Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Íslenskur humar hverfur úr fiskbúðum landsins

Eitthvað mikið virð­ist hrjá humar­stofn­inn­ um­hverf­is Ísland en veiði hefur verið sögu­lega léleg und­an­farin ár. Minnk­un veiði­heim­ilda hefur engan árangur borið og nú hafa fisk­salar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu séð sig til­neydda að bjóða kúnnum sínum upp á inn­fluttan humar frá Maine í Banda­ríkj­unum þar sem íslenski let­ur­hum­ar­inn var fljótur að selj­ast upp.

Íslenskur humar hverfur úr fiskbúðum landsins
||
Jón­as Páll Jónas­son, fiski­fræð­ing­ur hjá Haf­rann­sókna­stofn­un.

Jón­as Páll Jónas­son, fiski­fræð­ing­ur hjá Haf­rann­sókna­stofn­un, seg­ir í sam­tali við Mannlíf að nýlið­un­ar­brestur í humar­stofn­inum hafi verið við­var­andi síðan 2005. Engin veiði­ráð­gjöf var gefin út í haust vegna þess að Haf­rann­sókna­stofnun hefur verið að inn­leiða nýjar aðferðir við að meta ástand stofns­ins. Verið er að leggja loka­hönd á túlkun gagna og er von á ráð­gjöf­inni eftir hálfan mánuð. Jónas Páll vildi ekki segja til um hvort veiðar yrðu bann­aðar og bendir á að það komi í ljós eftir tvær vikur.

„Við höfum verið að sjá við­var­andi nýlið­un­ar­skort, þ.e. skort á smáum dýrum. Það er ekki gott að segja hver skýr­ingin er nákvæm­lega en við höfum séð þetta hjá öðrum teg­undum fyrir sunnan land svo þetta er ekki bara bundið við hum­ar­inn,“ segir hann og bendir á að það hafi orðið ákveðnar breyt­ingar á ástandi sjávar djúpt suður af land­inu upp á síðkastið.

„Maður á frekar von á því að það hjarni eitt­hvað við eftir þær breyt­ingar. Það er orðið kald­ara og seltir minna. Að því slepptu þá kemur hum­ar­inn ekki fyrr en 5-6 ára inn í veiði þannig að allar breyt­ingar sjást frekar seint.“

Aðspurður seg­ist Jónas Páll ekki telja ofveiði ástæðu dræmrar veiði heldur breyt­ingar á ástandi sjávar og vöntun á smáum humri. „Ráðgjöf hefur verið fylgt und­an­farin 10 ár og það er verið að veiða dýr sem eru 10 til 20 ára gömul, þannig að það er ekki því um að kenna,“ segir hann.

Við höfum eyði­lagt þetta sjálfir, sjó­menn og útgerð­ar­menn, með ofveiði og allt of stór­virkum veið­ar­færum und­an­farin 10 ár.

Ólafur Björn Þor­björns­son, skip­stjóri frá Höfn í Horna­firði sem gerir út humar­bát­inn Sigurð Ólafsson SF, er á önd­verðum meiði. „Við höfum eyði­lagt þetta sjálfir, sjó­menn og útgerð­ar­menn, með ofveiði og allt of stór­virkum veið­ar­færum und­an­farin 10 ár. Ég vona að ég hafi rangt fyrir mér en þetta er mín kenn­ing og það eru ekki allir sáttir við hana,“ segir Ólafur en hann hefur stundað humar­veiði í tæp­lega hálfa öld.

Þrátt fyrir að stofn­stærð hafi sveifl­ast áður man Ólafur ekki eftir öðru eins og hann hefur ekki mikla trú á Haf­rann­sókna­stofnun. „Þeir hjá Hafró vilja ekk­ert við okkur tala, held ég, þeir hafa aldrei tekið mark okkur, litlu aum­ingj­unum sem erum í þessu. Það eru stóru útgerð­irnar sem ráða þessu,“ segir hann og bendir á að það séu ekki nema um 10-12 bátar á humar­veiðum í dag.

Eitthvað mikið virð­ist hrjá humar­stofn­inn­ um­hverf­is Ísland en veiði hefur verið sögu­lega léleg und­an­farin ár.

Ólafur seg­ist telja að sam­hengi sé á milli hruns stofns­ins og þess að stærri útgerðir hafi fyrir um 10 árum síðan breytt veiði­að­ferðum sínum. „Þá fóru þeir að koma á miklu öfl­ugri skipum og þyngdu veið­ar­færin og hler­ana. Við hinir gátum aldrei verið nálægt þeim, við vorum alltaf fastir í drullu og þurftum að forða okkur frá þeim,“ segir hann og bætir við að orsök­ina fyrir hnignun stofns­ins megi rekja til þess að verið sé að eyði­leggja sjáv­ar­botn­inn þar sem hum­ar­inn hefst við.

Ólafur kveðst ekki geta svarað því hvernig best sé að bregð­ast við ástand­inu en útgerð hans hefur ekki náð kvóta und­an­farin fjögur sumur. „Þessu er nátt­úr­lega sjálf­hætt, ég hef ekki efni á að gera út á þetta í dag, það er bara svo­leiðis. Það er alveg skelfi­legt að eyði­leggja þetta svona fyrir sjálfum sér,“ segir hann en við­ur­kennir að hann muni eflaust reyna eitt­hvað áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina