Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Í hjartastopp á fyrsta ári í menntó

Þor­valdur Sig­ur­björn Helgason rit­höf­undur sendi nýlega frá sér ljóða­bók­ina Gangverk sem er eins konar ljóða­saga sem fjallar um tíu ár í lífi hans, frá 2007-2017. Þor­valdur var aðeins 15 ára gam­all þegar hann fór í hjarta­stopp og var end­ur­lífg­aður.

Í hjartastopp á fyrsta ári í menntó
|
Þor­valdur Sig­ur­björn Helgason sendi nýlega frá sér ljóða­bók­ina Gangverk sem hann byggir á eigin reynslu.

„Ljóðin eiga það öll sam­eig­in­legt að fjalla um hjartað á einn eða annan hátt, bæði líf­færið hjartað sem heldur í okkur lífi og hug­mynda­fræði­lega hjartað sem við tengjum við róm­an­tík og til­finn­ingar,“ segir Þor­valdur en bókin kom út hjá Máli og menn­ingu 14. febr­úar síð­ast­lið­inn. „Bókin segir sög­una af því þegar ég lenti í hjarta­stoppi 15 ára gam­all, þegar ég var á fyrsta ári mínu í mennta­skóla og af upp­lif­unum mínum í kjöl­farið. Þó er ekki um hreina og beina ævi­sögu að ræða heldur er gripið inn í sög­una á ýmsum stöðum, með ólíkum aðferðum og sjón­ar­hornum. Ég reyndi að skrifa bæði út frá mínu eigin sjón­ar­horni og sjón­ar­horni lækna­vís­ind­anna en ég var svo hepp­inn á fá aðgang að ýmsum lækna­bréfum og skjölum frá hjarta­lækn­inum mínum sem ég nýtti mér við skrifin. Inn­blást­ur­inn að bók­inni kemur að mestu leyti út frá minni eigin reynslu og áhuga mínum á hjart­anu, þessu magn­aða líf­færi.“

Endurlífgun í hálftíma

Í sept­em­ber árið 2007 var Þor­valdur busi í Kvenna­skól­anum í Reykja­vík og var að bíða eftir tíma þegar hann fékk skyndi­lega mjög hraðan hjart­slátt. „Ég hafði lent í þessu áður en það hafði alltaf liðið hjá svo ég hafði ekki miklar áhyggjur, sett­ist niður og reyndi að slaka á. Það næsta sem gerð­ist var að það leið yfir mig og ég datt á öxl einnar bekkj­ar­systur minnar sem hélt að ég væri bara eitt­hvað að grín­ast. Þarna var ég þó kom­inn í hjarta­stopp og sem betur fer var fólk í kringum mig sem brást snöggt við og hringdi á sjúkra­bíl sem kom innan örfárra mín­útna. Við tók um það bil hálf­tíma löng end­ur­lífgun þar sem ég var stuð­aður alls tólf sinnum með hjarta­stuð­tæki til að koma hjart­anu í mér aftur í gang. Síðan var ég fluttur á spít­ala þar sem ég var kældur og mér haldið sof­andi í önd­un­ar­vél í nokkra daga,“ segir Þor­valdur.

„Auk þess átt­aði ég mig alls ekki á því hvað hafði gerst, ég skildi ekk­ert hvað ég væri að gera á spít­ala og vildi bara drífa mig heim svo ég kæm­ist á busa­ballið sem var eftir nokkra daga.“

Hann var ringlaður þegar hann vakn­aði og man lítið eftir fyrstu augna­blik­unum. „Samkvæmt mömmu minni var ég í þónokkurn tíma að ná áttum og var með ofskynj­anir fyrst um sinn þar sem ég sá meðal ann­ars pöddur á veggj­unum. Auk þess átt­aði ég mig alls ekki á því hvað hafði gerst, ég skildi ekk­ert hvað ég væri að gera á spít­ala og vildi bara drífa mig heim svo ég kæm­ist á busa­ballið sem var eftir nokkra daga.“

Þar sem engin bein orsök fannst fyrir hjarta­stopp­inu var ígræddur bjarg­ráður í Þorvald. „Ég hef verið með bjarg­ráð síðan þá og allt hefur gengið vel fyrir utan smá­vegis tækni­lega örð­ug­leika með bjarg­ráð­inn sem olli því að ég þurfti að fara í tvær aðgerðir í við­bót fyrstu mán­uð­ina sem ég var með hann.“

Dauðinn falinn í samfélaginu

Hann seg­ist fyrst hafa farið að vinna í sjálfum sér vegna atviks­ins sjö árum síðar. „Ég var þá í námi á sviðs­höf­unda­braut Lista­há­skól­ans þar sem nem­endur voru gjarnan hvattir til þess að nota sjálfa sig sem efni­við í verkin sín. Ég end­aði á því að gera nokkur verk sem fjöll­uðu bæði um hjartað og dauð­ann, meðal ann­ars rann­sókn­ar­verk­efni sem hét Gangverk lífs­ins þar sem ég fékk að fylgja hjarta­lækn­inum mínum, Hirti Oddssyni, í störfum hans á Land­spít­al­anum og fylgd­ist til dæmis með nokkrum hjarta­að­gerðum. Þetta verk­efni end­aði í sviðs­lista­verki sem ég vann ásamt vinum mínum, Guðmundi Fel­ix­syni og Evu Halldóru Guð­munds­dóttur, og mætti eflaust líta á það sem eins konar for­vera að ljóða­bók­inni Gangverk, þó svo að þetta hafi verið mjög ólík verk,“ segir Þor­valdur.

Hann segir það ákveðna klisju að það að kom­ast svona nærri dauð­anum kenni manni að meta lífið betur en fái mann auð­vitað til að setja báða hluti í nýtt sam­hengi. „Ég hef hugsað mjög mikið um þetta, loka­verk­efnið mitt frá Lista­há­skól­anum fjall­aði til dæmis um dauð­ann, og ef það er eitt­hvað sem ég lærði af þeirri vinnu þá er það að öllum er hollt að velta fyrir sér sínum eigin dauð­leika. Dauðinn er mjög fal­inn í okkar sam­fé­lagi og jafn­vel álit­inn tabú en það er nauð­syn­legt að hugsa um hann því þetta er ferli sem við munum öll ganga í gegnum ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni, bæði á hlið­ar­lín­unni þegar ást­vinir okkar deyja, og að lokum sem þátt­tak­endur þegar við sjálf munum deyja. Það mik­il­væg­asta við að hugsa um dauð­ann er hins vega að það fær mann óhjá­kvæmi­lega til þess að taka afstöðu til lífs­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina