Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hæðir og lægðir á HM

Óhætt er að segja að síð­ustu heims­meist­ara­mót hafi verið íslenska lið­inu erfið og átta ár eru liðin frá því strák­arnir okkar komust í hóp þeirra 10 bestu, það var í Svíþjóð 2011.

Hæðir og lægðir á HM
|

Á síð­asta móti, í Frakk­landi fyrir tveimur árum, hafn­aði liðið í 14. sæti. Liðið átti erfitt upp­dráttar frá fyrsta leik sem tap­að­ist með sex mörkum gegn Spáni. Það rétt skreið í 16 liða úrslit á marka­tölu eftir skyldu­sigur á Andorra og jafn­tefli gegn Makedóníu og Túnis. Það voru svo Frakkar sem sendu okkur heim strax í útslátt­ar­keppn­inni.

Horna­mað­ur­inn knái, Valdimar Grímsson, var svo val­inn í heimsliðið í lok móts 1997.

Besti árangur liðs­ins náð­ist í Kumamoto í Japan 1997 þar sem strák­arnir okkar fóru hrein­lega á kostum. Liðið fór tap­laust í gegnum riðla­keppn­ina þar sem hæst bar stór­sigur á sterku liði Júgóslavíu (Serbíu og Svart­fjalla­landi) og Norðmenn voru svo afgreiddir í 16 liða úrslitum. Eina tap liðs­ins kom gegn Ung­verja­landi í 8-liða úrslitum en sigur á Spáni og Egypta­landi tryggðu lið­inu 5. sætið. Horna­mað­ur­inn knái, Valdimar Grímsson, var svo val­inn í heimsliðið í lok móts.

Næst­besti árangur íslenska liðs­ins er 6. sætið sem náðst hefur í tvígang, í Sviss 1986 og Svíþjóð 2011. Á því síð­ar­nefnda lék liðið, undir stjórn Guð­mundar Guð­munds­sonar, við hvern sinn fingur í riðla­keppn­inni þar sem allir fimm leik­irnir unn­ust. Liðið lenti hins vegar í geig­væn­lega erf­iðum milli­riðli þar sem leikir gegn Frakk­landi, Spáni og Þýska­landi töp­uð­ust, sem og leik­ur­inn um 5. sætið gegn Króatíu. Alex­ander Peterson var val­inn í heimsliðið að móti loknu.

HM í Portúgal var einnig frá­bært mót þar sem liðið var hárs­breidd frá því að kom­ast í und­an­úr­slit. Sárt eins marks tap gegn Spáni þýddi að liðið spil­aði um 5. til 8. sæti þar sem 7. sætið varð nið­ur­staðan.

Mestu von­brigðin eru án efa HM 1995 sem haldið var hér heima á Íslandi. Liðið fór reyndar ágæt­lega af stað og vann fyrstu leik­ina í riðl­inum en svo fór að síga á ógæfu­hlið­ina. Síðustu tveir leik­irnir í riðl­inum töp­uð­ust og það voru svo Rússar sem veittu okkur náð­ar­höggið í útslátt­ar­keppn­inni þar sem íslenska liðið skor­aði aðeins 12 mörk. Loka­leikur móts­ins gegn Hvíta-Rúss­landi tap­að­ist sömu­leiðis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

HM 2019

InnlentHM 2019

Ætlar að standa undir vænt­ingum

Gísli Þorgeir Krist­jáns­son var val­inn í lands­liðs­hóp A-lands­liðs­ins í hand­bolta sem hefur keppni á HM í dag og er því að taka þátt í sínu fyrsta stór­móti með A-lands­lið­inu. Hann er að vonum spenntur og fullur til­hlökk­unar. Hann hefur spilað með Kiel und­an­farna mán­uði og segir tölu­vert mik­inn mun á þýsku deild­inni og þeirri íslensku, en Kiel hafi alltaf verið draumaliðið hans og hann gæti því tæp­ast verið ánægð­ari. Hann hefur fulla trú á að A-lands­liðið muni ná árangri á HM og kom­ast í milli­riðil­inn.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ