyrrum vara­for­maður Sið­menntar

Kristinn Theo­dórs­son, fyrrum stjórn­ar­maður Sið­menntar og núver­andi vara­maður í stjórn

Þor­steinn Kol­beins­son, fyrrum og núver­andi vara­maður í stjórn

Margrét Pét­urs­dóttir, fyrrum vara­maður í stjórn

Sigurður Hólm Gunn­ars­son, fyrrum starf­andi for­maður Sið­menntar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina