Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hversu góður er góður díll?

Hversu góður er góður díll?
Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.

SKOÐUN Nú í upp­hafi árs, að loknum stór­há­tíðum, hefur löngum verið hefð fyrir miklum útsölum. Þó hefur tölu­verð breyt­ing verið á und­an­farin miss­eri þar sem sífellt fleiri til­boðs­dögum er skellt á með reglu­legu milli­bili yfir árið, eins og til dæmis föstu­dags­fár­inu í lok nóv­em­ber, sumar-, vetur- vor- og haustút­sölum, og kaupæðisköst eru þess á milli. Þá dynja jafnan á okkur aug­lýs­ingar um þá félaga Tilboð, Spott­prís og Afslátt.

Útsölur eru ávana­bind­andi, jafnt fyrir fram­leið­endur, selj­endur og kaup­endur. Fram­leið­endur og versl­anir þurfa að ná skamm­tíma­mark­miðum um sölu­tölur og lækka til þess verð, en ganga þannig á lang­tíma­virði var­anna sem þær selja. Og neyt­endur læra að bíða með að versla þar til varan fæst á útsölu. „Og hvað er að því?“ gæti ein­hver spurt? Hverjum finnst ekki eft­ir­sókn­ar­vert að fá „góðan díl“?

Frá því á stein­öld hefur mað­ur­inn hlaupið á eftir „góðum díl“. Hann hljóp á eftir særðum dýrum sem segja má að hafi verið ígildi afsláttar þar sem það útheimti minni orku að ná þeim en þau hraustu og sprett­harð­ari. Síðar beisl­aði mað­ur­inn nátt­úr­una og fór að ala dýr þar sem það útheimtir enn þá minni vinnu en að elta þau. Það var sem sagt afsláttur af fyrri háttum. Sama má segja um útsölur dags­ins í dag – við hlaupum á eftir því sem við teljum okkur geta fengið með minni fyr­ir­höfn en ella. En stundum hlaupum við á eftir til­boði, án þess að hugsa til enda hvort okkur vanti í raun og veru það sem við getum kló­fest á góðum kjörum.

Þá þurfum við líka að velta fyrir okkur hvort við þurfum allt sem við kaupum. Sækjumst við hugs­an­lega meira eftir því að ná góða dílnum, en því sem nemur nota­gildi hins keypta?

En eru bestu kaupin alltaf best? Neyt­enda­sam­tök­unum ber­ast því miður til­kynn­ingar um að ein­hverjar versl­anir hafi stundað það að hækka vöru­verð rétt fyrir útsölur, ein­ungis til bjóða þær á útsölu­verði. Slíkt er nátt­úr­lega ekki góðir við­skipta­hættir og brjóta í bága við lög. En sann­leik­ur­inn er sá, að í þeirri ofgnótt upp­lýs­inga sem við lifum, er oft erfitt að átta sig á því hvað sé „góður díll“.
Fatnaður er gott dæmi um vörur sem reglu­lega eru seldar í miklu magni á útsölum og á hverju ári eru flutt inn um 12 kíló af textíl­vörum á hvern Íslend­ing. Á sama tíma hendum við um 10 kílóum á mann af fötum á ári. Með til­liti til sótspors og kostn­aðar sem af þessu hlýst fyrir okkur sjálf og umhverfið komumst við ekki hjá því að spyrja okkur sjálf hvort þetta sé ekki ofneysla.

Að eyða til þess að græða, gengur ein­fald­lega ekki upp og við þurfum ekki að kaupa þá full­yrð­ingu. Hún er ekki góður díll, hvorki fyrir neyt­endur né umhverfið.

Höfundur er for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.

Mynd: Haraldur Guð­jóns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina