Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ætlar að standa undir væntingum

Gísli Þorgeir Krist­jáns­son var val­inn í lands­liðs­hóp A-lands­liðs­ins í hand­bolta sem hefur keppni á HM í dag og er því að taka þátt í sínu fyrsta stór­móti með A-lands­lið­inu. Hann er að vonum spenntur og fullur til­hlökk­unar. Hann hefur spilað með Kiel und­an­farna mán­uði og segir tölu­vert mik­inn mun á þýsku deild­inni og þeirri íslensku, en Kiel hafi alltaf verið draumaliðið hans og hann gæti því tæp­ast verið ánægð­ari. Hann hefur fulla trú á að A-lands­liðið muni ná árangri á HM og kom­ast í milli­riðil­inn.

Ætlar að standa undir væntingum
|||

„Ég hef spilað með A-lands­lið­inu í mörgum æfinga­leikjum, spil­aði meðal ann­ars með á Gjensi­dige Cup-æfinga­mót­inu í Noregi á dög­unum, en þetta er fyrsta stór­mótið mitt, þannig að ég er mjög spenntur,“ segir Gísli Þorgeir. „Ég er auð­vitað langt frá því að vera ein­hver reynslu­bolti með lið­inu, það er langt í það, en það bæt­ist hægt og hægt í reynslu­bank­ann.“
Spurður hvernig stemn­ingin sé í lið­inu í und­an­fara HM segir Gísli Þorgeir að hún sé afar góð.
„Liðið er mjög vel stemmt og okkur líður öllum mjög vel með þetta,“ segir hann. „Æfingar hafa gengið afar vel og við höfum unnið hörðum höndum að þessu. Nú er loka­hnykk­ur­inn að skella á og við erum allir til­búnir í þennan slag.“

Gísli Þorgeir hefur spilað með Kiel und­an­farna mán­uði og segir tölu­vert mik­inn mun á þýsku deild­inni og þeirri íslensku. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kiel var alltaf draumaliðið
Gísli Þorgeir gerði samn­ing við þýska stór­liðið Kiel í fyrra og fetar þar í fót­spor félaga sinna í A-lands­lið­inu, Guðjóns Vals Sig­urðs­sonar og Arons Pálma­sonar. Hann hefur spilað með Kiel við góðan orðstír und­an­farna mán­uði. Meiðsli í öxl settu reyndar strik í reikn­ing­inn, en hann seg­ist vera búinn að ná sér að fullu. Hann segir tíma­bilið með Kiel hafa gengið mjög vel, en þangað fór hann eftir frækna frammi­stöðu með FH. Spurður hvort það sé ekki mik­ill munur á því að spila í Þýska­landi eða hér heima við­ur­kennir hann að það hafi verið við­brigði að byrja að spila í Þýska­landi. „Þetta er allt miklu stærra í sniðum en maður hélt en þetta hefur verið ótrú­lega gaman, þetta er algjör draumur að ræt­ast. Kiel hefur alltaf verið draumaliðið mitt, svo ég gæti ekki verið ánægð­ari.“
Faðir Gísla Þorgeirs, Kristján Arason, spil­aði lengi í Þýska­landi, lengst með stór­lið­inu Gummersbach, en það var áður en Gísli Þorgeir fædd­ist, enda er hann ekki nema nítján ára og man lítið eftir hand­bolta­ferli föður síns. Kristján hefur þó vænt­an­lega lumað á ýmsum góðum ráðum fyrir son­inn þegar hann byrj­aði að spila í Þýska­landi, eða hvað?
„Já, heldur betur,“ segir hann. „Hann hefur gefið mér mikið af góðum ráðum og hann hefur alltaf reynst mér mjög traustur bak­hjarl þegar kemur að bolt­anum, og reyndar öllu öðru líka. Mamma og aðrir fjöl­skyldu­með­limir standa að sjálf­sögðu þétt við bakið á mér líka og hafa hjálpað mér mikið. Það er ómet­an­legt að eiga svona góða að.“

Vita hvenær komið er nóg
Kærasta Gísla Þorgeirs, Rannveig Bjarna­dóttir, lands­liðs­kona í fót­bolta, hefur líka stutt hann með ráðum og dáð. Hún hefur búið með honum í Kiel und­an­farna mán­uði sem hann segir hafa skipt hann miklu máli. „Það hefur verið algjör „lifes­a­ver“ að hafa hana með mér,“ játar hann.
Aginn í lið­inu er mik­ill og vinnan erfið en Gísli Þorgeir seg­ist þó hafa haft tíma til að skoða sig um í Þýska­landi og njóta lífs­ins. „Ég hef haft tíma til að slaka á með kærust­unni eða strák­unum,“ segir hann. „Kiel er ágæt­lega stór borg, hér búa 300.000 manns, og það er nóg um að vera hérna. Aginn er auð­vitað mik­ill í lið­inu en þeir vita líka alveg hvenær er komið nóg og maður þarf smá slökun, sem er mjög fínt.“

Gísli Þorgeir Krist­jáns­son er spenntur og fullur til­hlökk­unar vegna HM. Mynd/ Hákon Davíð Björns­son

Hand­bolt­inn heill­aði mest
Þegar hann var yngri spil­aði Gísli Þorgeir bæði fót­bolta og golf, auk hand­bolt­ans, og þótti mjög efni­legur í báðum greinum, hafði hann aldrei áhuga á að ger­ast atvinnu­maður í fót­bolta eða golfi?
„Ekki í golf­inu, það var bara áhuga­mál,“ segir hann. „Mér fannst það samt alveg ótrú­lega gaman, en ekki sem fer­ill. En mest sner­ist lífið um fót­bolta á sumrin og hand­bolta á vet­urna, ég skipti því þannig og var alveg jafn­á­huga­samur um hvort tveggja. Þegar líða fór á fannst mér samt hand­bolt­inn og það sem hann hafði upp á að bjóða meira heill­andi og auk þess fann ég mig betur í hand­bolt­anum, þótt fót­bolt­inn væri ótrú­lega skemmti­legur. Og, jú, ég hafði alveg hugsað út í það að ger­ast atvinnu­maður í fót­bolta, en hand­bolt­inn hafði yfir­hönd­ina á end­anum.“
Auk þess sem Kristján, faðir Gísla Þorgeirs, gat sér góðan orðstír í hand­bolta þá á móðir hans, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, far­sælan feril að baki í hand­bolta. Spurður hvort for­eldrar hans hafi þrýst á hann að velja hand­bolt­ann harð­neitar Gísli Þorgeir því. „Nei, alls ekki,“ segir hann ákveð­inn. „For­eldrar mínir standa með mér í einu og öllu sem ég vil, þau hafa aldrei reynt að hafa áhrif á mitt val.“

Gummi flottur þjálf­ari og mann­eskja
Gísli Þorgeir á að baki feril sem lands­liðs­maður í öllum yngri lands­lið­unum, finnst honum mik­ill munur á því að æfa með A-lands­lið­inu eða þeim?
„Já, það er mjög mik­ill munur,“ full­yrðir hann. „Þótt maður sé auð­vitað að spila full­orð­ins­bolta með flestum yngri lands­lið­unum, þá er A-lands­liðið á allt öðru „leveli“. Þá er maður kom­inn efst í pýramíd­ann sem krefst mik­illar ein­beit­ingar og fag­mennsku – alltaf. Það eru gerðar miklu meiri kröfur til leik­manna á efsta „leveli“.“
Kristján faðir Gísla Þorgeirs og Guð­mundur Guð­munds­son, þjálf­ari A-lands­liðs­ins, spil­uðu saman í íslenska lands­lið­inu á sínum tíma en Gísli Þorgeir seg­ist samt ekki hafa þekkt Guðmund neitt per­sónu­lega þegar hann byrj­aði að æfa með A-lands­lið­inu. Hann harð­neitar því að Guð­mundur, sem auð­vitað er goð­sögn í íslenskum hand­bolta, sé á nokkurn hátt ógn­vekj­andi eða að menn ótt­ist hann.
„Gummi er flottur!“ segir hann. „Það er ekk­ert ógn­vekj­andi við hann, hann vill vinna þetta í sam­starfi við okkur strák­ana og hann er mjög skiln­ings­ríkur og frá­bær þjálf­ari og mann­eskja. Ég virði hann mjög mikið.“

„Við stöndum nokkuð vel að vígi, held ég,“ segir Gísli Þorgeir. „Þetta verður auð­vitað erfitt, það verða engir auð­veldir leikir á þessu móti, þetta er HM og við þurfum að vinna ótrú­lega vel.“ Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Hefur mikla trú á lið­inu
Lands­liðs­hóp­ur­inn hélt til Þýska­lands á mið­viku­dag­inn og spilar fyrsta leik­inn gegn Króatíu í München í dag. Gísli Þorgeir segir mik­inn hug í lið­inu og að hans áliti stendur liðið vel að vígi miðað við hin liðin í riðl­inum.
„Við stöndum nokkuð vel að vígi, held ég,“ segir hann. „Þetta verður auð­vitað erfitt, það verða engir auð­veldir leikir á þessu móti, þetta er HM og við þurfum að vinna ótrú­lega vel. Mark­miðið er auð­vitað að kom­ast í milli­riðil og ég tel að við eigum góða mögu­leika á því. Strák­arnir eru mjög bjart­sýnir um það sem koma skal en við gerum okkur allir grein fyrir því að þetta verður ekki auð­veld brekka að klífa.“
Sjálfur seg­ist Gísli Þorgeir hafa trú á lið­inu og að hann eigi von á góðum árangri þess í mót­inu.
„Ég hef mikla trú á lið­inu og vel það,“ segir hann ákveð­inn.
Eftir að kepnn­inni á HM lýkur mun Gísli Þorgeir halda aftur til Kiel og spila með þeim í þýsku deild­inni í vetur. Óttast hann að meiðslin í öxl­inni muni halda aftur af honum þar? „Nei, ég tel mig vera orð­inn flottan í öxl­inni,“ segir hann og hlær. „Þannig að það ætti ekki að verða neitt vesen með hana í vetur. Ég hlakka bara óskap­lega til að spila á HM og síðan í þýsku deild­inni og ætla mér að standa undir þeim vænt­ingum sem til mín eru gerðar á báðum stöðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

HM 2019

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi