Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk hvatt til að mæta í leðri

Fólk hvatt til að mæta í leðri
Úr kvik­mynd­inni The Captain

Þýskir kvik­mynda­dagar hefj­ast með pompi og prakt í dag. Þetta er í tíunda sinn sem hátíðin er haldin og segir dag­skrár­stjóri Bíó Para­dísar, Aron Víglunds­son, að úrval mynda hafi lík­leg­ast aldrei verið jafn­gott og í ár.

„Við munum sýna breiða flóru af þýskum bíóperlum, sögu­lega nas­ista­mynd, hroll­vekju, ást­ar­sögu, heim­ilda­mynd, bara nefndu það. Úrvalið er ótrú­lega fjöl­breytt svo að allir ættu að geta fundið eitt­hvað við sitt hæfi,“ segir Aron en Bíó Paradís stendur fyrir hátíð­inni í sam­starfi við Goethe Institut í Danmörku og þýska sendi­ráðið á Íslandi.

„Fyrir utan það að þetta skuli vera rjóm­inn í þýskri kvik­mynda­gerð þá verður þetta svo­lítið tón­list­ar­tengt hjá okkur í ár. Við nátt­úr­lega opnum hátíð­ina með Mack the Knife þar sem músík gegnir veiga­miklu hlut­verki og lokum henni með heim­ilda­mynd um plötu­snúða sem hafa verið öfl­ugir á þýsku raf­tón­listar-sen­unni. Á loka­kvöld­inu verður svo bíó­inu breytt í teknóklúbb, en þá verða ljós, tón­list og læti. Dj-gengið Plútó þeytir skífum og fólk er hvatt til að mæta í leðri,“ segir hann hress og bætir við að sjálfur ætli hann að setja upp leð­ur­ka­sk­eiti af því til­efni. „Þannig að það er við­búið að stemn­ingin verði svo­lítið sveitt.“

 Hápunktar hátíð­ar­innar

Spurður hvort það komi til með að verða ein­hverjir hápunktar í ár segir Aron að þeir séu nokkrir og þar beri helst að nefna sýn­ingar á mynd­unum The Captain (Der Haupt­mann), Mack the Knife og TRANSIT. „The Captain fjallar um mann sem er á flótta undan nas­istum í seinni heims­styrj­öld­inni og dul­býr sig sem nas­ista­for­ingja í þýska hernum til að kom­ast lífs af,“ lýsir hann. „Mack the Knife er svona „hvað-ef-mynd“, í þessu til­viki: hvað ef Bertolt Brecht hefði leik­stýrt mynd byggðri á leik­verki sínu og Kurts Weil, hinni umdeildu Túskild­ingsóp­eru. Og TRANSIT hlaut feiki­lega góðar við­tökur þegar hún keppti um gullið á kvik­mynda­há­tíð­inni í Berlín; hún er eina myndin á hátíð­inni sem verður sýnd áfram í Bíó Paradís eftir að Þýskum kvik­mynda­dögum lýkur. Mjög ólíkar myndir en allar áferð­ar­fal­legar, áhrifa­ríkar og hrika­lega flottar.“

Beðið með eftirvæntingu í ár

Eins og fyrr segir er þetta tíunda árið í röð sem Þýskir bíó­dagar fara fram, en að sögn Arons er hátíðin fyrir lif­andis löngu búin að festa sig í sessi sem einn af vin­sælli við­burðum í Bíó Paradís. „Já, hún er fyrir löngu orðin einn af aðsókn­ar­mestu sér­við­burðum í bíó­inu,“ segir hann glað­lega. „Sumir bíða meira að segja spenntir eftir henni í heilt ár. Sem er gaman því þetta er fyrsta hátíðin sem var haldin í bíó­inu eftir að það tók á sig núver­andi mynd. Öllum þessum árum seinna eru Þýskir kvik­mynda­dagar enn jafn­vin­sælir, vin­sælli ef eitt­hvað er, og það segir okkur kannski á hvaða stað hátíðin og sjálft Bíó Paradís eru í dag.“

Þýskir kvik­mynda­dagar standa yfir frá 1. til 10. febr­úar. Allar myndir verða sýndar á þýsku með enskum texta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina