Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Var kallaður útfararstjóri Samfylkingarinnar

Það hvarfl­aði ekki að Loga Ein­ars­syni þegar hann gekk inn á lands­fund Sam­fylk­ing­ar­innar snemma sum­ars 2016 að fimm mán­uðum síðar yrði hann orð­inn for­maður flokks­ins. Hann var þá óbreyttur bæj­ar­full­trúi á Akureyri og nán­ast eng­inn utan hans heima­byggðar þekkti deili á honum. Logi tók við Sam­fylk­ing­unni í molum, hún hafði naum­lega sloppið við að þurrkast út af þingi og var upp­full af inn­an­meinum. Því var jafn­vel spáð að Logi yrði síð­asti for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Var kallaður útfararstjóri Samfylkingarinnar
Logi Ein­ars­son

„Ég var lát­inn vita af því bæði af félögum og and­stæð­ingum að þetta væri von­laust tafl, að þetta væri búið. Ein­hverjir nefndu mig útfar­ar­stjóra Sam­fylk­ing­ar­innar. Ég held að það hafi frekar hert mig, enda var ekk­ert úr háum söðli að detta,“ segir Logi um þá stöðu sem hann var skyndi­lega kom­inn í, þ.e. að vera for­maður stjórn­mála­flokks.

Fimm mán­uðum áður hafði Logi gengið sem óbreyttur flokks­maður inn á lands­fund Sam­fylk­ing­ar­innar á Grand hót­eli. Loftið var lævi blandið. Í kosn­ing­unum þremur árum áður hafði Sam­fylk­ingin sett Íslands­met í fylgis­tapi og linnu­lausar deilur um ástæður þess og gagn­rýni á for­ystu flokks­ins fór fram fyrir opnum tjöldum. Fram undan var for­manns­slagur á milli Magnúsar Orra Schram og Oddnýjar Harð­ar­dóttur en Árni Páll Árnason hafði áður dregið fram­boð sitt til baka.

Nokkrum dögum fyrir umræddan lands­fund fór Logi að velta því fyrir sér hvort hann ætti að gefa kost á sér í emb­ætti vara­for­manns færi svo að Oddný færi með sigur af hólmi. „Ég hugs­aði hvort ég gæti boðið upp á öðru­vísi og breið­ari ásýnd fyrir flokk­inn sem sveit­ar­stjórn­ar­maður, lands­byggð­ar­maður og auð­vitað karl­maður. Ég tal­aði við mitt nán­asta fólk og ákvað að ef svo færi að Oddný sigr­aði þá myndi ég bjóða mig fram sem ég og gerði. Svo hefur það haft afleið­ingar sem ég reikn­aði með, sótt­ist ekki eftir og bjóst ekki við.“

Sækist ekki eftir leiðtogahlutverki en enda þar

Það verður seint sagt að póli­tíkin sé Loga í blóð borin. Hann er fæddur og alinn upp á Akureyri, sonur kenn­ara­hjóna og eng­inn honum náinn hefur tekið þátt í stjórn­mála­starfi. Sjálfur sótti hann nokkra fundi hjá Alþýðu­banda­lag­inu á mennta­skóla­ár­unum en um miðjan níunda ára­tug síð­ustu aldar hélt hann til Noregs, þá tví­tugur að aldri, til að læra arki­tektúr. Þar með lauk afskiptum hans af stjórn­málum næstu tvo ára­tug­ina. Það er ef undan er skilin hönn­un­ar­vinna hans fyrir Vinstri græna þar sem hann teikn­aði gamla merki flokks­ins sem var í notkun allt fram til árs­ins 2016.

„Ég byrj­aði ekki í póli­tík af ein­hverri alvöru fyrr en eftir hrunið. Þá sat ég eins og margir aðrir Íslend­ingar og gapti út í loftið milli vonar og ótta og skildi ekk­ert hvað var að ger­ast en fannst að maður þyrfti á ein­hvern hátt að taka þátt í þessu,“ segir Logi sem hóf að mæta á fundi hjá Sam­fylk­ing­unni. „Svo var opið próf­kjör í febr­úar 2009 og ég var þá alveg nýr í flokknum en ákvað að hella mér í það og náði þriðja sæti en fell niður í fjórða sæti vegna kynja­reglu sem var bara hið besta mál. En þetta nægði til þess að ég varð vara­þing­maður 2009-2013, kom nokkrum sinnum inn án þess þó að rista djúp spor í stjórn­mála­sög­una.“

Ég hef svo sem ekki verið að sækj­ast eftir áhrifum eða leið­toga­hlut­verki en ég enda þar.

Logi hellti sér í bæj­ar­málin á Akureyri eftir þetta og skip­aði þriðja sætið á lista flokks­ins í bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2014. Efstu tveir full­trúar list­ans helt­ust hins vegar úr lest­inni og skyndi­lega var Logi orð­inn bæj­ar­full­trúi. „Það er pínu­lítið mín saga. Ég hef svo sem ekki verið að sækj­ast eftir áhrifum eða leið­toga­hlut­verki en ég enda þar.“

Sárir og langþreyttir flokksmenn

Haustið 2016 er óvænt boðað til þing­kosn­inga eftir að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks sprakk í kjöl­far upp­ljóstrana úr Panama-skjöl­unum. Nið­ur­staða þeirra kosn­inga var hreint afhroð fyrir Sam­fylk­ing­una, 5,7 pró­sent atkvæða og ein­ungis þrír þing­menn. Logi náði hins vegar að oln­boga sig inn á þing eins og hann orðar það sem eini kjör­dæma­kjörni þing­maður flokks­ins. „Það stefndi í þetta fyrir kosn­ingar, skoð­ana­kann­anir mældu okkur illa og við höfðum lítið traust meðal kjós­enda og við endum þar þrjú.

Daginn eftir til­kynnti Oddný mér það að hún ætl­aði að stíga til hliðar og axla ábyrgð á ósigrinum þrátt fyrir að það sé á engan hátt hægt að kenna henni um hann. Ég bað hana um að hugsa málið en hún var alveg sann­færð.“ Logi tekur því við kefl­inu sem vara­for­maður. „Þá þurfti ég að bretta upp ermar og brosa framan í mynda­vél­arnar og láta líta út fyrir að vera öruggur þrátt fyrir að maður væri ótta­lega lít­ill innra með sér.“

Logi tók við Sam­fylk­ing­unni á botn­inum. Flokk­ur­inn hafði nán­ast þurrkast út í þing­kosn­ingum og flokks­menn voru lang­þreyttir og sund­ur­lyndir.

Aðkoman fyrir Loga, ef það má orða það svo, var hreint ekki fal­leg. Sam­fylk­ingin, sem hafði verið stofnuð til að sam­eina vinstri væng­inn og verða mót­vægi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, var orðin að smá­flokki sem rétt náði að skríða yfir fimm pró­senta þrösk­uld­inn. Flokks­menn voru bæði sárir og lang­þreyttir eftir langvar­andi inn­an­flokksá­tök. „Það er auð­vitað þannig að kjós­endur sjá á fólki hvort því líði vel, hvort þeir eru vinir og hvort hóp­ur­inn er sam­stilltur. Ég held ein­fald­lega að kjós­endur hafi séð það á okkur að svo var ekki.“

Það er auð­vitað þannig að kjós­endur sjá á fólki hvort því líði vel, hvort þeir eru vinir og hvort hóp­ur­inn er sam­stilltur.

Höfðum ekkert í það kompaní að gera

Það stefndi í erfitt kjör­tíma­bil fyrir Loga og félaga hans enda útheimtir það mikla vinnu að halda úti þriggja manna þing­flokki. „Hvort við hefðum haldið þetta út í fjögur ár, ég veit það ekki,“ segir Logi en eins og svo oft áður voru utan­að­kom­andi aðstæður honum í hag. Rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar sprakk og enn og aftur var boðað til kosn­inga þar sem Sam­fylk­ingin rúm­lega tvö­fald­aði fylgi sitt og bætti við sig fjórum þing­mönnum.

„Þó að það væri auð­vitað ekki spenn­andi að fara í kosn­ingar svo skömmu eftir að hafa farið í gegnum þessar erf­iðu kosn­ingar þá eygðum við samt ákveðið sókn­ar­færi og mér fannst skipta máli þá að við stilltum upp fjöl­breyttum ein­stak­lingum á lista. Við tefldum fram nýju fólki og ég tel okkur hafa tek­ist vel upp. Við fengum ágætis útkomu út úr þeim kosn­ingum og erum með sjö þing­menn núna og á því hef ég getað byggt.“

Logi eygði tæki­færi til að koma flokknum í rík­is­stjórn því fljót­lega eftir kosn­ingar hóf hann stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður við VG, Pírata og Framókn­ar­flokk um rík­is­stjórn­ar­sam­starf. Þeim við­ræðum var hins vegar slitið eftir þriggja daga við­ræður og fór svo að VG fór í sæng með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki.

Logi segir þá nið­ur­stöðu von­brigði enda ekk­ert sem benti til ann­ars á þeim tíma­punkti en að flokk­arnir væru sam­huga. „Sam­fylk­ingin og Vinstri græn voru sam­mála í skatta- og vel­ferð­ar­póli­tík, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn á sínum bestu dögum er með sterka félags­lega taug og hefur alveg getað unnið í þá átt­ina líka, Píratar ábyrgt og gott fólk sem er nauð­syn­legt að hafa á þing­inu. Ég sá ekk­ert, ég sá enga hindrun. Von­brigðin snér­ust fyrst og fremst um það hvað fólk gafst auð­veld­lega upp,“ segir Logi.

„Það er ekk­ert leynd­ar­mál að það var orðað við okkur að koma með í það stjórn­ar­sam­starf en það var ekk­ert þar fyrir okkur. Það lá alveg fyrir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var ekki að fara að gera þær grund­vall­ar­breyt­ingar á skatt­kerf­inu eða vel­ferð­ar­kerf­inu sem þjóðin þarf. Núna ætla þeir sér ekki að hrófla við sjáv­ar­út­vegs­kerf­inu og ekki einu sinni skoða gjald­miðla­málin þannig að við höfðum ekk­ert inn í það kompaní að gera.“

Kannski lengra á milli VG og Samfylkingar en ég hélt

Logi segir von­brigðin að hafa ekki náð að mynda rík­is­stjórn frá miðju og til vinstri sár­ari en ella í ljósi kjara­við­ræðna sem nú standa yfir. Þar skipti aðkoma rík­is­valds­ins miklu máli. „Það er auð­vitað það sem skorti strax í stjórn­ar­sátt­mál­anum fyrir ári síðan. Þá lá alveg fyrir að þessi vetur kæmi með þessum kröfum en rík­is­stjórnin hefur ekki lagt neitt hald­fast á borðið“. Alvöru­fé­lags­hyggju­stjórn hefði for­gangs­raðað öðru­vísi, svo sem með tekju­skiptu skatt­kerfi sem hlífir lág­tekju- og með­al­tekju­fólki.

„Ég hélt í sak­leysi mínu og ein­feldni að þetta væri nákvæm­lega sama skattapóli­tík og Vinstri græn töl­uðu um fyrir kosn­ingar. Ég hélt að það væri forms­at­riði að þessir flokkar tveir næðu að minnsta kosti saman um þetta. En kannski snýst þetta rík­is­stjórn­ar­sam­starf svo um eitt­hvað allt annað en hægri og vinstri. Kannski snýst það einmitt um íhalds­semi, um að við­halda gömlum kerfum sér­hags­muna­hópa. Kannski snýst það um að við­halda rétti útgerð­ar­innar til þess að sitja á sam­eig­in­legri auð­lind þjóð­ar­innar og nýta hana fyrir litla pen­inga. Kannski snýst þetta um hags­muni land­bún­að­ar­ins ein­göngu en ekki hags­muni neyt­enda. Kannski snýst þetta um það að afneita því að stór og örugg mynt geti skilað ávinn­ingi fyrir launa­fólk. Kannski skilur meira á milli Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna en ég í ein­feldni minni hélt. Kannski eru þessir flokkar eðl­is­ó­líkir.“

Ég held að þetta sé fyrst og fremst rík­is­stjórn aðgerða­leysis.

Þetta aðgerða­leysi rík­is­stjórn­ar­innar í kjara­mál­unum telur Logi vera ein­kenn­andi fyrir rík­is­stjórn­ina. „Þau tala um að þau hafi siglt lygnan sjó og komið mörgum málum í gegn. Ég held að þetta sé fyrst og fremst rík­is­stjórn aðgerða­leysis. Hún er ekki að taka á neinum málum, hún er að við­halda kerfum en hún er ekki að gera neitt. Það er eitt ár rúm­lega síðan þessi rík­is­stjórn var stofnuð og það lá alveg fyrir að það þyrfti að fara í hús­næð­isá­tak. Þess vegna fór Sam­fylk­ingin strax í að búa þær til­lögur til en við vöknum upp við það árið 2019 að rík­is­stjórnin er að ákveða ein­hvern starfs­hóp. Ég veit ekki af hverju. Mér finnst vera droll­ara­háttur á þeim, þau eru sein til verka og fyrst og fremst finnst mér þau vera vinna tölu­vert á for­sendum stærsta flokks­ins í rík­is­stjórn­inni, Sjálf­stæð­is­flokks­ins.“

Hvað væruð þið að gera öðru­vísi ef þið sætuð í rík­is­stjórn?

„Við hefðum að sjálf­sögðu ráð­ist í breyt­ingar á skatt­kerf­inu sem hefðu hlíft með­al­tekju- og lág­tekju­fólki og lagt aðeins meiri álögur okkur betur stæðu. Við hefðum ráð­ist í meiri stór­sókn í mennta­málum, að sjálf­sögðu hafið vinnu með öðrum flokkum um breyt­ingar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu sem leiddu til þess að þjóðin fengi meiri og sann­gjarn­ari arð af sam­eig­in­legri auð­lind. Við sjáum núna að veiði­gjöldin eru lækkuð um um 3-4 millj­arða en það er líka verið að lækka fé til haf­rann­sókna sem er und­ir­staða ekki bara efn­hags okkar heldur líf­ríkis líka. Við hefðum útvíkkað gjald­miðla­nefnd­ina og látið hana líka skoða hvaða hags­munir gætu falist í því að  vera með aðra mynt en krón­una í stað­inn fyrir að stinga hausnum í sand­inn eins og strútur og segja „krónan skal það vera“. Það er svo margt sem við hefðum gert öðru­vísi.“

Það er svo margt sem við hefðum gert öðru­vísi.

Gætum við verið að horfa á ófyrirséðar aðstæður

Það stefnir í mik­inn átaka­vetur á vinnu­mark­aði. Himinn og haf skilja að kröfur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar ann­ars vegar og atvinnu­rek­enda hins vegar í yfir­stand­andi kjara­við­ræðum og ekki er að heyra á samn­ings­að­ilum að það þok­ist í sam­komu­lags­átt. Þvert á móti má heyra á for­ystu verka­lýðs­fé­lag­anna að hún séu farin að und­ir­búa verk­falls­að­gerðir. Aðspurður út í hvort Sam­fylk­ingin styðji kröfur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, meðal ann­ars um 425 þús­und króna lág­marks­laun, svarar Logi: „Ef þú horfir á það hvað þú færð fyrir 425 þús­und krónur á mán­uði; þegar þú þarft að leigja á dýrum og erf­iðum mark­aði í Reykja­vík, þegar þú þarft að vera með tvö börn í leik­skóla, íþróttum og félags­starfi, kaupa mat sem er mörgum tugum pró­sentna dýr­ara en í nágranna­löndum okkar, þá er ég ekk­ert svo viss um að 425 þús­und geri meira en að dekka einn mánuð í útgjöldum.

Á end­anum snýst þetta um að fólk geti lifað.

Ef þú horfir á þetta þannig þá er þetta bara ósköp eðli­legt. Á end­anum snýst þetta um að fólk geti lifað. Hvort að það er eitt­hvað sem geti stefnt ein­hverjum stöð­ug­leika í hættu fer það eftir því hvort ein­hverjir aðrir hlutir eru gerðir líka. Það er ekk­ert víst að þessar kröfur hefðu orðið upp á þessa krónu­tölu ef hér hefði verið mynduð félags­hyggju­stjórn sem hefði lagt fram breyt­ingar á skatt­kerfi og styrkt félags­legar aðstæður fólks.“

Logi von­ast til þess að samn­ings­að­ilar nái skyn­sam­legri lend­ingu og að rík­is­stjórnin stígi fram með aðgerðir lág­launa­fólki til hags­bóta. „Ég held hins vegar að þau lendi í veru­legum vand­ræðum ef þau koma ekki fram með neitt bita­stætt. Þá getum við verið að horfa á ófyr­ir­séðar aðstæður í íslenskum stjórn­málum. Ef rík­is­stjórnin er ekki til­búin til að gera neitt, þá þarf hún að fara frá. Vegna þess að þá þarf ann­ars konar stjórn. Ég vil ekki að rík­is­stjórn springi við þessar aðstæður en ef það verður erum við til­búin í kosn­ingar.“

Það hefur löngum verið sterk taug á milli verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og jafn­að­ar­manna­flokka á Íslandi en á síð­ustu árum virð­ist sem þessi tengsl hafi rofnað. Þetta hefur orðið sér­stak­lega áber­andi með til­komu nýrrar for­ystu innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar sem sækir sitt póli­tíska bak­land til hins nýstofn­aða Sós­í­alista­flokks fremur en klass­ísku vinstri flokk­anna. Hafa vinstri flokk­arnir alveg misst tengslin við verka­lýðs­hreyf­ing­una?

„Ég sé þá taug en ég hef auð­vitað tekið eftir því að það eru ekk­ert allir sem koma auga á hana. Sumum finnst hún hafa trosnað og ein­hverjum slitnað. Hún birt­ist auð­vitað fyrst og fremst í því hversu sam­hljóða áherslur Alþýðu­sam­bands­ins, til dæmis, og þeirra mála sem að við höfum lagt fram og tölum fyrir í þing­inu eru. Þetta eru sömu málin. Á þann hátt er taugin mjög sterk og sýni­leg. Hvort hún end­ur­spegl­ast í því að for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­seti ASÍ sitja og drekka kaffi tvisvar í viku og ræða málin, nei það er ekki þannig. Við reynum að vera í sam­bandi við þau og það mætti gjarnan okkar vegna vera meira.“

Fennir ekki yfir Klaustursmálið

Þing kemur saman að nýju eftir jóla­leyfi í næstu viku. Síðustu þing­fund­irnir í fyrra voru þing­mönnum þung­bærir enda fóru þeir fram í skugga Klaust­urs­máls­ins þar sem sex þing­menn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins fóru ófögrum orðum um til­tekna kollega sína á þingi. For­sætis­nefnd þings­ins hugð­ist vísa mál­inu til siða­nefndar Alþingis en þangað komst málið aldrei þar sem allir nefnd­ar­menn lýstu sig van­hæfa, að kröfu Mið­flokks­ins. Logi kveðst ekki geta sagt til um hvert fram­hald máls­ins verði.

„Það bíða okkar mjög mörg mál sem tengj­ast kjara­samn­ingum, veggjöldum, þriðja orku­pakk­anum og ýmis­legt annað og við verðum að vera starf­hæft þing. Ég mun auð­vitað bara mæta í vinn­una og vinna að þeim málum sem ég er kjör­inn til að gera. En umræðan um hvernig okkur miði áfram í átt að betra sam­fé­lagi, meira jafn­rétti, þar sem minni­hluta­hópar og fatl­aðir eru virtir, sú umræða og sú vinna verður að halda áfram á öllum sviðum sam­fé­lags­ins. Ég held að það fenni ekki yfir þetta. Á end­anum er starfið sér­stakt vegna þess að þú ert kjör­inn af þjóð­inni til þess að gegna því í til­tek­inn tíma og það er þjóðin sem getur hafnað þér. Ég er sann­færður um að þetta mál er ekki búið. Við eigum öll eftir að fara í kosn­ingar þar sem við erum dæmd af okkar verkum og orðum.“

Ég tók því frekar létt­vægt að vera kall­aður trúður sem dansar á strápilsum næstum því á typp­inu, það truflar mig ekki neitt.

Sjálfur var Logi á meðal þeirra sem komu við sögu í Klaust­urs­upp­tök­unum er Gunnar Bragi Sveins­son vitn­aði til Loga sem manns­ins í strápils­inu „sem dans­aði nán­ast á typp­inu með Skrið­jöklum“. Logi seg­ist ekki taka slíkar blammer­ingar nærri sér.

„Eitt er hvort þú fellir ein­hverja póli­tíska sleggju­dóma um and­stæð­inga þína sem meiða ekk­ert. Svo eru aðrir hlutir sem voru gróf­ari og niðr­andi um kyn og jafn­vel hópa sem eru veikir fyrir. Það er greina­munur þar á. Ég tók því frekar létt­vægt að vera kall­aður trúður sem dansar á strápilsum næstum því á typp­inu, það truflar mig ekki neitt. Ég hef talað við Gunnar Braga um þau orð sem hann lét falla í minn garð. Ég tek þeim ummælum ekk­ert alvar­lega. Það voru önnur ummæli sem voru miklu verri, sárs­auka­fyllri, for­dóma­fyllri.“

Býst við Ágústi Ólafi í febrúar

En það voru ekki bara Mið­flokks­menn sem tóku sér leyfi frá þing­störfum vegna hneyksl­is­mála því Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, fór í tveggja mán­aða leyfi eftir að trún­að­ar­nefnd Sam­fylk­ing­ar­innar áminnti fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni gegn Báru Huld Beck, blaða­manni á Kjarn­anum. Logi gerir ráð fyrir að Ágúst Ólafur snúi til baka í febr­úar. En nýtur hann trausts innan flokks­ins?

„Ég get ekki talað fyrir hvern ein­asta félags­mann í Sam­fylk­ing­unni en ég að minnsta kosti trúi því að fólk, þó að því verði jafn­al­var­lega á og geti hrasað sem er nú einu sinni saga manns­ins frá örófi alda, eigi að geta fengið fyr­ir­gefn­ingu ef það raun­veru­lega iðr­ast og leitar leiða til að bæta ráð sitt. Það hefur hann verið að gera þannig að þetta er í hönd­unum á honum.“

Ágúst Ólafur gerði erfitt mál verra þegar Bára Huld steig fram og sagði þing­mann­inn hafa gert lítið úr hegðun sinni, í yfir­lýs­ingu þar sem hann greindi frá mál­inu. „Ég ætla ekki að fara út í hans við­brögð við þessu eða hvernig hann gerði það, hann verður að svara fyrir það sjálfur. Sam­fylk­ingin kom ekki að þeirri yfir­lýs­ingu, við sáum ekki inni­haldið. Mér fannst hins vegar akkúrat þetta mál sýna hvað það skiptir miklu máli að flokkar hafi hlut­lausar siða­nefndir og úrskurð­ar­nefndir sem í situr fag­fólk þannig að þú getir boðið þeim sem kvarta yfir óásætt­an­legri hegðun upp á hlut­lausa með­ferð sem hægt er að treysta.

En eiga mál sem þessi heima á borði flokks­stofn­ana, er ekki hrein­leg­ast að vísa þeim til þar til bærra yfir­valda?

„Samkvæmt 4. grein siða­reglna okkar þá er það þannig að ef mál eru lík­leg til að varða við refsi­lög­gjöf­ina þá eru þolendur hvattir til og fá hjálp frá úrskurð­ar­nefnd­inni til að leita með málið til lög­reglu. Ef kæmi upp mál er varðar börn eru þau send beint til barna­vernd­ar­yf­ir­valda. Þannig að Sam­fylk­ingin er ekk­ert að halda inni hjá sér neinum málum er varða lög­brot. Það er ein­ungis fjallað um mál sem eru ósæmi­leg, ósið­leg. Í Sam­fylk­ing­unni eru 16-17 þús­und manns, þar er hvorki verra né betra fólk en ann­ars staðar í sam­fé­lag­inu. Það segir sig sjálft að í svona stórum félags­skap þá koma upp erfið mál. Fólki verður á, fólk gerir mis­tök. Það er mjög mik­il­vægt að við getum búið til sam­fé­lag, boðið upp á fundi, aðstöðu og umhverfi þar sem konum, ungu fólki og öllum líður vel í og eru öruggir vissir um að ef eitt­hvað svona kemur upp, þá fer það ekki inn á skrif­stofu til for­manns og undir teppi.“

Sam­fylk­ingin er ekk­ert að halda inni hjá sér neinum málum er varða lög­brot.

Fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Helgi Hjörvar, hefur sömu­leiðis verið sak­aður um áreitni gagn­vart konum. Aðspurður út í það mál segir Logi að það hafi aldrei komið inn á hans borð enda hafi Helgi ekki verið kjör­inn þing­maður eða gegnt trún­að­ar­störfum fyrir flokk­inn eftir að hann var kjör­inn for­maður.

„Ég hef kynnt mér það mál eins og hægt er. Þar lá það fyrir að það var eng­inn sem stóð á bak við kvörtun­ina – eng­inn sem kom fram undir nafni. Þess vegna bjuggum við þessa trún­að­ar­nefnd til, til þess að sá sem kvartar geti verið öruggur um að njóta nafn­leyndar en geti samt staðið á bak­við kvörtun­ina.“

Braggamálið komið út fyrir það sem eðlilegt er

Það liggur beint við að spyrja arki­tekt­inn Loga út í borg­ar­málin þar sem Sam­fylk­ingin hefur haft mikið um það að segja hvernig borgin þró­ast. Gríð­ar­lega mikil upp­bygg­ing hefur átt sér stað í mið­borg­inni und­an­farin ár og svo hefur megnið af vetr­inum farið í að þræta um eina til­tekna bygg­ingu, bragg­ann fræga.

„Reykja­vík­ur­borg hefur á síð­ustu 100 árum þró­ast að mörgu leyti á afleitan hátt og hún er auð­vitað dæmi um þetta amer­íska módel sem varð til í upp­hafi 20. ald­ar­innar þegar fólk var að eign­ast einka­bíl í stað­inn fyrir að þú byggðir á þess­ari hefð­bundnu evr­ópsku borg með þétt­ari land­notkun. Ég get alltaf sem arki­tekt haft mína per­sónu­lega skoðun hvort það hafi tek­ist vel upp með ein­stakt hús, hvort mér finn­ist það fal­legt eða ljótt en ég held að almennt að þær breyt­ingar sem gerðar hafa verið séu til bóta. Reykja­vík­ur­borg hefur verið að leiða mjög metn­að­ar­fulla íbúð­ar­upp­bygg­ingu og kannski þá metn­að­ar­fyllstu sem við höfum séð“

Reykja­vík­ur­borg hefur á síð­ustu 100 árum þró­ast að mörgu leyti á afleitan hátt og hún er auð­vitað dæmi um þetta amer­íska módel sem varð til í upp­hafi 20. ald­ar­innar.

Logi telur hins vegar að of mikið hafi verið gert úr bragga­mál­inu. „Það koma upp vís­bend­ingar um mikla fram­úr­keyrslu og ekki ætla ég að afsaka það. Í kjöl­farið á því kemur út skýrsla innri end­ur­skoð­unar, þar finnst mér ábyrgð­ar­keðjan liggja nokkuð ljós fyrir. Það er sjálf­sagt mál að fjalla um þetta mál og það er ekki létt­vægt þegar farið er illa með almannafé. Mér finnst þetta hins vegar vera komið tölu­vert langt út fyrir það sem eðli­legt er. Þar með er ég ekki að segja að öllum þessum pen­ingum hafi verið illa varið því þetta er að mörgu leyti merki­legt hús og hluti af okkar bygg­inga­sögu.“

Strápils til að krydda sjóvið

Utan stjórn­mál­anna eru það fyrst og fremst sköpun og listir sem eiga hug og hjarta Loga. Samhliða kenn­ara­starf­inu var faðir hans mynd­list­ar­maður og áhugi Loga á þeirri iðju hans leiddu hann út í arki­tektúr og hefur hann rekið eigin stofu í 14 ár. En Logi vakti fyrst athygli á ann­ars konar list­sköpun því hann var með­limur í hinni goð­sagna­kenndu gleði­hljóm­sveit Skrið­jöklum á 9. ára­tugnum en það er einmitt þar sem Gunnar Bragi sótti umrædda til­vitnun á Klaust­urs­barnum og vitnað er í að framan. Logi fékk það óvenju­lega hlut­verk í hljóm­sveit­inni að vera dans­ari og útskýrir hvers vegna.

„Við vorum nátt­úr­lega fjör­ugur félags­skapur ungra manna og virki­lega í baldn­ari kant­inum í árgangnum og höfðum vit á að virkja það í hljóm­sveit­ar­bras í stað­inn fyrir eitt­hvað verra. Við vorum átta eða níu saman og þessi hljóm­sveit var stofnuð þótt þetta hafi meira verið eins og ung­menna­fé­lag. Það var ekk­ert inni í mynd­inni að það yrðu bara teknir fjórir bestu hljóð­færa­leik­ar­arnir og hinir skildir út undan. Þannig að það var fyllt upp í hlut­verk eftir getu hvers og eins og af því að ég var ekki bestur og ekki næst bestur á gítar, þá þurfti að finna annað hlut­verk fyrir mig og ég var bara dans­ari.“

Varstu lát­inn dansa í strápilsi?

„Til að krydda sjó­við gekk ekk­ert upp að koma fram í venju­legum fötum heldur þurftum við að klæða okkur upp á og ég man að ég var tölu­vert oft í pilsum og ein­hverjum gærum. Líklega hefur Gunnar Bragi ein­hvern tíma komið í Miðgarð og ég þá verið í pilsi. Ég efast samt um að það hafi verið það stutt að það hafi verið ósið­legt. Þessu fylgdi auð­vitað tölu­vert fjör og kannski ekki allt sem borgar sig að segja. Þetta var tölu­verð útgerð og hljóm­sveitin átti tölu­vert af vin­sælum lögum en það er gall­inn að dans­inn sést ekki á hljóm­plöt­unum.“

Líklega hefur Gunnar Bragi ein­hvern tíma komið í Miðgarð og ég þá verið í pilsi.

Pólitíkin er hliðarspor

Það er ekki hægt að segja að Logi hafi fengið langan tíma til að aðlag­ast nýju hlut­verki í stjórn­málum eftir að hafa starfað sem arki­tekt í um ald­ar­fjórð­ung. Hann var skyndi­lega kom­inn í sviðs­ljós fjöl­miðl­anna og eitt af því sem kom honum á óvart var að fólk fór að gera athuga­semdir við klæða­burð hans. „Þá var fyrst verið að láta mig vita að ég ætti ekki að vera svona klæddur heldur hinsegin. Ég er á sex­tugs­aldri og búinn að starfa allt mitt líf í ein­hverju allt öðru umhverfi og ákvað þegar ég kom hingað að vera í nákvæm­lega eins fötum og ég var þar. Það kom mér á óvart hvað fólk hafði miklar skoð­anir á því.“

Logi segir póli­tík­ina hlið­ar­spor á hans ferli og seg­ist stað­ráð­inn í að ljúka starfs­ferli sínum sem arki­tekt.

Hafðir þú á ein­hverjum tíma­punkti áhyggjur af því að þú værir kom­inn í hlut­verk sem þú myndir ekki ráða við?

„Ég var örugg­lega að hugsa: mun þetta verða hægt? Mun þetta ganga? Flokk­ur­inn orð­inn þrír þing­menn og maður velti því fyrir sér hvort þetta væri búið. Ég held að hræðslan hafi snú­ist meira um það frekar en að mér fynd­ist óþægi­legt í hvaða stöðu ég var. Ég hef oft lent í alls konar stöðum þar sem ég hef bæði gert mig að fífli og gengið ágæt­lega. Ég er ekk­ert við­kvæmur fyrir sjálfum mér en þarna var ég allt í einu kom­inn með flokk í hend­urnar.“ Segist Logi hafa fengið ýmis mis­vísandi skila­boð, sumir sögðu honum að hann yrði að taka sæti í rík­is­stjórn svo að flokk­ur­inn lifði af á meðan aðrir ráð­lögðu honum ein­dregið frá því. Hann ákvað hins vegar að fara þá leið sem reynst hefur honum best til þessa, að stjórn­ast af inn­sæ­inu.

„Ég held að það hjálpi mér að ég er til­bú­inn að takast á við þetta. Ég bauð mig fram aftur síð­asta vor, því ég tel mig hafa erindi en mig langar þetta ekk­ert svo mikið. Mér finnst ég þó vera á réttum stað í dag og geti gert gott. Ég hef ekki metnað til að verða eitt­hvað bara til þess að verða það. Mér leið ágæt­lega sem arki­tekt, gerði ágætis hluti inn á milli eins og gengur. Þetta hlið­ar­spor sem póli­tíkin er, er meira svona eitt­hvað sem hefur gerst svo­lítið óvart. Ég held að það hafi hjálpað mér þetta æðru­leysi gagn­vart hlut­verk­inu og það að ég er alveg rólegur í hjart­anu því að mig langar að eyða síð­ustu árunum sem arki­tekt.“

Logi rifjar upp í léttum dúr að ein­hver hafi líkt honum við Claudíus Róm­ar­keis­ara. „Þá var það þannig að það var sífelld bar­átta um keis­aratign­ina – vél­ráð, eitr­anir og morð. Keis­ar­inn á undan, Caligúla, var ofsóknaróður og það var lagt á ráðin að allir sem voru skyldir honum yrðu drepnir. Nema þeir skildu eftir einn veik­burða ein­stak­ling úti í sveit sem eng­inn datt í hug að gæti orðið keis­ari og hét Claudíus. Þegar Caligúla var svo drep­inn var Claudíus sá eini eftir í ætt­inni og hann gerður að keis­ara. Hann sat í 13 ár, ég á kannski 11 eftir.“

Samfylkingin mun ná fyrri styrk

Líkt og sagði í inn­gangi var meg­in­til­gang­ur­inn með stofnun Sam­fylk­ing­ar­innar að vera mót­vægi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn á vinstri væng stjórn­mál­anna. Þannig var það framan af og var gjarnan talað um tveggja turna tal, eða allt fram til árs­ins 2013 þegar fylgi flokks­ins hrundi. Telur for­mað­ur­inn að hann nái að koma flokknum á sama stall og áður?

Ég held að Sam­fylk­ingin verði komin á þann stað sem hún á að vera þegar hún er komin í góða rík­is­stjórn sem byggir á mál­efna­á­herslum jafn­að­ar­manna.

„Ég held að Sam­fylk­ingin sé í dag mót­vægi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, við erum eng­inn turn enda geta hús verið til­komu­mikil og fal­leg þótt þau séu lágreist­ari. Sam­fylk­ingin er í hægum vexti og ég held að það sé betra að þetta ger­ist hægt og rólega. Ég er sann­færður um að við eigum meira inni. Ég held að Sam­fylk­ingin verði komin á þann stað sem hún á að vera þegar hún er komin í góða rík­is­stjórn sem byggir á mál­efna­á­herslum jafn­að­ar­manna. Ég er viss um að við komumst þangað en hvenær veit ég ekki. Ég held að við gætum náð mjög mörgum skemmti­legum og góðum málum á dag­skrá ef við myndum mynda rík­is­stjórn frá miðju til vinstri þar sem Sam­fylk­ingin væri kjöl­festu­flokkur og við hefðum svo Viðreisn og Pírata öðrum megin við okkur og Vinstri græn hinum megin við okkur.“

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina