Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Bestu augnablikin og sárustu vonbrigðin

Mannlíf rifjar upp nokkur af ánægju­leg­ustu sigrunum og sár­græti­leg­ustu von­brigð­unum sem íslenska karla­lands­liðið í hand­knatt­leik hefur fært okkur áhorf­endum í gegnum árin.

Bestu augnablikin og sárustu vonbrigðin
||

Ánægjulegustu augnablikin:

ÓL 2008: 2. sæti

Silfurdrengirnir okkar

Fram­ganga strák­anna okkar á Ólymp­íu­leik­unum í Peking haustið 2008 vakti víða mikla athygli, enda fátítt að svo fámenn þjóð kom­ist á verð­launa­pall í hóp­í­þrótt og hvað þá í sjálfan úrslita­leik­inn. Liðið spil­aði lík­lega betur en nokkru sinni fyrr og síðar með Ólaf Stef­áns­son fremstan meðal jafn­ingja, en fyr­ir­lið­inn lét sér ekki nægja að leika listir sínar á vell­inum heldur kom hann með einkar sér­stök og ástríðu­þrungin til­svör í við­tölum eftir leiki þar sem hvert orð­skrípið og súr­r­eal­íska til­vís­unin rak aðra. Enginn skildi neitt, nema þá kannski helst leik­mað­ur­inn sjálfur, en öllum var sama. #takkoli.

Eftir því sem leið á leik­ana og fleiri stór­þjóðir lutu í gras fyrir íslensku vík­ing­unum stig­magn­að­ist stemn­ingin heima fyrir og óhjá­kvæmi­lega fjölg­aði í hópi frægð­ar­fang­ara. Þeirra mest áber­andi var for­seta­frúin þáver­andi Dorrit, sem lýsti því yfir í beinni útsend­ingu frá Kína að Ísland væri „stórasta land í heimi“ og bjó þannig til frasa sem þótti hnytt­inn, varð vin­sæll og skömmu síðar þreyttur. Úrslita­leik­ur­inn fór fram eldsnemma á sunnu­dags­morgni og þótt þeir fjöl­mörgu sem rifu sig á lappir (eða héldu sér vak­andi) hafi vissu­lega orðið fyrir von­brigðum með tap gegn firna­sterku liði Frakka var þjóð­arstoltið með 2. sætið ríkj­andi til­finn­ing meðal lands­manna, eins og merkja mátti á máls­hætt­inum ill­skilj­an­lega „Gott silfur gulli betra“.

Þegar hetj­urnar sneru heim frá Peking árið 2008 voru fálka­orður hengdar á leik­menn og þjálf­ara.

Þegar hetj­urnar sneru heim að leik­unum loknum voru fálka­orður hengdar á leik­menn og þjálf­ara, tug­þús­undir fögn­uðu í miðbæ Reykja­víkur og allir ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar með tölu tróðu sér upp á svið til að baða sig í sviðs­ljós­inu með silf­ur­drengj­unum, Valgeiri Guð­jóns­syni og Ladda. Hugs­an­lega hefðu ráða­menn­irnir betur eytt tím­anum í annað, því mán­uði síðar hrundi íslenska efna­hags­kerfið eins og það lagði sig.

Land­vinn­ingar hand­knatt­leiks­lands­liðs­ins standa þó upp úr frá þessum dimma tíma í sögu lands og þjóðar og er að margra áliti stærsta stund í íþrótta­sögu Íslands, í það minnsta fram að glæsi­legum árangri karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu á EM 2016.

B-keppnin 1989: 1. sæti

Gott gull silfri betra

Það var eitt­hvað sér­lega krútt­legt við þann inni­lega fögnuð og ein­lægu gleði sem braust út á Íslandi þegar hand­knatt­leiks­lands­liðið sigr­aði Pólverja í úrslita­leik B-keppni heims­meist­ara­móts­ins sem haldið var í Frakk­landi í febr­úar 1989. Engu skipti þótt liðið hefði í raun neyðst til að taka þátt í keppni þeirra næst­bestu til að tryggja sér sæti á HM 1990 eftir slakan árangur á Ólymp­íu­leik­unum í Suður-Kóreu sum­arið áður, við fögn­uðum eins og um alvöru­sigur á HM hefði verið ræða enda var þetta í fyrsta sinn sem Ísland vann til gull­verð­launa á alþjóð­legu móti og þjóðin fylkti sér að baki Bogdans þjálf­ara og Alfreðs Gísla­sonar sem var val­inn besti leik­maður keppn­innar.

ÓL 1992: 4. sæti

Ævintýri líkast

Engin ánægja er eins ánægju­leg og óvænt ánægja, segir í ævafornu mál­tæki. Það átti sann­ar­lega við um gengi íslenska lands­liðs­ins á Ólymp­íu­leik­unum í Barcelona árið 1992, þegar það tryggði sér 4. sæti þvert á afar hóf­samar vænt­ingar. Íslend­ingar komust bak­dyra­megin inn á leik­ana þegar þeim var boðið að hlaupa í skarðið fyrir Júgóslavíu, sem var meinuð þátt­taka ein­ungis þremur dögum fyrir mót vegna stríðs­á­taka í land­inu. Flestum að óvörum náði liðið alla leið í und­an­úr­slit, sem var þá besti árangur sem Ísland hafði náð.

Sárustu vonbrigðin:

HM 1995: 14. sæti

Í bláum skugga

Hið litla og stór­huga Ísland sótti um að fá að halda HM í hand­bolta árið 1993 en fékk þess í stað úthlutað keppn­inni 1995. Eftir á að hyggja má velta því fyrir sér hvernig farið hefði ef íslenska liðið hefði keppt á heima­velli tveimur árum fyrr, áður en öfl­ugir burða­rásar í lið­inu lögðu skóna á hill­una. Í öllu falli er ljóst að það var ansi margt sem fór úrskeiðis í HM á Íslandi 1995. Miðasala sem var langt undir vænt­ingum, lang­dregið karp um bjór­sölu og tækni­mál og óþol­andi lukku­dýr, álf­ur­inn Mókollur, voru meðal atriða sem blikn­uðu þó í sam­an­burði við slæ­lega frammi­stöðu íslenska liðs­ins. Eftir nið­ur­lægj­andi ósigur gegn Rússum í 16-liða úrslitum, 12-25, sem var stærsta tap Íslands á HM nokkru sinni, lauk liðið leik í 14. sæti sem var langt undir vænt­ingum.

HM 1974: 14. sæti

Árið 1974 skellti liðið sér í hljóð­ver og söng inn á stuðn­ings­lagið Áfram Ísland! ásamt höf­und­inum Ómari Ragn­ars­syni og hljóm­sveit­inni Hljómum.

Ómar og Hljómar

Það var hugur í Íslend­ingum í aðdrag­anda HM í hand­bolta sem haldið var í Austur-Þýska­landi í mars 1974 og stefnan leynt og ljóst sett á verð­launa­pall. Liðið hafði marga gæða­leik­menn inn­an­borðs, lék afbragðsvel í æfinga­leikjum fyrir mót og leikja­prógram­mið á HM þótti lofa góðu. Til að fanga bjart­sýn­ina skellti liðið sér í hljóð­ver og söng inn á stuðn­ings­lagið Áfram Ísland! ásamt höf­und­inum Ómari Ragn­ars­syni og hljóm­sveit­inni Hljómum frá Keflavík en þetta var í fyrsta sinn sem ráð­ist var í slíkt verk­efni hér­lendis.

Platan seld­ist vel og allt virt­ist í lukk­unnar vel­standi, en strax eftir lend­ingu í Þýska­landi kom upp flensu­far­aldur meðal leik­manna. Reynt var að fá fyrsta leik við Tékka frestað en það tókst ekki og eftir það gekk allt á aft­ur­fót­unum. Íslenska liðið tap­aði öllum leikjum sínum og 14. sæti á HM varð nið­ur­staðan sem þótti mik­ill skellur.

ÓL 2012: 5. sæti

Vítavert gáleysi

Ísland spil­aði frá­bær­lega í riðla­keppn­inni á Ólymp­íu­leik­unum í London sum­arið 2012 og vann alla leik­ina. Í 8-liða úrslitum vorum við einu marki yfir gegn Ung­verjum og fengum vítakast þegar ein­ungis tíu sek­úndur lifðu leiks. Tíu stuttar sek­úndur. Snorri Steinn Guð­jóns­son steig á punkt­inn til að freista þess að gull­tryggja sætið í und­an­úr­slitum en lét verja frá sér, Ung­verjar brun­uðu í sókn og jöfn­uðu leik­inn nán­ast á sömu stundu og lokaflautið gall. Ung­verjar stóðu svo uppi sem sig­ur­veg­arar að loknum tvö­fald­ari fram­leng­ingu í einni mest pirr­andi viður­eign og sárasta ósigri Íslands frá því elstu menn muna.

Texti / Kjartan Guð­munds­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

HM 2019

InnlentHM 2019

Ætlar að standa undir vænt­ingum

Gísli Þorgeir Krist­jáns­son var val­inn í lands­liðs­hóp A-lands­liðs­ins í hand­bolta sem hefur keppni á HM í dag og er því að taka þátt í sínu fyrsta stór­móti með A-lands­lið­inu. Hann er að vonum spenntur og fullur til­hlökk­unar. Hann hefur spilað með Kiel und­an­farna mán­uði og segir tölu­vert mik­inn mun á þýsku deild­inni og þeirri íslensku, en Kiel hafi alltaf verið draumaliðið hans og hann gæti því tæp­ast verið ánægð­ari. Hann hefur fulla trú á að A-lands­liðið muni ná árangri á HM og kom­ast í milli­riðil­inn.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag