Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Mætti á landsleik í grýlubúningi

Guðni Már Harð­ar­son, prestur í Linda­kirkju, hefur fylgt lands­lið­inu í hand­bolta á fjöl­mörg stór­mót og má með sanni segja að hann sé einn af dygg­ustu stuðn­ings­mönnum liðs­ins. Hann verður að sjálf­sögðu í stúkunni núna ásamt félögum sínum og þeir eru það bjart­sýnir á gengi liðs­ins að þeir eiga miða á milli­riðil­inn.

Mætti á landsleik í grýlubúningi
||
Guðni Már Harð­ar­son, prestur í Linda­kirkju, er einn dygg­asti aðdá­andi liðs­ins.

„Þetta verður besta mót Íslands í nokkurn tíma og 5.-7. sætið verður okkar,“ svarar Guðni Már hress í bragði þegar hann er beð­inn um að spá fyrir um gengi Íslands á mót­inu. „Geir Sveins­son gaf ungum strákum séns og lagði mik­il­vægan grunn fyrir Guðmund [Guð­munds­son], það er upp­gangur núna og gaman að sjá hversu fag­lega er unnið með ung­linga­lands­liðin, en ég held að Gísli [Þorgeir Krist­jáns­son] og Elvar [Örn Jónsson] muni eiga gott mót.“

Teigaði lítra af bjór
Guðni Már hefur farið á HM, EM, und­ankeppni Ólymp­íu­leika og Ólymp­íu­leik­anna í London. Þeir fara alltaf nokkrir vinir saman á mótin en ef Ísland kemst á Ólymp­íu­leik­ana í Tókýó 2020 er draum­ur­inn að fara fjöl­skyldu­ferð. Guðni seg­ist ekki fara árlega en eins oft og ráð og tími vinnst til. Hann hefur því orðið vitni að mörgum ævin­týra­legum augna­blikum. „Ég hef tvisvar séð Ísland vinna Frakk­land sann­fær­andi, í Mag­deburg 2007 og á Ólymp­íu­leik­unum 2012, stemn­ingin á þeim leikjum var engu lík. Viðbrögð frönsku stuðn­ings­mann­anna í kringum okkur þegar Björgvin Páll varði með Youtube-mark­vörslu á Ólymp­íu­leik­unum gleym­ast ekki.“

„ Í síð­ari hálf­leik var næstum liðið yfir mig vegna ofþorn­unar og er enn er sagan sögð þegar ég, hrifs­aði líters bjór­krús af vini mínum og teyg­aði í einum sopa. Ég drekk ekki bjór en hefði senni­lega teigað lítra af smur­olíu á þessum tíma­punkti, slíkur var þorst­inn,“

Eitt eft­ir­minni­leg­asta atvikið er frá HM 2007 í Mag­deburg. „Mikið var rætt um að Alfreð Gísla hefði í aðdrag­anda móts­ins stútað Svía­grýl­unni svoköll­uðu með því að ger­sigra Svía. Þar sem ég á for­láta grýlu­bún­ing mön­uðu vinir mínir mig til að mæta í honum á lands­leik, ég sagð­ist til ef ákveðin upp­hæð safn­að­ist til góð­gerð­ar­mála. Þeir sáu til þess að upp­hæðin safn­að­ist fljótt og ég gat ekki skor­ast undan. Grýlu­bún­ing­ur­inn og öll sú múnd­er­ing er ekki ákjós­an­leg til að vera í mik­illi mann­þröng inn­an­dyra í 18.000 manna höll. Í síð­ari hálf­leik var næstum liðið yfir mig vegna ofþorn­unar og er enn er sagan sögð þegar ég, hrifs­aði líters bjór­krús af vini mínum og teyg­aði í einum sopa. Ég drekk ekki bjór en hefði senni­lega teigað lítra af smur­olíu á þessum tíma­punkti, slíkur var þorst­inn,“ segir Guðni Már hlæj­andi en hand­bolta­á­hugi hans kvikn­aði fyrir alvöru þegar Ísland sigr­aði B-leik­ana árið 1989. „Hand­bolti er skemmti­leg­asta sjón­varps­í­þróttin, hraður leikur og þótt annað liðið sé fimm mörkum yfir og 10 mín­útur eftir getur enn allt gerst.“

Eftir sig­ur­leik á Frökkum á Ólymp­íu­leik­unum 2012 í London. Frá vinstri: Kjartan Ólafsson Vídó, Ástþór Ágústs­son, Guðni Már og Gústaf Krist­jáns­son.

Unnu bara einn leik
Spurður hvort hann hafi sjálfur æft hand­bolta játar hann með sem­ingi. „Já, en ég er mun betri í að tala um hand­bolta en stunda. Ég æfði einn vetur með ÍA á Akranesi með stór­kost­legum karakt­erum. Það væri hægt að gera bíó­mynd í anda The Mighty Ducks um þetta lið, hand­rits­höf­undur yrði þó að fjölga sig­ur­leikjum frá raun­veru­leik­anum, því þó að við elskuðum að spila þá unnum við bara einn leik allan vet­ur­inn. Það var þegar hitt liðið var vara­manna­laust og tveir hjá þeim meidd­ust í leiknum svo við mörðum sigur eftir að við urðum tveimur fleiri. Svo æfði ég með Fylki í um tvo vetur, var settur á lín­una en fyrsti kostur á lín­unni þar var öðling­ur­inn Róbert Gunn­ars­son, besti sókn­ar­línu­maður Íslands fyrr og síðar. Val þjálf­ar­ans var ein­falt, viltu Súper­mann eða Crusty the Clown á lín­una?“

Guðna líður því betur í stúkunni og hefur í gegnum tíð­ina kynnst mörgum sem tengj­ast lið­inu á einn eða annan hátt. „Ísland er lítið og því hafa margir orðið á leið manns í gegnum lífið, þeir eru þó flestir hættir nema skóla­bróðir úr mennta­skóla, Guðjón Valur, sem er nátt­úru­undur og val­menni. Svo hafa leiðir okkar Björg­vins Páls legið saman en hann og Karen eig­in­kona eru mér góðar fyr­ir­myndir á ýmsan hátt. Að öðrum ólöst­uðum er samt upp­á­halds­hand­bolta­mann­eskjan mín Ólafur Stef­áns­son. Magnaður íþrótta­maður og djúp­vitur lífskúnstner sem hugsar út fyrir kass­ann.“

Aðalmynd: Í Mag­deburg 2007 þar sem Guðni fór í grýlu­bún­ing­inn. Frá vinstri: Kjartan Vídó Ólafsson, Guðni Már, Þorkell Gunnar Sig­ur­björns­son, Arnar Ragn­ars­son og Ólafur Jóhann Borg­þórs­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

HM 2019

InnlentHM 2019

Ætlar að standa undir vænt­ingum

Gísli Þorgeir Krist­jáns­son var val­inn í lands­liðs­hóp A-lands­liðs­ins í hand­bolta sem hefur keppni á HM í dag og er því að taka þátt í sínu fyrsta stór­móti með A-lands­lið­inu. Hann er að vonum spenntur og fullur til­hlökk­unar. Hann hefur spilað með Kiel und­an­farna mán­uði og segir tölu­vert mik­inn mun á þýsku deild­inni og þeirri íslensku, en Kiel hafi alltaf verið draumaliðið hans og hann gæti því tæp­ast verið ánægð­ari. Hann hefur fulla trú á að A-lands­liðið muni ná árangri á HM og kom­ast í milli­riðil­inn.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ