Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Byrjaði að vinna við Food & Fun átta ára gamall

Byrjaði að vinna við Food & Fun átta ára gamall
||||||
Óli Hall hefur, þrátt fyrir ungan aldur, verið þátt­tak­andi í und­ir­bún­ingi og fram­kvæmd hátíð­ar­innar frá upp­hafi og er núna við­burða­stjóri hátíð­ar­innar.

Food & Fun er að skella á í átjánda sinn og Óli Hall hefur, þrátt fyrir ungan aldur, verið þátttakandi í undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar frá upphafi. Hann segir Food & Fun hafa opnað margar dyr fyrir íslenskum kokkum og ekki síður átt þátt í því að vekja áhuga og hrifningu erlendra kokka á íslensku hráefni og matargerð.

„Ég hef tekið þátt í Food & Fun síðan það byrj­aði árið 2001,“ útskýrir Óli. „Pabbi minn, Siggi Hall, byrj­aði með hátíð­ina og þótt ég væri ekki nema átta eða níu ára var ég með frá byrjun. Til að byrja var mitt hlut­verk aðal­lega að halda utan um og passa upp á börn gesta­kokk­anna sem komu og skemmta þeim á meðan full­orðna fólkið fór út að borða. Þannig að það má segja að ég hafi alist upp með hátíð­inni og hátíðin með mér.“

Hátíðin í ár er sú átj­ánda í röð­inni og Óli segir alla fjöl­skyld­una vera á kafi í und­ir­bún­ingnum eins og hún hafi verið frá upp­hafi. „Pabbi er fram­kvæmda­stjóri Food & Fun og ég hef tekið við stöðu við­burða­stjóra hátíð­ar­innar,“ útskýrir Óli. „Móðir mín hefur síðan yfir­um­sjón með bók­unum og gestum og ferðum og systir mín er yfir­hönn­uður. Það hefur alltaf verið mjög sterk heild sem hefur rekið hátíð­ina saman í öll þessi ár. Auðvitað hafa nokkrir komið og farið af þeim sem hafa aðstoðað okkur í gegnum tíð­ina, en við erum hér enn.“

Off menu nýtt konsept í ár

Spurður hvort hátíðin í ár sé að ein­hverju leyti frá­brugðin fyrri hátíðum segir Óli að þessi hátíð skeri sig úr að einu leyti. „Við erum að byrja með nýtt konsept sem heitir off menu og felst í því að fjórir gastro-pöbbar og street food-staðir munu taka þátt án þess að vera með fullan mat­seðil eins og hinir stað­irnir sem eru með í aðal­keppn­inni, heldur geta gestir farið á þessa staði og bragðað á einum eða fleiri réttum frá ein­hverjum af þessum flottu erlendu gesta­kokkum sem koma til okkar. Svo eru líka meðal gesta­kokk­anna í ár tvær konur sem eiga ættir að rekja til Afríku, sem ætti að verða mjög spenn­andi að kynn­ast mat­ar­gerð­inni hjá. Að öðru leyti er þetta bara hefð­bundið Food & Fun. Fimmtán af bestu veit­inga­stöðum í Reykja­vík taka þátt og fá til sín gesta­kokk frá mið­viku­deg­inum 27. febr­úar til sunnu­dags­ins 3. mars og setja upp Food & Fun-mat­seðil sem er á sama verði, 8.900 krónur, á öllum stöð­unum.“

„Til að byrja var mitt hlut­verk aðal­lega að halda utan um og passa upp á börn gesta­kokk­anna sem komu og skemmta þeim á meðan full­orðna fólkið fór út að borða.“

Óli segir það alltaf mikla upp­lifun að fara á milli stað­anna sem taka þátt í Food & Fun og smakka það sem þessir súpergesta­kokkar, eins og hann kallar þá, hafa fram að færa.
„Við höfum leitað eftir því að fá unga og upp­renn­andi kokka til okkar, fólk sem er alveg við það að leggja veit­inga­bransa heims­ins að fótum sér, en svo höfum við líka alltaf fengið til okkar gam­al­gróna og reynda kokka sem eru mjög virtir innan veit­inga­geirans og á þess­ari hátíð eru nokkrir sem hafa komið áður, sumir sem dóm­arar á fyrri hátíðum en svo hleypur keppn­is­skapið í þá og þeir vilja ólmir koma og fá að taka þátt í hátíð­inni sem kokkar. Reyndar er það þannig í 99% til­fella að kokk­arnir sem koma grát­biðja um að fá að koma aftur, finnst þetta æðis­leg upp­lifun og eiga ekki orð yfir það hvað íslenska hrá­efnið sé gott og íslensk veit­inga­hús rekin af mik­illi fag­mennsku og metn­aði.“

Hefur skapað stórt vináttu- og tengslanet

Óli segir alls kyns tengsl og tæki­færi hafa opn­ast fyrir íslenskum kokkum í tengslum við hátíð­ina, sem sé eitt af því jákvæða sem hún hafi haft í för með sér. „Margir íslenskir kokkar hafa fengið tæki­færi til að fara í stuttan tíma og vinna á veit­inga­hús­unum sem gesta­kokk­arnir okkar koma frá og það hafa skap­ast góð vina­sam­bönd og stórt tengsla­net sem íslenskir kokkar njóta góðs af. Sömu­leiðis hefur þetta tengsla­net opnað leiðir fyrir okkur sem stöndum að hátíð­inni til að geta nálg­ast kokka út um allan heim og gesta­kokk­arnir sem hafa komið hafa líka verið svo dug­legir að dásama hátíð­ina við kollega sína að margir þeirra hafa haft sam­band við okkur að fyrra bragði og viljað fá að koma og taka þátt.“

Spurður hvort gesta­kokkar hátíð­ar­innar komi þá alls staðar að segir Óli meg­in­hluta þeirra koma frá Evrópu og Ameríku, en það séu þó alltaf ein­hverjir sem komi lengra að. „Það hafa verið að koma kokkar alls staðar að úr heim­inum en yfir­leitt eru þetta kokkar frá Evrópu og Ameríku, það er bara hent­ug­ast upp á stað­setn­ingu Íslands þannig að kokk­arnir okkar þurfi ekki að ferð­ast mjög langt eða fara margar flug­ferðir til að kom­ast til okkar. En það hafa komið kokkar frá Ástralíu, Líbanon og Taílandi, þannig að það að við ein­skorðum okkur ekki við nágrann­ana.“

Hvað finnst þér per­sónu­lega skemmti­leg­ast við þessa fimm daga sem hátíðin stendur yfir?
„Þetta er nátt­úr­lega ótrú­lega mikil vinna fyrir okkur sem sjáum um hátíð­ina,“ segir Óli, „en það er alls ekki leið­in­legt að flakka á milli veit­inga­staða og borða kannski einn, tvo, þrjá rétti á hverjum stað bara af því að maður stökk inn til að athuga hvernig gengi. Það endar stundum með því að maður er búinn að borða tvo, þrjá fulla mat­seðla á einu kvöldi þegar maður ætl­aði bara að kíkja í heim­sókn og segja hæ. Þetta hefur gert mjög mikið fyrir mig per­sónu­lega og ég á núna marga mjög góða vini sem eru í þessum bransa á veit­inga­stöðum hér og þar úti í heimi.“

Óvænt uppákoma í New York

Til marks um það hversu víða þeir kokkar sem tekið hafa þátt í Food & fun starfi segir Óli eina skemmti­sögu. „Ég og for­eldrar mínir vorum að ferð­ast í Banda­ríkj­unum. Vorum búin að vera nokkra daga í Washington og þar var alltaf verið að bjóða okkur í mat af ein­hverjum Food & Fun-kokkum, sem var ynd­is­legt. Svo fórum við til New York og þar var strax það sama upp á ten­ingnum. Í hádeg­inu annan dag­inn sem við vorum þar ákváðum við samt að lifa hættu­lega og fara bara inn á ein­hvern veit­inga­stað sem við vissum ekk­ert um og þekktum engan. Við vorum varla komin inn úr dyr­unum þegar heyr­ist æpt úr miðjum salnum „Siggi!“ Og þá var þarna kokkur sem hafði komið á Food & Fun nokkrum árum áður. Þannig að það eru engar ýkjur að Food & Fun teygir anga sína víða.“

Óli fet­aði ekki í fót­spor föður síns sem kokkur heldur lærði við­skipta­fræði sem hann segir reyndar koma sér vel í und­ir­bún­ingi hátíð­ar­innar. „Ég reyni að setja kokk­ana upp í excel,“ segir hann og hlær. „Það getur orðið mjög erfitt og er oft mikið púsl, en við höfum alltaf náð að láta alla bit­ana úr púsl­inu falla á rétta staði.“

Fyrirspurnir um matseðla hálfu ári fyrir hátíð

Íslenskir veit­inga­húsa­gestir hafa tekið hátíð­inni fagn­andi og Óli segir mörg dæmi þess að hópar taki sig saman og mæti á hátíð­ina ár eftir ár. „Það hefur alltaf verið mjög góð aðsókn að Food & Fun,“ segir hann. „Upp­haf­lega var hug­myndin að baki hátíð­inni sú að hún yrði átak til þess að fá fólk inn á veit­inga­stað­ina á dauð­asta tíma árs­ins. Ég held að sumir veit­inga­stað­irnir sem voru með í byrjun og eru enn starf­andi í dag hefðu kannski ekki getað farið í gegnum suma vet­urna ef ekki hefði verið fyrir Food & Fun þegar stað­irnir allt í einu fyllt­ust í þrjá, fjóra daga í febr­úar. Með ferða­manna­spreng­ingu und­an­far­inna ára hefur þetta snú­ist meira um gaman og húll­umhæ og er ekki jafn­nauð­syn­legt fyrir afkomu veit­inga­hús­anna og það var, en þrátt fyrir það fyll­ast allir stað­irnir enn meira en vana­lega þessa daga. Það er önnur stemn­ing í kringum þessa daga og það er fullt af mat­ar­klúbbum og sauma­klúbbum sem við höfum frétt að hafi mætt á hverju ein­asta ári og bíði eftir hátíð­inni í ofvæni. Þeir eru stundum byrj­aðir að senda okkur skila­boð hálfu ári fyrr og vilja fá að vita hvenær hægt verði að skoða mat­seðl­ana svo þeir geti valið sér staði til að fara á í þetta sinn.“

„Svo eru líka meðal gesta­kokk­anna í ár tvær konur sem eiga ættir að rekja til Afríku, sem ætti að verða mjög spenn­andi að kynn­ast mat­ar­gerð­inni hjá.“

Óli segir mark­mið hátíð­ar­innar vera að vekja athygli á gæðum íslensks hrá­efnis og skapa hátíð­ar­stemn­ingu í bænum. „Það hefur tek­ist mjög vel í öll þessi ár,“ segir hann, „við höfum getið okkur mjög gott orð bæði hér heima og erlendis og hátíðin hefur vaxið með hverju árinu. Auðvitað hefur hún aðlag­ast og breyst í takt við breytta tíma en hún hefur alltaf haldið í sama kjarna­konseptið sem er að koma með eitt­hvað skemmti­legt og öðru­vísi inn í veit­inga­flór­una í Reykja­vík.“

Eins og áður sagði hefst Food & Fun þann 27. febr­úar og stendur til 3. mars og allir stað­irnir sem taka þátt í hátíð­inni bjóða upp á Food & Fun-mat­seðla alla þá daga. Nánari upp­lýs­ingar um gesta­kokka og mat­seðla má nálg­ast á heima­síðu hátíð­ar­innar, foodandfun.is.

Svip­myndir frá Food & Fun-hátíð­inni í fyrra. Myndir / Antonía Lár­us­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina