Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sannleikurinn hefur margar hliðar

Valdimar Örn Flygenring hvarf að mestu úr sviðs­ljós­inu fyrir rúmum ára­tug eftir að hafa verið einn vin­sæl­asti leik­ari þjóð­ar­innar í áraraðir. Nú er hann kom­inn aftur inn á sviðið sem Ólafur í Ófærð 2 og talað er um magn­aða end­ur­komu. En hvers vegna hætti hann að leika og hvað hefur hann verið að gera í milli­tíð­inni?

Sannleikurinn hefur margar hliðar
||||

„Ég er aðal­lega að vinna sem leið­sögu­maður,“ segir Valdimar þegar hann er spurður hvað hann hafi verið að gera und­an­farin ár. „Ég er jeppa­leið­sögu­maður fyrir minni hópa, bæði með eigið fyr­ir­tæki og vinn fyrir aðra þess á milli. Ég er svona týpískur Íslend­ingur, vinn við það sem til fellur og þarf að gera hverju sinni.“

Eitt af því sem til féll á nýliðnu ári var hlut­verk Ólafs í Ófærð 2. Hvernig samdi Valdimar, sem er kunnur nátt­úru­vernd­ar­sinni, við þann karakter? Er hann sam­mála skoð­unum hans á virkj­un­ar­málum til dæmis?

„Ég held að svona kallar sem hafa búið lengi þar sem lítið hefur verið að ger­ast í atvinnu­málum eigi erfitt með að vera and­vígir fram­kvæmdum,“ segir Valdimar. „Þeir þurfa að finna leiðir til að lifa af í sínu umhverfi þó svo að við sem búum við ákveðið öryggi getum haft alls konar skoð­anir á því. En þegar maður setur sig í spor fólks sem býr við allt aðrar aðstæður skilur maður afstöðu þess að ein­hverju leyti þótt maður sé algjör­lega and­vígur þeim í hjarta sér.“

Valdimar Örn Flygenring dró sig út úr leik­list­inni fyrir rúmum ára­tug en á nú magn­aða end­ur­komu í Ófærð 2. Mynd / Hallur Karlsson

Spurður hversu langt sé síðan hann lék í sjón­varps­þátta­röð eða bíó­mynd seg­ist Valdimar reyndar hafa verið við­rið­inn þann geira alltaf öðru hvoru í gegnum í árin, hann hafi aldrei lagt leik­list­ina algjör­lega á hill­una.

„Ég hef alltaf verið pínu­lítið að grípa í þetta,“ segir hann og hlær. „Í fyrra var ég til dæmis að leika í þýskri bíó­mynd eftir að fólkið sem var að gera hana hafði séð mig í mynd­inni Hval­fjörður sem ég lék í fyrir nokkrum árum.“

Hætti á erfiðu tímabili í einkalífinu

Þannig að þetta tal um end­ur­komu í leik­list­ina á ekki alveg við rök að styðj­ast, þú hefur verið við­loð­andi brans­ann allan tím­ann?

„Ég útskrif­að­ist úr Leik­list­ar­skól­anum 1986 og var alveg á fullu í tutt­ugu og þrjú ár eftir það,“ útskýrir Valdimar. „Þá var maður stans­laust að daga, kvöld og helgar í leik­hús­inu og svo kom sum­arið og þá var maður á kafi í bíó­myndum. Eftir að hafa unnið þannig í tutt­ugu og þrjú ár fór ég aðeins að hugsa minn gang, auk þess sem ég var að ganga í gegnum erfitt tíma­bil í lífi mínu á þeim tíma, var að fara í gegnum skilnað og var að leika í erf­iðu verki, Pabba­strák eftir Hávar Sig­ur­jóns­son sem var frá­bært verk en hlut­verkið gekk nærri mér. Ég var líka svo­lítið kom­inn á það stig að vera aðeins á milli kyn­slóða í leik­hús­inu, var orð­inn elstur af þeim „ungu“ og það vissi eig­in­lega eng­inn hvað átti að láta mann gera.

Ég var líka svo­lítið kom­inn á það stig að vera aðeins á milli kyn­slóða í leik­hús­inu, var orð­inn elstur af þeim „ungu“.

Ég lenti mikið í því að leika leið­in­lega kall­inn og það má maður ekki gera alltof lengi, sér­stak­lega ekki þegar maður er sjálfur að ganga í gegnum erf­ið­leika í einka­líf­inu. Þá fer maður að velta því fyrir sér hvort maður eigi kannski bara að fara að gera eitt­hvað allt annað, opna nýja glugga. Ég sé ekk­ert eftir því að hafa stigið út úr því fari sem ég var kom­inn í. Ég hef aldrei getað verið í ein­hverju ákveðnu fari, gæti til dæmis aldrei unnið frá níu til fimm, ég er bara ekki þannig gerður. Kannski er það ómeð­höndl­aður athygl­is­brestur en ég þarf alltaf að vera að takast á við eitt­hvað nýtt.“

Valdimar hætti að drekka árið 1989 og hann segir það líka hafa haft áhrif á fer­il­inn. Þegar leik­arar hætti að drekka hætti þeir að mæta á bar­ina og detti þar af leið­andi svo­lítið út úr klíkunni.

„Það bara ger­ist, eðli­lega,“ segir hann. „En það er líka mjög gott, alla­vega var það þannig í mínu til­felli. Ég hef líka stundum sagt þegar maður er með heims­bók­mennt­irnar í höfð­inu alla daga og er að velta sér upp úr dýpstu hugs­unum manns­and­ans árum saman þá væri það nú skrýtið ef maður þroskað­ist ekki pínu­lítið og færi að velta fyrir sér nýjum leiðum í líf­inu.“

„Geri þetta skást af því sem ég geri“

Valdimar hefur sjálfur feng­ist við það í gegnum tíð­ina að setja eigin hugs­anir á blað, bæði í formi ljóða og ann­ars texta, er hann hættur því?

„Nei, nei, ég hef alltaf haldið því áfram,“ segir hann ákveð­inn. „Svo er ég líka í hljóm­sveit sem kemur fram alltaf öðru hvoru og það er alveg óskap­lega skemmti­legt. Hljóm­sveitin heitir Hráefni, Þungt flauel eða Mellur & brenni­vín eftir því hvar við erum að spila. En kjarn­inn í sveit­inni er ég, Þor­leifur Guðjóns og Þórdís Claessen. Ég sem bæði lög og texta og hef mjög gaman af því. Sem betur fer erum við ekk­ert að reyna að verða fræg eða rík, gerum þetta bara ánægj­unnar vegna og manni líður alltaf eins og maður hafi verið í löngum jóga­tíma eftir æfingar. Ég gaf út plötu í gamla daga og hljóm­sveitin gaf út pínu­lít­inn disk fyrir tveimur árum og við erum alltaf á leið­inni að gera eitt­hvað meira en það verður að við­ur­kenn­ast að það er ekk­ert sér­stak­lega mikil eft­ir­spurn eftir tón­list frá sex­tugu fólki, þannig að við erum voða­lega róleg í sam­bandi við plötu­gerð.“

Valdimar segir að fyrst eftir að hann dró sig að mestu út úr leik­list­inni hafi hann aðal­lega fundið fyrir létti og verið spenntur fyrir nýjum verk­efnum, en menn­ingin togi þó alltaf í hann.

„Ég var líka svo­lítið kom­inn á það stig að vera svo­lítið á milli kyn­slóða í leik­hús­inu, var orð­inn elstur af þeim „ungu“ og það vissi eig­in­lega eng­inn hvað átti að láta mann gera.“

„Það sem ég hef kom­ist að í gegnum tón­list­ar­iðkun­ina er í fyrsta lagi hvað menn­ing er mik­il­væg fyrir mig sem mann­eskju. Maður þarf að gera eitt­hvað fleira en vinna, éta og sofa, það veitir manni til­gang. Ég hef líka kom­ist að því, til dæmis með því að taka þátt í Ófærð 2 með Balta og hans fólki, að ég hef leik­list­ina enn þá í mér og hún skiptir mig máli. Þegar maður var stans­laust að vinna við þetta fékk maður svo lít­inn tíma til þess að melta það sem maður var að gera og láta það opna sér nýja sýn á hlut­ina.

Auðvitað gerði maður það að ein­hverju leyti en ég finn það núna að þessi ár sem ég hef verið frá leik­list­inni hafa gefið mér tíma til að melta og ég kem að þessu á annan hátt núna. Leik­listin er auð­vitað ein af þeim list­greinum sem byggir hvað mest á sam­vinnu og mér fannst alveg óskap­lega gaman að vinna með þessu teymi að þessu verk­efni. Mér fannst líka gott að finna að þrátt fyrir allt þá get ég enn þá leikið og það bara þokka­lega. Senni­lega geri ég þetta skást af því sem ég hef reynt að gera í líf­inu.“

„Auðvitað lék ég götustrákinn“

Valdimar byrj­aði að leika tólf ára gam­all, í skóla­sýn­ingu á verki sem bekkj­ar­systir hans hafði skrifað fyrir árs­há­tíð skól­ans. Það opn­aði honum nýja sýn á sjálfan sig að hans sögn.

„Auðvitað var ég lát­inn leika götu­strák­inn,“ segir hann glott­andi. „Leik­ritið átti að ger­ast í skóla­stofu og ég var upp­reisn­ar­segg­ur­inn í bekknum. Ég hafði aldrei fengið sér­stakt hrós frá einum eða neinum í skól­anum en eftir þessa sýn­ingu kom yfir­kenn­ar­inn til mín og hrós­aði mér sér­stak­lega fyrir þetta. Ég man alltaf eftir því og ég á það kannski honum að þakka að ég lagði leik­list­ina fyrir mig.“

Eftir þessa sýn­ingu kom yfir­kenn­ar­inn til mín og hrós­aði mér sér­stak­lega fyrir þetta.

Hlutverk upp­reisn­ar­seggs­ins fylgdi Valdimar fyrstu árin í leik­list­inni en hann seg­ist þó ekki almenni­lega vita af hverju hann var svona oft lát­inn leika þannig hlut­verk.

„Kannski af því ég var tölu­vert upp­reisn­ar­gjarn og von­andi með ein­hverja rétt­læt­is­kennd,“ segir hann hugsi. „Kannski átti fyrsta sýn­ing mín í Nem­enda­leik­hús­inu líka þátt í þessu. Þá lékum við Rauð­hærða riddar­ann og ég lék þar ein­hvern svona brjál­æð­ing. Það þótti eft­ir­minni­legt, alla­vega nóg til þess að tutt­ugu og fimm árum seinna þegar ég stóð úti í Laxá í Aðaldal að veiða sil­ung kall­aði til mín maður á næsta veiði­svæði og spurði hvort ég væri ekki Valdimar Örn Flygenring. Þegar ég ját­aði því þakk­aði hann mér fyrir Rauð­hærða riddar­ann. Það þótti mér skemmti­legt.“

Leiðinlegt að vera settur í steríótýpur

Í upp­hafi fer­ils­ins var Valdimar líka oftar en ekki í hlut­verki kyn­trölls­ins, bæði innan og utan sviðs. „Maður ræður auð­vitað ekki við það hvernig fólk sér mann,“ segir hann hálf­vand­ræða­legur þegar þetta berst í tal.

„Ég veit ekk­ert úr hverju það kom og get ekki um það dæmt. Það hafði samt auð­vitað áhrif. Ég held það sé alltaf leið­in­leg staða að vera settur í ein­hverjar ster­íótýpur. Það getur verið dálítið tak­mark­andi og sorg­legt ef fer­ill bæði byrjar og endar þar. Og án þess að ég sé á nokkurn hátt bitur þá var þetta kannski líka á vissan hátt hluti af ein­hverri ófull­nægju sem gerði það að verkum að maður fór á end­anum að horfa í aðrar áttir. Auðvitað á maður að fá að þroskast í starf­inu ef maður hefur hæfi­leika, ekki vera settur í eitt­hvert hjólfar. Í svona mik­illi sam­vinnu eins og leik­hús er þá er ákvörð­unin um hvert þinn fer­ill þró­ast ekki bara þín heldur ein­hverrar yfir­stjórnar og maður hefur ekki alltaf mikið um það segja.“

Ég held það sé alltaf leið­in­leg staða að vera settur í ein­hverjar ster­íótýpur.

Valdimar segir það líka hafa haft áhrif á hann og hans kyn­slóð leik­ara að á þeim árum sem þau komu til starfa hafi leik­hús á Íslandi verið í mik­illi end­ur­nýjun.

Hlutverk upp­reisn­ar­seggs­ins fylgdi Valdimar fyrstu árin í leik­list­inni en hann seg­ist þó ekki almenni­lega vita af hverju hann var svona oft lát­inn leika þannig hlut­verk.

„Í kringum 1990, þegar Stefán Bald­urs­son tekur við Þjóð­leik­hús­inu er enn þá verið að reka Borg­ar­leik­húsið eftir lögum um áhuga­leik­hús. Þótt leik­húsið sjálft væri svona stórt og fínt og flott var enn þá lít­ill hópur af fólki sem til­heyrði Leik­fé­lagi Reykja­víkur. Stefán byrj­aði strax svo­lítið að taka til í Þjóð­leik­hús­inu, með fullri virð­ingu fyrir því sem áður hafði verið gert. Hann hristi svo­lítið rykið af stöðl­uðum hug­myndum um leik­hús og réði inn hóp ungs fólks sem hefur síðan orðið kjarn­inn í íslensku leik­húsi. Svo getur fólk auð­vitað haft sínar skoð­anir á því hvort það sé rétt að það séu alltaf sömu aðil­arnir meira og minna í sömu hlut­verk­unum. Það eru margar hliðar á sann­leik­anum.

Ég hef stundum sagt að sann­leik­ur­inn sé eins og fjall.

Ég hef stundum sagt að sann­leik­ur­inn sé eins og fjall. Maður hefur kannski verið að horfa á það úr fjar­lægð alla sína ævi og gert sér ein­hverjar hug­myndir um það hvernig það er. Svo þegar maður fer að ganga á fjallið lítur það allt öðru­vísi út og er allt annað en maður hélt. Eftir langa bar­áttu kemst maður svo kannski á topp­inn og þá breyt­ist fjallið enn og aftur. Á nið­ur­leið­inni fær maður svo fjórðu upp­lifun­ina af fjall­inu, þannig að þetta getur verið heill­angt og erfitt ferða­lag upp og niður en þegar maður er kom­inn til baka horfir maður aldrei á fjallið með sömu augum og áður en maður lagði af stað. Það er líka þannig með sann­leik­ann, hann er ekki einn og samur heldur hefur margar hliðar.“

Eins og sést greini­lega í þessu spjalli okkar hefur Valdimar mik­inn áhuga á því að velta fyrir sér stóru spurn­ingum til­ver­unnar í leit að dýpri merk­ingu og sá áhugi varð til þess að hann hóf nám í guð­fræði við Háskól­ann fyrir nokkrum árum.

„Já, ég fór í guð­fræði í eitt ár, var jafn­vel að velta því fyrir mér hvort ég gæti orðið prestur,“ útskýrir hann. „Mér fannst það spenn­andi og eftir að hafa farið í gegnum með­ferð­ar­batt­er­íið og pælt mikið í mann­fólk­inu fór ég að skilja hvað trú getur verið mik­il­væg í lífi mann­eskj­unnar. Þá fer maður að velta því fyrir sér hvaðan sú þörf kemur. Eins þessi leit mann­eskj­unnar að guði, hvað veldur henni? Þannig að ég skráði mig í guð­fræð­ina til að leita svara við þessum spurn­ingum.

Ég fór í guð­fræði í eitt ár, var jafn­vel að velta því fyrir mér hvort ég gæti orðið prestur.

Ég var reyndar ekk­ert viss um það að ég gæti nokkurn tím­ann verið í námi út af athygl­is­brest­inum en ég stóð mig bara mjög vel, þótt ég segi sjálfur frá. Þannig að ég komst að því að ég gæti alla­vega lært en svo þegar átti að fara að kenna manni að ganga um í kufli og syngja sálma þá hætti ég, enda kom­inn á kaf í túris­mann á þeim tíma og hafði varla tíma til að líta upp frá vinnu. Spreng­ingin í túrism­anum kom svo­lítið aftan að manni enda hefur ferða­manna­fjöld­inn marg­fald­ast á þessum tíu árum sem ég hef verið í þessu og það er lít­ill tími til að sinna öðru.“

Valdimar hefur mik­inn áhuga á því að velta fyrir sér stóru spurn­ingum til­ver­unnar í leit að dýpri merk­ingu og sá áhugi varð til þess að hann hóf nám í guð­fræði við Háskól­ann fyrir nokkrum árum.

Skíðaleiðsögumaður á Ítalíu

Valdimar lætur sér þó ekki nægja að sinna túristum á Íslandi því þegar þetta við­tal birt­ist verður hann kom­inn til Ítalíu til að vera far­ar­stjóri fyrir íslenska skíða­iðk­endur.

„Ég er mik­ill skíða­kall,“ útskýrir hann. „Hef verið á skíðum síðan ég var pínu­lít­ill og hef óskap­lega gaman af því. Einu sinni var ég spurður að því af ungum strákum í lyft­unni í Blá­fjöllum hvað ég væri búinn að vera lengi á skíðum og þegar ég sagði að það væru um fimm­tíu ár urðu þeir alveg stein­hissa, horfðu á mig stórum augum og spurðu hvort ég væri fyrsti kall­inn? Ég hef meðal ann­ars verið tölu­vert að fara á skíði erlendis og þegar í ljós kom að það vant­aði ein­hvern til að taka á móti Íslend­ingum í ítölsku Ölpunum og leið­segja þeim um svæðið stökk ég strax á það, alveg him­in­lif­andi. Ég hlakka mikið til að takast á við það.“

Það er greini­legt að Valdimar hefur meira en nóg að gera utan leik­list­ar­brans­ans en saknar hann aldrei leik­húss­ins og heims­ins í kringum það?

„Jú, jú, ég geri það í sjálfu sér stundum,“ við­ur­kennir hann dræmt. „Þegar maður fer að vinna svona vinnu eins og ég vinn í dag þá finnur maður hvað menn­ingin skiptir mann miklu máli. Maður skynj­aði það ekki eins vel þegar maður var alltaf á kafi í þessu, en ég finn vel að lífið snýst um fleira en að vinna, éta og sofa og það er menn­ingin og leik­húsið og auð­vitað saknar maður þess. Það var oft alveg frá­bært að vera í leik­hús­inu þegar gaman var en það var nátt­úr­lega ekki alltaf þannig.

Þegar maður fer að vinna svona vinnu eins og ég vinn í dag þá finnur maður hvað menn­ingin skiptir mann miklu máli.

En það var líka gott að fara frá því og eig­in­lega alveg nauð­syn­legt fyrir mig á þeim tíma. Svo finnst mér líka, þótt það hljómi eins og klisja, að það gefi manni lang­mest að vera bara þakk­látur og auð­mjúkur fyrir það sem maður hefur. Auðvitað langar mann alltaf í meira og meira en það sem skiptir máli er að vera þakk­látur fyrir það sem maður hefur fengið að gera og hefur getað gert. Það þýðir ekk­ert annað.“

En kveikti hlut­verkið í Ófærð 2 ekk­ert í þér, aftur eru ein­hver verk­efni í leik­húsi eða kvik­myndum á dag­skránni á næst­unni?

„Nei, það er ekk­ert ákveðið komið á dag­skrá. Það er alltaf hringt í mig öðru hverju frá Kvik­mynda­skól­anum og ég beð­inn um að leika í myndum sem nem­end­urnir eru að gera þar og það finnst mér alltaf sjálf­sagt að gera ef ég get. Ég er líka opinn fyrir fleiri verk­efnum ef mér finnst þau vera eitt­hvað sem henta mér og passa við mig. Það er alveg ljóst að maður er ekki í leik­list­inni pen­ing­anna vegna og mér finnst að mörgu leyti gott að vera kom­inn á það stig að vera í þessu á réttum for­sendum. En ég veit ekki hvort ein­hver sér eitt­hvað not­hæft í manni sem leik­ara. Það kemur bara í ljós. Það eru svo margar leiðir að því að stunda menn­ing­una.

Það hefur eng­inn áhuga á list sem rekin er út frá excel-skjali, hún deyr.

Það er hins vegar sorg­leg stað­reynd að í svona örsam­fé­lagi eins og Ísland er, þá geta í raun bara örfáir ein­stak­lingar í hverri list­grein lifað og þroskast af list sinni, sem er nátt­úr­lega ávísun á ein­hæfni og stöðnun. Hafi menn­ingin ein­hvern raun­veru­legan til­gang í fram­þróun sam­fé­lags sjá allir hvert slík þróun getur leitt okkur. Við eigum að fagna fjöl­breytni hún gerir okkur sterk­ari. Það hefur eng­inn áhuga á list sem rekin er út frá excel-skjali, hún deyr. Ég hef alltaf hugsað þetta þannig að menn­ingin eigi að bera í sér boð­skap um betra mann­líf og það sem brýn­ast er að taka á núna eru umhverf­is­málin. Menn­ingin nefni­lega skiptir engu máli ef jörðin er að far­ast. Fjöllin hafa alltaf átt hjarta mitt og núna ætla ég að fara að horfa í sól­ina á Ítalíu og skíða um fjöllin sem eru einn fal­leg­asti staður á jarð­ríki. Svo heldur maður bara áfram þaðan.

Ég eign­að­ist hús norður í Hrísey í fyrra og kannski get ég eitt­hvað sinnt því í sumar. Svo fer maður kannski líka að ein­beita sér að ein­hverjum skrifum. Það eru enda­lausir mögu­leikar sem lífið býður manni upp á. Maður þarf bara að vera opinn fyrir þeim og óhræddur við að prófa eitt­hvað nýtt.“

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina