Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kýs hollan og góðan mat frekar en öfgakúra og Keto

Kýs hollan og góðan mat frekar en öfgakúra og Keto
Greta Salóme

Greta Salóme Stef­áns­dóttir kemur fram á djan­gotón­leikum í Iðnó laug­ar­dag­inn 19. jan­úar. Nýtt lag eftir hana, Mess it up, kemur svo út 1. febr­úar. Greta Salóme ætlar að vera meira heima þetta árið til að spila og semja en í fyrra var hún að spila erlendis um hálft árið. Hún var farin að sakna þess að vera heima á Íslandi þar sem hún getur stundað eitt helsta áhuga­mál sitt sem er elda­mennska.

„Django er einn angi af djass­tón­list,“ segir Greta Salóme Stef­áns­dóttir. „Það skemmti­lega við django er að það geta allir hlustað á django og fund­ist það skemmti­legt. Maður verður svo glaður þegar maður hlustar á þessa tón­list,“ segir hún en Greta sal­ome kemur fram á djang­ótón­leikum í Iðnó í kvöld, laug­ar­dag­inn 19. jan­úar. Um er að ræða nýja tón­list­ar­há­tíð, Djan­godaga í Reykja­vík þar sem heiðri belgíska gít­ar­frum­kvöð­uls­ins Django Rein­hardt verður haldið á lofti.

Gít­ar­leik­ar­arnir Gunnar Hilm­ars­son og Jóhann Guð­munds­son ásamt Leifi Gunn­ars­syni bassa­leik­ara eru á meðal ann­arra flytj­enda á laug­ar­dags­kvöld­inu. „Þetta eru strákar sem ég hef spilað með lengi og ég myndi segja að það væri svo­lítið þeim Gunnari, Leifi og Jóhanni að þakka að ég kynnt­ist djangóinu. Ég og Gunni kynn­umst í MR og byrj­uðum að spila saman fljót­lega eftir að námi lauk og ég fann þá hvað ég fíl­aði djang­ótón­list­ina vel.“

Mess it up

Greta Salóme hefur haft í nógu að snú­ast í tón­list­inni síð­ustu ár og var nýliðið ár sér­stak­lega anna­samt. Hún var erlendis um hálft árið og kom heim á milli tón­leika og sýn­inga auk þess sem hún var hluta árs­ins hjá Disney þar sem hún kom fram eins og hún hefur gert und­an­farin ár.

„Ég er búin að vera á enda­lausu flakki og spila út um allt. Ég ákvað í lok síð­asta árs að vera meira á Íslandi þetta árið og æfa mig og semja. Það er svo merki­legt þegar maður er búinn að vera svona mikið á flakki eins og ég hef gert síð­ustu ár – og sér­stak­lega síð­asta ár – hvað maður fer að sakna Íslands mikið. Þá er svo gott að vera heima og virki­lega ein­beita sér að því að vera heima. Ég reyni að nýta tím­ann vel núna á meðan ég er á Íslandi og er að æfa og taka upp. Ég er að fara að gefa út lagið Mess it up 1. febr­úar og svo gef ég út EP-plötu í kjöl­farið á því þannig að ég er á fullu við að taka upp og und­ir­búa það allt.“

Engir öfgakúrar

Það að vera heima gerir það líka að verkum að Greta Salóme getur sinnt einu af sínum helstu áhuga­málum meira en ella en það er elda­mennska. „Það er alltaf best að vera heima. Það er alveg magnað. Ég var farin að hlakka til að gera hluti eins og að elda mat­inn minn heima, setja í þvotta­vél, ryk­suga og að keyra Toyota-bíl­inn minn þegar ég vil.“

Ég byrj­aði að elda þegar ég var mjög ung en mér fannst alltaf best að vera heima hjá mömmu og pabba

Greta Salóme seg­ist því miður ekki hafa haft mik­inn tíma fyrir áhuga­mál í gegnum árin en elda­mennska er þó áhuga­mál. Hún hefur stundað íþróttir og lík­ams­rækt í langan tíma og leggur almennt áherslu á hollan mat.

„Ég byrj­aði að elda þegar ég var mjög ung en mér fannst alltaf best að vera heima hjá mömmu og pabba og reyna að finna ein­hverja upp­skrift eða búa til rétt frá grunni og dunda mér við það. Svo held ég að þetta komi líka til af því að ég ólst upp á heim­ili þar sem var mik­ill gesta­gangur. Ég hef það frá mömmu og pabba að allir séu vel­komnir hvenær sem er og út frá því spinnst að elda fyrir fólk.“

Greta Salóme seg­ist leggja áherslu á hollan mat og leggur mikla áherslu á græn­meti. „Ég borða frekar kol­vetn­issnauðan mat. Ég hef verið á keto og prófað alls konar kúra en ég er ekki á neinum öfga­kúr núna. Ég reyni að elda mat­inn þannig að hann sé ekki bara hollur heldur verður mig að langa virki­lega í hann.“

Hver er upp­á­halds­mat­ur­inn? „Það er án efa Nóa Síríus-súkkulaði með sjáv­ar­salti. Ég reyni að sýna hvað ég er að elda og borða á Snapchat og Instagram og fólk virð­ist hafa ótrú­lega mik­inn áhuga á því og er alltaf að senda mér spurn­ingar. Ef fólk vill fylgj­ast með því þá er not­enda­nafnið greta­sal­ome bæði á Snapchat og Instagram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina