Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Hélt að kommentakerfin gengju af göflunum“

Krist­jana Arn­ars­dóttir er nýr spyrill Gettu betur, fjórða konan sem gegnir því hlut­verki á löngum ferli keppn­innar. Krist­jana hefur getið sér gott orð sem íþrótta­f­rétta­maður á RÚV, sem hún segir hafa verið æsku­draum­inn, henni hafi bara ekki dottið í hug fyrr en fyrir nokkrum árum að kona gæti fengið vinnu við að segja fréttir af íþróttum. Hún hafi þó ekki orðið vör við gagn­rýni á störf sín vegna þess að hún sé kona, þvert á móti hafi fólk keppst við að hrósa henni fyrir að vinna vinn­una sína vel.

„Hélt að kommentakerfin gengju af göflunum“
|||

„Þetta leggst bara rosa­lega vel í mig,“ segir Krist­jana hress, þegar hún er spurð að því hvernig þetta nýja hlut­verk legg­ist í hana. „Ég hef verið að æfa mig á fullu og útvarps­keppnin fór fram í jan­úar, þannig að ég er aðeins komin með til­finn­ing­una fyrir þessu og hlakka mikið til að takast á við þetta.“

Krist­jönu var boðin staðan eftir að mynd­band af Birni Braga Arn­ars­syni, fyrrum spyrli keppn­innar, þar sem hann sást sýna sautján ára stúlku ósæmi­lega hegðun fór í umferð og hann sagði sig í fram­haldi af því frá starf­inu. Var Krist­jana fyrsta val til að taka við af honum?

„Já, ein­hvern tíma í nóv­em­ber var ég boðuð á fund og spurð hvort ég hefði áhuga á að taka þetta að mér,“ segir Krist­jana. „Það kom mér mjög á óvart, ég var ekki að hugsa um neitt annað en íþrótt­irnar og hefði lík­lega ekki borið mig eftir þessu sjálf, þannig að ég þurfti aðeins að melta þetta. Svo fór ég að skoða þennan hóp sem kemur að Gettu betur og leist rosa­lega vel á þau öll þannig að ég ákvað að slá til. Það var hægt að búa til smá­vegis svig­rúm fyrir mig á íþrótta­deild­inni á móti svo þetta kemur ekk­ert niður á vinnu minni þar, ég held bara mínu striki þar áfram. Þetta verður svo­lítil keyrsla en ég er nú vön því og kvíði því ekk­ert.“

Þegar hún er spurð hvaða skoðun hún hafi á máli Björns Braga fær­ist Krist­jana undan því að svara.

„Ég held að ég sé ekki rétta mann­eskjan til að tjá mig um það,“ segir hún ákveðin. „Auðvitað skiptir máli að þeir sem eru í svona þáttum með ungu fólki séu góðar fyr­ir­myndir og ég vona að ég geti verið það, þótt það sé alltaf erfitt að leggja mat á sjálfan sig í þeim efnum.“

Alin upp í íþróttafréttunum

Krist­jana er dóttir Arnars Björns­sonar, íþrótta­f­rétta­manns á Stöð 2, en seg­ist aldrei hafa notað þau sam­bönd til að kom­ast að sem íþrótta­f­rétta­maður, þvert á móti hafi það frekar verið notað gegn henni.

Krist­jana Arn­ars­dóttir hefur getið sér gott orð sem íþrótta­f­rétta­maður á RÚV og er nýr spyrill í spurn­inga­keppni fram­halds­skól­anna, Gettu betur. Krist­jana byrj­aði feril sinn í fjöl­miðlum árið 2010 sem almennur blaða­maður á Frétta­blað­inu þar sem hún var á inn­blað­inu. Mynd / Hallur Karlsson

„Já,“ segir hún hugsi. „En svo ég byrji nú alveg á byrj­un­inni þá er ég nátt­úr­lega alin upp í þessu umhverfi, það sner­ist allt um íþróttir. Við pabbi horfðum til dæmis alltaf saman á enska bolt­ann alveg frá því að ég var svona fimm ára. Svo fór ég sjálf að æfa fót­bolta og hef bara verið á kafi í íþróttum síðan ég man eftir mér. Það var alltaf horft á íþrótta­f­réttir heima og við fylgd­umst vel með öllu sem var að ger­ast í þeim heimi.

Ég við­ur­kenni að ég hafði alltaf lúmskan draum um það að reyna að kom­ast inn í íþrótta­f­rétta­mennsk­una.

Barnæska mín sner­ist öll um þetta og ég þekkti ekk­ert annað. Ég við­ur­kenni að ég hafði alltaf lúmskan draum um það að reyna að kom­ast inn í íþrótta­f­rétta­mennsk­una en á sama tíma þá er ekki hægt að segja að þessi stétt hafi verið opin fyrir konum, það var engin kven­fyr­ir­mynd í þessu starfi þegar ég var krakki, þannig að ég setti bara sama­sem­merki þarna á milli og ákvað að ég gæti aldrei gert þetta því það væru engar konur í þessu. Hvernig ætti ég að geta komið inn í þetta fag? Það var ein­fald­lega ekki raun­hæfur mögu­leiki.“

Krist­jana byrj­aði feril sinn í fjöl­miðlum árið 2010 sem almennur blaða­maður á Frétta­blað­inu þar sem hún var á inn­blað­inu, eða eins og hún segir í „bleiku frétt­unum.“

„Ég leit svo á, á þeim tíma, að þetta væri senni­lega það lengsta sem ég kæm­ist í blaða­mennsk­unni, engar íþrótta­f­réttir heldur var ég að skrifa um hluti sem ég hafði í raun­inni engan áhuga á. Ég við­ur­kenni fús­lega að ég fylgist ekk­ert með Hollywood-slúðri eða veit nokkuð um Kar­dashian-klanið og ég hlæ stundum að því enn þann dag í dag að ég hafi verið að vinna við þetta svona lengi. Ég var í þessu alveg til 2015, með smá­vegis hléum reyndar.

Þá sann­færð­ist ég meira og meira um að það þýddi ekk­ert fyrir mig að hugsa um íþrótta­f­rétt­irnar, ég væri bara ein­hver kona sem skipti engu máli.

Til þess að setja í sam­hengi hversu fjar­lægur draumur mér fannst það vera að ég gæti farið að vinna í svona hrein­rækt­aðri karla­stétt eins og íþrótta­f­rétta­mennska var þá, get ég nefnt sem dæmi að ég var í fót­bolta á þessum tíma og bað ein­hvern tíma um að fá að fara korteri fyrr af því ég þurfti að spila leik á Akranesi um kvöldið, þá fékk ég þau skila­boð frá yfir­mann­inum að ég væri nú ekki í Pepsi-deild­inni og þyrfti nú ekk­ert að vera að stökkva fyrr úr vinnu fyrir ein­hvern leik. Svona athuga­semdir voru alltaf að koma og þá sann­færð­ist ég meira og meira um að það þýddi ekk­ert fyrir mig að hugsa um íþrótta­f­rétt­irnar, ég væri bara ein­hver kona sem skipti engu máli.“

Spurð hvort hún hefði ekki getað fengið pabba sinn til að tala máli sínu hristir Krist­jana höf­uðið ákaft.

„Ég vildi alls ekki koma pabba í þá stöðu. Ég vildi halda honum algjör­lega fyrir utan þetta. Ein­hverra hluta vegna var það samt komið í umræðu hvort ég vildi ekki prófa að spreyta mig á íþrótta­deild­inni en ég gerði ekk­ert í því, ekki síst eftir að ákveð­inn maður á blað­inu sagði mér að það þýddi sko ekk­ert fyrir mig að ætla að kom­ast áfram á því að vera ein­hver pabbastelpa, ég gæti ekk­ert valsað bara inn í íþrótt­irnar þegar mér sýnd­ist af því að ég væri dóttir Arnars. Ég fékk enda­lausar svona athuga­semdir þannig að ég jarð­aði þennan draum bara.“

Hélt að kommentakerfin gengju af göflunum

En hvernig kom það þá til að Krist­jana tók að sér starf íþrótta­f­rétta­manns á RÚV?

„Þegar ég hætti á Frétta­blað­inu flutti ég til Dan­merkur til að „finna sjálfa mig“,“ segir hún og hlær. „Þetta hafði verið erfitt sumar á Frétta­blað­inu og ég var pínu­lítið búin að fá nóg af þessu umhverfi. Mér fannst maður ekki met­inn að verð­leikum og maður var ein­hvern veg­inn alltaf að vinna yfir­vinnu og stundum fór ég upp á blað á takka­skónum eftir fót­bolta­æf­ingar til að klára blaðið. Í Danmörku fór ég í tón­list­ar­lýð­há­skóla, kláraði eina önn í Hró­arskeldu­há­skóla, fór að vinna í fisk­búð og sem syngj­andi þjónn á veit­inga­stað, bara til að gera eitt­hvað. Kom svo heim og fór í mann­fræði í Háskól­anum, vann eitt sumar í þjón­ustu­veri í banka og svo árið eftir sem flug­freyja hjá Icelandair. Ég vissi bara ekk­ert hvað mig lang­aði að gera.

Þetta var líka glufa fyrir mig að fara inn í íþrótta­f­rétt­irnar án þess að gera pabba ein­hvern óleik.

Vorið 2016 fékk ég skila­boð frá gömlum vinnu­fé­laga þar sem hann spurði mig hvort ég hefði áhuga á að koma inn á íþrótta­deild­ina á RÚV. Þarna var EM í fót­bolta að byrja og mann­ekla á íþrótta­deild­inni og ég var beðin að taka nokkrar net­vaktir. Þarna var ég að vinna sem flug­freyja og auð­vitað brjálað að gera í því en ég ákvað samt að slá til, þannig að það sumar var ég að vinna tölu­vert, rúm­lega 100% vinnu.

Ég kunni strax rosa­lega vel við mig á RÚV og fann strax að mér var vel tekið. Þetta var líka glufa fyrir mig að fara inn í íþrótta­f­rétt­irnar án þess að gera pabba ein­hvern óleik. Þarna gat ég komið mér inn í starfið á mínum eigin for­sendum. Þetta gekk mjög vel og vatt síðan upp á sig, ég fór að taka fleiri og fleiri vaktir og svo kom upp sú hug­mynd hvort ég vildi prófa að æfa mig að lesa íþrótta­kvöld­fréttir. Ég var alveg með í mag­anum yfir því í smá­tíma, hélt að nú færu kommenta­kerfin af stað um það hvaða vit þessi stelpa hefði á fót­bolta.

Mér fannst ég vera að stíga inn á algjört sprengju­svæði, en svo gekk þetta bara vel og ég hef í raun­inni aldrei fengið þessar athuga­semdir sem ég ótt­að­ist. Það kom mér ofboðs­lega á óvart því ég var búin að tala sjálfa mig svo mikið niður og sann­færa mig um að konur ættu ekki heima þarna því for­dæmin voru svo fá. Þegar ég byrj­aði var Edda Sif til dæmis eina starf­andi íþrótta­f­rétta­konan og ég leit mikið upp til hennar. Ég var alveg stein­hissa á því hvað fólk tók þessu vel. Ég varð að vísu dálítið hugsi yfir því að fólk var mikið að klappa mér á bakið fyrir að standa mig svona vel og það var auð­vitað und­ir­liggj­andi að það hrós sem ég fékk var vegna þess að ég var kona. Það var smá­vegis „patrónæs­ing“ í því.“

Hér er við hæfi að bakka pínu­lítið og for­vitn­ast um per­sónu­lega hagi Krist­jönu. Hver er hennar saga utan við kast­ljós fjöl­miðl­anna?

„Ég ólst upp í vest­ur­bænum í Kópavogi og bý þar enn,“ segir hún og hlær. „Ég vildi bara hvergi ann­ars staðar vera. Þetta er í gamla hlut­anum af Kópavogi og það er rosa­lega mikil værð hérna. Svo spillir auð­vitað ekki fyrir að nán­ast öll fjöl­skyldan býr hér, mamma og pabbi eru hérna rétt hjá og systir mín og bróðir líka, auk frænd­fólks. Aðal­vanda­málið hefur verið að draga kærast­ann minn, sem er mik­ill KR-ingur, hingað.“

Umræddur kær­asti er Haraldur Franklín golfari sem Krist­jana hefur verið í sam­bandi við í eitt og hálft ár. Þau búa saman en hún seg­ist samt vera mikið ein heima en golfið veldur því að Haraldur þarf að vera á stöð­ugu flakki og oft að dvelja lang­dvölum erlendis.

„Ég er að miklum hluta til grasekkja í Kópa­vog­inum,“ segir Krist­jana og glottir. „Hann fór til dæmis út í fyrra­dag og kemur ekki aftur fyrr en um miðjan mars, svo þetta eru ansi langir túrar sem hann er í. En hann er auð­vitað atvinnu­kylfingur, þetta er vinnan hans, og ég er rosa­lega skiln­ings­rík, þekki það enda mjög vel sjálf hvernig þetta virkar í íþrótt­unum, þannig að við eigum mjög vel saman.“

Mikilvægt að geta talað opið um kvíðann

Krist­jana sagði mér frá því þegar hún var að tala um fyrstu sjón­varps­send­ing­arnar að hún væri greind með kvíða­röskun. Hefur það vanda­mál hrjáð hana lengi?

„Nei, í raun­inni ekki,“ segir hún. „Ætli ég hafi ekki verið svona 24 til 25 ára þegar þetta byrj­aði. Ég fór að kvíða marga daga fram í tím­ann fyrir ein­hverjum venju­legum vinnu­degi. Og var oft kvíðin yfir fárán­leg­ustu hlutum. Ég vissi ekki almenni­lega hvað þetta var en í dag er ég greind með kvíða og er á lyfjum og er ekk­ert feimin við að við­ur­kenna það. Mér finnst mjög mik­il­vægt að það sé hægt að tala opin­skátt um and­lega sjúk­dóma.

Ég við­ur­kenni alveg að stundum er ég bara föst í því að kvíða því hvað ég geti haft í frétt­unum eftir fjóra, fimm daga, eins og það sé ein­hver mögu­leiki að vita hvað muni ger­ast eftir fjóra, fimm daga í íþrótt­unum, þannig að stundum er þetta algjör­lega fárán­legt og ég get hlegið að sjálfri mér fyrir að mikla hlut­ina svona fyrir mér. Þetta er þekkt í fjöl­skyld­unni, við höfum sem betur fer að mestu sloppið við lík­am­lega sjúk­dóma en and­legir erf­ið­leikar hafa verið okkar fylgi­fiskur og mér finnst óskap­lega mik­il­vægt að þeir sem upp­lifa svona fái við­eig­andi aðstoð. Það hefur algjör­lega bjargað mér að vera sett á kvíða­lyf og ég er mjög þakk­lát fyrir það.“

Við erum búnar að koma inn á það að íþrótt­irnar hafi verið þitt hálfa líf síðan þú varst krakki en lífið hlýtur nú að snú­ast um eitt­hvað fleira hjá þér, eða hvað?

„Það er spurn­ing,“ segir Krist­jana og skellir aftur upp úr. „Ég get alveg við­ur­kennt að ég er ekki í þessu starfi fyrir launin eða vinnu­tím­ann, þetta er ástríða og ég er rosa­lega mikið í vinn­unni. Vakta­fríin mín fara að miklu leyti í að liggja kyrr, horfa á Netflix eða sofa þannig að það er í raun­inni ekk­ert margt annað sem kemst að. Mig langar að verða dug­legri í golfi, er nýlega byrjuð í því en ann­ars hafa síð­ustu ár bara verið vinna og aftur vinna. Og það minnkar ekki núna þegar Gettu betur kemur ofan á hitt. Ég er eig­in­lega nán­ast með lög­heim­ilið í Efsta­leit­inu þessa dag­ana.“

Ég við­ur­kenni að ég er búin að keyra mig svo­lítið út, hefði örugg­lega gott af því að fara í hvíld á Heilsu­hælið í Hvera­gerði.

Krist­jana sagð­ist hafa flutt til Dan­merkur á sínum tíma til að reyna að „finna sig“, er hún búin að því?

„Já, veistu ég held það bara,“ segir hún brött. „Ég er komin með BA-gráðu í mann­fræði og masters-gráðu í mark­aðs­fræði og var alltaf að reyna að finna mig í ein­hverju öðru en íþrótt­unum en það tókst ekki. Námið bætt­ist ofan á alla vinn­una og ég við­ur­kenni að ég er búin að keyra mig svo­lítið út, hefði örugg­lega gott af því að fara í hvíld á Heilsu­hælið í Hvera­gerði, en það er eng­inn tími til þess.“

Krist­jana segir það hafa verið æsku­draum­inn að starfa við íþrótta­f­rétta­mennsku, henni hafi bara ekki dottið í hug fyrr en fyrir nokkrum árum að kona gæti fengið vinnu við að segja fréttir af íþróttum. Mynd / Hallur Karlsson

Þessi draumur um að feta í fót­spor pabba, hefur hann staðið undir vænt­ingum? Er starf íþrótta­f­rétta­manns­ins eins skemmti­legt og þú ímynd­aðir þér?

„Já!“ segir Krist­jana strax. „Ég verð að segja það. Þetta er ofboðs­lega skemmti­leg vinna og eng­inn dagur eins, maður er dálítið á yfir­snún­ingi þegar maður er á vökt­unum. Ég kann vel við það að vera í svona miklum hraða, það hentar mér vel.“

Talar um það sem hún kann best

Nú er oft bent á það að kvenna­í­þróttir fái miklu minni athygli og umfjöllun í fjöl­miðlum en karla­í­þróttir. Hafið þið Edda Sif ein­hverja stefnu um það að leggja meiri áherslu á umfjöllun um íþróttir kvenna?

„Ég held að það ger­ist bara ómeð­vitað, án þess að við séum endi­lega að pæla í því,“ segir Krist­jana. „Mér finnst það bara vera svo eðli­legur hlutur þegar helm­ingur íþrótta­fólks í heim­inum eru konur. Það er í raun­inni furðu­legt hversu fáar konur hafa starfað sem íþrótta­f­rétta­menn hér, mér finnst alveg nauð­syn­legt að það séu konur í þessu starfi og geti end­ur­speglað konur í íþrótta­heim­inum á skjánum.

Sem betur fer er þetta að lag­ast. Núna eru konur í íþrótta­deild­unum á Stöð 2, Mogganum, Vísi og Frétta­blað­inu og það er nátt­úr­lega gjör­sam­lega frá­bært en ekki nóg. Það er 2019 og ég bara skil ekki að við séum ekki fleiri. Ef maður horfir á íþrótta­f­réttir á Norð­ur­lönd­unum eru þar margar, margar, margar konur að vinna til jafns við karl­ana. Mæta á fót­bolta­leiki í úrvals­deild­inni á Englandi og standa á hlið­ar­lín­unni og taka við­töl við bestu þjálf­ara heims og það er ekk­ert óeðli­legt við það. Hérna erum við ein­hvern veg­inn dálítið miklir eft­ir­bátar hvað þetta varðar.

Það er í raun­inni furðu­legt hversu fáar konur hafa starfað sem íþrótta­f­rétta­menn hér.

Mér fannst til dæmis skrýtið eftir HM-stof­una síð­asta sumar að það komu margir að máli við mig og fannst mikið til þess koma hvað ég vissi mikið um þetta og gerði þetta vel. Ég sagði; já, takk, en ég var sjálf í fót­bolta í rúm tutt­ugu ár og skil alveg íþrótt­ina, þannig að mér fannst þessi ummæli skjóta skökku við. Ég sat þarna og tal­aði um það sem ég kann best og það létu allir eins og það væri eitt­hvað magnað afrek. Þetta sat svo­lítið í mér. Ég lagði ofboðs­lega mikið á mig fyrir HM-stof­una, las mér til í marga mán­uði um hin og þessi lið, ég ætl­aði sko ekki að láta hanka mig á neinu.“

Þetta hljómar eins og þú sért mikil keppn­is­mann­eskja, ertu það?

„Ég er rosa­lega mikil keppn­is­mann­eskja,“ segir Krist­jana. „Alveg svaka­leg. Ég var í frá­bæru liði Breiða­bliks upp alla yngri flokk­ana, þar komu þónokkrir Íslands- og bik­ar­meist­aratitlar en svo fór ég í Verzlunarskólann og þá tók félags­lífið við, ég sökkti mér alveg í það. Nemó­sýn­ingar og söngvakeppnir, rit­stjórn skóla­blaðs­ins og eitt­hvað. Þannig að metn­að­ur­inn í fót­bolt­anum sat svo­lítið á hak­anum.“

Mynd / Hallur Karlsson

Talandi um félags­lífið í Verzló, þú hefur ekki reynt að kom­ast í keppn­isliðið í Gettu betur þar?

„Nei, en ég held ég hafi nán­ast gert allt annað en það í félags­lífi skól­ans,“ segir Krist­jana og glottir aftur. „Á þeim tíma var ekki kom­inn kynja­kvóti í keppn­ina og maður leit bara á þetta sem stráka­keppni. Ég held það hafi ekki hvarflað að neinni stelpu á þessum árum að reyna fyrir sér í Gettu betur. Sem betur fer er það liðin tíð og margar gjör­sam­lega frá­bærar stelpur að keppa. Þessir krakkar eru auð­vitað ótrú­legir, ég gapi bara stundum yfir því sem þeir geta. Dáist enda­laust að þeim.“

Plássið er að hlaupa frá okkur og að end­ingu skelli ég einni hefð­bund­inni helg­ar­við­tals­spurn­ingu á Krist­jönu: Hvað með fram­tíð­arplön? Heldurðu að þú verðir í íþrótt­unum þangað til þú ferð á eft­ir­launin?

„Ég held að það verði bara að koma í ljós,“ svarar Krist­jana hugsi. „Ég ætla bara alltaf að hafa það að leið­ar­ljósi að mér eigi að finn­ast gaman í vinn­unni og á meðan mér finnst þetta gaman mun ég halda áfram. Svo er aldrei að vita, ég er með menntun sem ég hef ekk­ert nýtt hingað til og myndi alveg vilja nota. Það getur líka vel verið að við Haddi flytjum til útlanda og ef það ger­ist fer ég kannski í eitt­hvert meira nám. En eins og staðan er núna er ég ekk­ert að hugsa mér til hreyf­ings. Ég er alsæl í vinn­unni minni.“

Myndir / Hallur Karlsson
Förðun / Helga Sæunn Þor­kels­dóttir, alþjóð­legur förð­un­ar­fræð­ingur hjá Lancôme Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina