Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Mér finnst orðið sjúklega töff vera umhverfisvæn týpa“

Lög­fræð­ing­ur­inn Eva H. Bald­urs­dóttir skrifar um sjálf­bæran lífs­stíl í sínum nýjasta pistli.

„Mér finnst orðið sjúklega töff vera umhverfisvæn týpa“
|
Eva H. Bald­urs­dóttir.

„Mér finnst orðið sjúk­lega töff að vera umhverf­is­væn týpa, sem kýs að vera á hjóli og nota almenn­ings­sam­göngur þegar ég get, vel að borða ekki kjöt, vel að nota bíl minna, vel að kaupa minna dót. Ég er stolt af því að minnka vist­spor mitt og á sama tíma gera betur við budd­una og heils­una mína,“ skrifar lög­fræð­ing­ur­inn Eva H. Bald­urs­dóttir í sinn nýjasta pistil sem fjallar um sjálf­bæran lífs­stíl.

„Að velja sjálf­bær­ari lífs­stíl þýðir að það þarf að breyta lifn­að­ar­háttum. T.d. að draga úr þörf­inni fyrir notkun nátt­úru­auð­linda, velja að kaupa ekki vörur sem fram­leiddar eru með ósjálf­bærum hætti eða breyta umgengni í okkar dag­lega lífi t.d. að flokka rusl, sóa ekki mat og svo fram­vegis,“ skrifar Eva sem við­ur­kennir að það sé í sjálfu sér ekki ýkja langt síðan hún fór að hugsa um þessa hluti.

Við sjáum ekki að kjúklingar eru fram­leiddir í verk­smiðju eins og hver annar hlutur. Þeir eru hins vegar lif­andi dýr. Við vitum þetta flest, en kjósum að líta fram hjá því.

Hún bendir á að fólk í nútíma­sam­fé­lagi eigi það til að gleyma að hugsa um upp­runa hluta og hvar hlutir enda svo. „Til dæmis kjúkling­ur­inn sem við borðum kemur á frauð­bakka beint úr verslun, pakk­aður í plast. Við sjáum ekki að kjúklingar eru fram­leiddir í verk­smiðju eins og hver annar hlutur. Þeir eru hins vegar lif­andi dýr. Við vitum þetta flest, en kjósum að líta fram hjá því. Að sama skapi sjáum við aldrei allt magnið af rusli sem heim­ilið losar t.d. á ári á einum stað. Það væri eflaust ágætis raun­veru­leika­teng­ing á hrúga því öllu á einn stað. Því allt sem við kaupum endar ein­hvers staðar, hvort sem því er fargað eður ei.“

Með­fylgj­andi eru svo átta góð ráð frá Evu:

  1. Minnka bíl­notkun, draga úr skutli og nýta ferð­irnar betur – hér eru ótal val­mögu­leikar, t.d. að sleppa bílnum stundum, eiga bara einn bíl á fjöl­skyldu, nýta ferð­irnar betur í búð­ina, nota almenn­ings­sam­göngur og hjólið, taka strætó með börnum sínum og kenna þeim að nota hann sem og ferð­ast með öðru fólki til vinnu eða í skól­ann.
  2. Draga úr óþarfa neyslu – að taka upp mínimal­isma í hugsun og fram­kvæmd. Spyrja sig hvort maður þurfi það sem maður eru að kaupa, hvort að þessi gjöf sé skyn­sam­leg kaup, draga úr óþarfa eyðslu, kaupa notuð hús­gögn á bland eða fara í góða hirð­inn og svo fram­vegis.
  3. Færri flug­ferðir.
  4. Nota sjálf­bær hreinsi­efni á heim­ilið.
  5. Minnka kjötát – t.d. má sleppa því suma daga og sleppa því að kaupa verk­smiðju­fram­leitt kjöt.
  6. Rækta eigin mat t.d. að vera með garð, krydd­jurtir eða salat. Nú má rækta mjög margt á svöl­unum.
  7. Sleppa mat­ar­sóun með að vera með­vituð í mat­ar­inn­kaupum, elda það sem er til og skipu­leggja inn­kaup með hlið­sjón af því hvað er til.
  8. Muna eftir fjöl­nota­pok­unum í mat­vöru­versl­unum, ekki taka plast­poka fyrir græn­meti og forð­ast vörur pakk­aðar í plast. Í mót­mæla­skyni má t.d. taka vörur úr óþarfa plast­um­búðum og skilja þær eftir sem og mæta með eigin ílát.

Pistil Evu má lesa í heild sinni hérna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina