Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kominn tími á að Aron rísi upp

Íslenska lið­inu á eftir að ganga vel á HM, að mati Sigurðar Sveins­sonar, fyrrum lands­liðs­manns í hand­bolta. Hann telur að HM 2019 komi til með að verða mikil reynslu­ferð fyrir yngstu leik­menn­ina í lið­inu.

Kominn tími á að Aron rísi upp
Sigurður Sveins­son.

„Það er gott að við erum með svona marga unga góða leik­menn sem eru að fá sína vígslu á stór­móti, það hjálpar okkur í fram­tíð­inni. Þetta verður mikil reynslu­ferð fyrir þá,“ bendir Sigurður á. „Reyndar vantar aðeins upp á hæð­ina hjá sumum leik­mönnum. Ekki að það skipti öllu, þeir munu pluma sig vel þarna úti.“

Spurður út í von­ar­stjörnur liðs­ins segir Sigurður að það sé orðið tíma­bært fyrir Aron Pálm­ars­son fyr­ir­liða að rísa og sýna hvað í honum býr. „Hann er algjör lyk­il­maður og verður að draga vagn­inn. Þarf að vera leið­togi, sýna þor og áræði og leik­gleði, sem hefur vantað aðeins upp á hjá honum og rífa liðið með sér.“

Um aðrar von­ar­stjörnur liðs­ins segir hann að Gísli Þorgeir sé lík­lega eitt mesta efni Íslands í hand­bolta. Líkt og faðir hans, Kristján Arason, státi hann af miklum hæfi­leikum, búi yfir sprengi­krafti og hafi góðan lesskiln­ing í leiknum. Hann megi hins vegar skjóta meira á markið þar sem hann sé hörku­skytta. Nú sé bara spurn­ing hvort Guð­mundur Guð­munds­son þjálf­ari þori að nota Gísla Þorgeir almenni­lega á mót­inu.
Þá þurfi Ólafur Guð­munds­son að hafa trú á sjálfum sér enda einn besti leik­maður Íslands bæði í sókn og vörn á góðum degi.

En hvað með t.d. Teit Örn? „Hann er úr þess­ari Sel­foss­fjöl­skyldu sem hefur alið flottan hóp af leik­mönnum. Þetta er feyki­lega efni­legur strákur, með mik­inn sprengi­kraft og ágætur varna­maður. Vantar kannski aðeins upp á leikskiln­ing­inn. Guð­mundur notar hann eflaust ekki fyrr en líður á og segir honum þá að bomba á markið.“

En Elvar Örn? „Góður varn­ar­maður sem hefur góðan skiln­ing á ferl­inu. Einn af skemmti­leg­ustu alhliða hand­bolta­mönnum lands­ins. Minnir á Aron Pálm­ars­son þegar hann var yngri og gæti jafn­vel orðið betri. Hann á örugg­lega eftir að verða einn af okkar betri leik­mönnum þegar fram líða stundir.“

Haukur Þrastar: „Það er skemmti­legt hvað Haukur og þessir drengir eru ófeimnir við að taka af skarið og taka þátt. Ég spái því að hann komi inn á þegar við spilum á móti slak­ari liðum, eins og Japan og Bahrain til að hvíla lyk­il­menn.“

Daníel: „Daníel er sterkur og með þyngd­ina í þetta. Hann er kom­inn með fína reynslu eftir að hafa spilað með Haukum og er bæði góður varn­ar­maður og skytta. Ég held að Guð­mundur hugsi hann sem varn­ar­mann.“

Sigvaldi: „Sigvaldi er búinn að sýna það í Noregi að hann er ekk­ert síðri en hinir. Hann er einn af þeim sem hefur sannað að hann er bæði góður hraða­upp­hlaups­maður og horna­maður. Fljótur og nýtir færin vel. Við þurfum ekk­ert að ótt­ast hans stöðu.“

Ýmir: „Valið á honum kom mér kannski mest á óvart. Mögulega hugsar Guð­mundur hann í vörn, ég veit það ekki. Okkar línu­menn vantar kannski að geta spila bæði vörn og sókn. Hann getur það hins vegar, en er svo ungur og óreyndur. Í ljósi þess hef ég áhyggjur af því að hann brjóti illa af sér og verði mikið á bekknum.“

Ómar Ingi: „Hann hefur sannað í Danmörku að hann hefur bæði gott leikauga og er hörku skytta. Nú verður hann að rísa upp og átta sig á því að hann er einn af okkar lyk­il­mönnum.“

Sigurður seg­ist á heild­ina lít­ast vel á liðið, hann hafi kannski einna helst áhyggjur af mark­vörsl­unni „Já, Björgin verður að sýna hvað í honum býr,“ segir hann ákveð­inn. „Mark­varslan þarf að batna. Annars vinnst þetta með því að skora fleiri mörk en and­stæð­ing­ur­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

HM 2019

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi