Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ferðamenn stinga af frá sektum

Árlega fara tugir erlendra ferða­manna sem stöðv­aðir eru af lög­reglu vegna umferð­ar­laga­brota úr landi án þess að greiða sekt­ina. Þótt þeir séu kall­aðir fyrir dóm er ekk­ert sem yfir­völd geta gert til að hafa hendur í hári þeirra ef þeir eru búsettir utan Norð­ur­landa.

Spreng­ing í fjölda ferða­manna und­an­farin ár hefur skilað sér í auknum hag­vexti, miklum fjár­fest­ingum í innviðum og mann­virkjum og störfum í ferða­þjón­ustu og afleiddum störfum hefur fjölgað gríð­ar­lega á öllu land­inu, sér­stak­lega á suð­vest­ur­horn­inu.

Vöxtur grein­ar­innar hefur líka ýmsar aðrar afleið­ingar í för með sér. Ágangur á nátt­úru­auð­lindir, erf­ið­ari leigu­mark­aður fyrir ein­stak­linga og fjöl­skyldur í leit að hús­næði og að mati margra; eins­leit­ari mið­borg, með fjölda lunda­búða og hót­ela.

Svo eru atriði sem hafa ekki fengið jafn­mikla athygli. Í Lög­birt­inga­blað­inu, undir flokknum fyr­ir­köll og ákærur, vekur athygli hund­ruð mála síð­ustu ár þar sem ein­stak­lingar eru kall­aðir fyrir dóm vegna van­gold­inna sekt­ar­greiðslna. Meiri­hluti þess­ara mála er vegna umferð­ar­laga­brota en und­an­farin ár hefur borið á því að hlut­fall ferða­manna sem stinga af úr landi án þess að greiða sektir hefur farið hækk­andi. Hlut­fallið er hæst á Suð­ur­landi og Suðu­nesjum.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá sýslu­manni á Blöndu­ósi sem heldur utan um inn­heimtu sekta er ekk­ert hægt að gera ef sekt­ar­þoli býr utan Norð­ur­landa en samn­ingur er á milli nor­rænu ríkj­anna um að senda slík mál í þar­lenda inn­heimtu. Ef við­kom­andi býr utan Norð­ur­land­anna þá eru ekki samn­ingar á milli ríkja og á það jafnt við um Íslend­inga búsetta utan Norð­ur­land­anna sem og erlenda ferða­menn.

Í fyrra voru birtar vel á átt­unda tug ákæra í Lög­birt­inga­blað­inu. Lang­flestar ákær­urnar eru vegna hraðakst­urs og ölv­unar- og fíkni­efna­akst­urs þar sem erlendir rík­is­borg­arar eða Íslend­ingar búsettir erlendis koma við sögu. Sé litið til þjóð­erna koma flestir hinna brot­legu, um helm­ingur allra, frá löndum Austur-Evrópu ann­ars vegar og Ameríku hins vegar. Athygli vekur að þriðji fjöl­menn­asti hóp­ur­inn er Íslend­ingar búsettir erlendis.

Sektir fyrn­ast á 3-5 árum ef ekki næst í skuld­ara og sak­ar­kostn­aðar á 10 árum. Afskrift­ar­hlut­fall sekta og sak­ar­kostn­aðar af heild eru um 2% á ári en inni í þeirri tölu eru einnig afskriftir vegna gjald­þrots, greiðslu­að­lög­unar, náð­unar og and­láts.

Engar afleið­ingar virð­ast því vera fyrir fólk sem stingur af úr landi án þess að greiða skuld­ina. Ef hins vegar búið er að taka ákvörðun um afplánun vara­refs­ingar og birta sekt­ar­þola áður en hann flytur úr landi er mögu­legt að lýsa eftir við­kom­andi og hand­taka. Ef þessi birta ákvörðun liggur ekki fyrir er ekki heim­ilt að hand­taka fólk fyrir það eitt að eiga útistand­andi sektir.

Eigandi bíla­leigu á Suð­ur­landi sem Mannlíf ræddi við seg­ist verða var við fjölda þess­ara mála en segir að sem betur fer þurfi bíla­leig­urnar ekki að bera tjón vegna þeirra. „Ef þú skoðar þetta vel þá eru þetta örugg­lega sektir upp á hund­ruð millj­óna á ári sem aldrei eru borg­aðar. Það væri fljótt að setja allar bíla­leigur á land­inu á hlið­ina ef við þyrftum að bera tjónið af þessu,“ segir hann en umferð­ar­laga­brot eru skráð beint á öku­mann en ekki eig­anda bif­reið­ar­innar. „Lög­reglan sendir okkur tölvu­póst varð­andi ákveðin brot og við gefum þeim allar upp­lýs­ingar sem við höfum um við­kom­andi öku­mann og þar með er því lokið af okkar hálfu,“ segir eig­andi bíla­leigunna.

Mannlíf hefur ítrekað reynt að fá upp­lýs­ingar frá lög­reglu­stjóra­emb­ætt­unum á Suð­ur­nesjum og Suð­ur­landi varð­andi nákvæman fjölda þess­ara mála, beinan umsýslu­kostnað vegna þeirra og hversu háar fjár­hæðir fyrn­ist á ári vegna ógreiddra sekta. Ekki hafði borist svar áður en blaðið fór í prentun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina