Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Málning er töfraefni

Hægt er að inn­rétta heim­ilið með skil­virkum og ódýrum hætti – þótt vissu­lega finnst ein­hverjum það vera dýrt sem öðrum finnst vera ódýrt. Thelma Guð­munds­dóttir, inn­an­húss­arki­tekt hjá Arkís arki­tektum, gefur nokkur góð ráð hvað þetta varðar.

Málning er töfraefni
||

Það þarf oft ekki að gera mikið til að breyta ásýnd heim­il­is­ins örlítið en það sem passar einum passar kannski ekki öðrum. „Það sem er ódýrt fyrir einn er dýrt fyrir annan og svo fer þetta líka eftir því hvort um er að ræða nýtt eða gam­alt hús­næði,“ segir Thelma Guð­munds­dóttir, inn­an­húss­arki­tekt hjá Arkís arki­tektum. Fólk ætti að byrja á því að taka saman hvað það langar til að gera, hvað það gæti kostað og velja svo og hafna. Það er gott að vita áður út í hvað er verið að fara og sjá hvað er brýnt að gera.“

Thelma Guð­munds­dóttir, inn­an­húss­arki­tekt hjá Arkís arki­tektum. Mynd úr einka­safni.

Hún segir að ef verið sé að tala um venju­legt heim­ili og fólk vilji breyta með ódýrum og á sem hag­kvæm­asta hátt, þá myndi hún segja að máln­ing væri töfra­orðið. „Það breytir miklu að skipta um lit á veggjum. Það eru svo margir fal­legir litir í tísku í dag svo sem bláir, grænir og bleikir tónar en gráu tón­arnir eru enn mjög vin­sælir og flestir kjósa þá. Það er fólk sem þorir að mála í fyrr­nefndu lit­unum eins og bleikum og grænum en ef það er ekki til miklir pen­ingar þá vill fólk gera eitt­hvað sem end­ist og það yrði frekar leitt á slíkum litum.“

Það eru svo margir fal­legir litir í tísku í dag svo sem bláir, grænir og bleikir tónar en gráu tón­arnir eru enn mjög vin­sælir og flestir kjósa þá.

Mála eða bæsa húsgögn

Thelma talar líka um liti á sófa­settum og stólum. „Það er best að kaupa sófa og stóla í skot­heldum litum svo sem í gráum eða dökkum litum.“ Hún bendir á að ef fólk er leitt á sóf­anum þá sé til­valið að kaupa í hann púða eða fal­legt teppi til að setja á end­ann og þá sé hann kom­inn með nýtt útlit.

Hún bendir á að upp­röðun hús­gagna skipti máli. „Það skiptir máli hvað tekur á móti manni þegar maður kemur inn; hvað er það fyrsta sem maður sér. Og einnig er líka skemmti­legt að breyta til stundum.“

Thelma segir að eigi fólk hús­gögn eða inn­rétt­ingar sem eru farin að láta á sjá sé til­valið að lakka þau og setja nýjar höldur á skápa­hurðar. „Svo­leiðis breytir oft öllu,“ segir hún. „Þannig er hægt að breyta inn­rétt­ingu á frekar ódýran hátt miðað við að kaupa nýja. Tískan í dag er að lakka með svörtu. Það er líka hægt að skipta um flísar á milli efri og neðri skápana í eld­húsinn­rétt­ingu sem draga athygl­ina að sér, en það er svo mikið úrval til af skemmti­legum flísum í dag, og fá nýja borð­plötu.“

Falleg lýsing breytir miklu

Thelma segir lýs­ingu líka skipta miklu máli á heim­ilum. „Mér finnst íbúðir oft vera und­ir­lýstar, fáar dósir í loft­unum og erfitt að finna ljós sem hentar rým­inu. Besta lausnin er að nota brautir sem til eru bæði í svörtu og hvítu sem leysir þessi mál. Mikið úrval kast­ara er til í þessar brautir þar sem þeim er smellt í braut­ina og auð­velt er að auka við lýs­ingu eða breyta henni. Með nýmál­uðum veggjum og upp­færðri lýs­ingu er strax búið að breyta umgjörð­inni. Ég vil líka minna á gólf- og vegg­lampa sem gleym­ast oft en þeir skapa svo skemmti­lega stemn­ingu.“

Mér finnst íbúðir oft vera und­ir­lýstar, fáar dósir í loft­unum og erfitt að finna ljós sem hentar rým­inu.

Púðar, ný gluggatjöld og mottur

Uppgerð hilla sem fékk nýtt líf með svörtu lakki. Í dag notuð sem skó­hilla í for­stofu. Mynd úr einka­safni.

Thelma nefnir líka glugga­tjöld þegar kemur að því að breyta til á heim­il­inu. „Tauglugga­tjöld eru í tísku núna sem hanga í brautum og niður á gólf. Rúllu­glugga­tjöld, eða „screen“, eru enn vin­sæl en tauglugga­tjöld gera rýmið svo hlý­legt.“

Hvað gólfið varðar segir Thelma að mottur, sem eru mikið í tísku, geti breytti miklu. „Auðvitað má kaupa sér­stakar mottur en það er líka hægt að fara í teppa­búðir og láta skera mottur í ákveðnar stærðir en þar fæst svo mikið úrval af litum og mynstrum. Mottur eru góðar í að fela þreytt og lúin gól­f­efni.“

Thelma nefnir líka plöntur. „Þær lífga ein­hvern veg­inn svo­lítið upp á rýmið,“ segir hún.

Hvað varðar skraut­muni segir hún að það geti verið snið­ugt að færa hluti til, setja jafn­vel eitt­hvað í geymslu í ein­hvern tíma og skipta svo út. „Það er snið­ugt að safna þessu í grúppur og láta vera and­rými inn á milli.“

Hún segir að ann­ars sé auð­vitað mis­jafnt hvernig umhverfi fólki líði best í. „Heimili þarf yfir­leitt að henta nokkrum aðilum og ekki skal gleyma að það þarf líka að virka sem heim­ili, til dæmis vera praktískt en hlý­legt. Heimilið á að vera griða­staður þeirra sem þar búa og sam­komu­staður fjöl­skyld­unnar.“

Texti / Svava Jóns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina