Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Útsýnisíbúð í Holtunum innréttuð á einstakan hátt

Í Braut­ar­holti í Reykja­vík býr Björg Flygenring Finn­boga­dóttir, við­skipta­fræð­ingur og nem­andi í Parsons school of design í New York. Húsnæðið var áður iðn­að­ar­hús­næði og byggt árið 1960. Íbúðin er á efstu hæð þar sem vinnu­stofur voru áður en þeim var breytt í íbúðir á síð­asta ári.

Útsýnisíbúð í Holtunum innréttuð á einstakan hátt

„Það sem heill­aði mig mest er hvað íbúðin er björt, með stórum gluggum í bæði norður og suður. Ég elska líka hvað hátt er til lofts og svo finnst mér heill­andi hvernig loftið hallar sem er í takt við bygg­ing­ar­stíl þess tíma þegar húsið var byggt. Útsýnið úr svefn­her­berg­inu í norður er víð­áttu­mikið og ég sé bæði Esjuna og sjó­inn.

Björg Flygenring Finn­boga­dóttir.

Íbúðin er líka með stórar svalir í suður en ég hef ekki getað notið þeirra mikið þetta sum­arið. Svo langar mig að nefna hverfið sem íbúðin er í. Ég hef trú á Holtunum sem vax­andi hverfi og held að hér muni ger­ast spenn­andi hlutir á næstu árum. Hér er ég nálægt bænum og allri helstu þjón­ustu. Hluti hverf­is­ins er enn þá ómótað fyrrum iðn­að­ar­hverfi en mér finnst allt vera að lifna hér við og er viss um að með fleiri íbúðum á þessu svæði verði þetta enn skemmti­legra og huggu­legra svæði,“ segir Björg.

„Ég er alin upp af fag­ur­kera, mömmu minni. Hún hefur alltaf lagt áherslu á að hafa fal­legt umhverfi og að gera heim­ili sitt huggu­legt fyrir sjálfa sig og engan annan,“ segir Björg.

Björg er mik­ill fag­ur­keri og hefur gott lag á að blanda saman hlutum úr ólíkum áttum sem gefa íbúð­inni ein­stak­lega fal­lega heild­ar­mynd.

Björg blandar gömlu og nýju saman.

„Ég er mjög hrifin af því að blanda saman gömlum og nýjum munum. Ég er með per­sónu­leg tengsl við alla hlut­ina mína og þetta er sam­an­safn úr mörgum áttum og tíma­bilum. Ég var svo heppin að for­eldrar mínir fluttu fyrir um þremur árum og minnk­uðu við sig. Ýmis hús­gögn sem ekki gátu fengið pláss á nýja heim­il­inu þeirra röt­uðu því til mín. Þá hefur systir mín líka verið örlát og gefið mér fína hluti sem hún hafði ekki not fyrir lengur,“ segir Björg.

Með fókus á vand­aða hluti

„For­eldrar mínir hafa alltaf verið mikið fyrir antík og gamla hluti og þeir hafa fylgt mér hingað. Til við­bótar hafa svo bæst við aðrir hlutir. Ég er til dæmis með skáp frá langömmu minni, kúa­skinns­stól frá 1980, nútíma­legt skrif­borð úr Habitat sem ég fékk í ferm­ing­ar­gjöf, sófa­borð sem for­eldrar mínir létu sér­hanna og mat­ar­borð frá 1920 sem ég flutti heim með mér frá Svíþjóð.

„For­eldrar mínir hafa alltaf verið mikið fyrir antík og gamla hluti og þeir hafa fylgt mér hingað.“

Það segir ýmis­legt að þegar ég flutti hingað þá vant­aði mig ekki nein hús­gögn nema einn sófa og end­aði á að kaupa mér hann í IKEA. Einhvern veg­inn kemur þetta heim og saman í þess­ari íbúð. Ég myndi því segja að stíll­inn sé úr öllum áttum, til­vilj­ana­kenndur en með fókus á vand­aða og per­sónu­lega hluti,“ segir Björg aðspurð hvernig hún myndi lýsa eigin stíl.

Mynd / Hallur Karlsson

Finnst gaman að fara á flóamarkaði

Björgu finnst skemmti­legt að fara á nytja­mark­aði og finna þar fal­lega hluti með nota­gildi.

„Ég er mikið fyrir gamla og not­aða hluti og satt að segja finnst mér Nytja­mark­að­ur­inn í Kópavogi frá­bær búð. Þar hef ég keypt mér alls konar hluti eins og ljós, hillur og glös. Þegar flutt er í sína fyrstu íbúð vantar margt smá­dót, til dæmis í eld­húsið, og er kjörið að kaupa það notað. Alveg jafn­gott, umhverf­is­vænt og ódýrt,“ segir Björg en bætir við henni finn­ist einnig gaman að fara á flóa­mark­aði erlendis en hún hefur ferð­ast víða og búið í nokkrum löndum.

Björg fær helst inn­blástur úr dönskum hönn­un­ar­blöðum og á Pinter­est en sú sem hefur veitt henni mestan inn­blástur er mamma hennar.

„Mér finnst þó vanta til Íslands almenni­legan flóa­markað líkt og eru til dæmis í Berlín. Ég var í Tókýó í fyrra og þar fannst mér gaman að skoða litlar hönn­unar- og inter­ior-versl­anir. Nútíma­legur jap­anskur stíll er fág­aður, ein­faldur og vand­aður en með hlý­legum og sér­kenni­legum áherslum,“ segir hún.

Aðspurð hvaðan hún sækir inn­blástur seg­ist Björg oft skoða dönsk hönn­un­ar­blöð og skoða Pinter­est en sú sem hefur veitt henni mestan inn­blástur er mamma hennar.

„Ég er alin upp af fag­ur­kera, mömmu minni. Hún hefur alltaf lagt áherslu á að hafa fal­legt umhverfi og að gera heim­ili sitt huggu­legt fyrir sjálfa sig og engan annan. Ég hef haft þetta að leið­ar­ljósi þegar ég inn­rétta mína íbúð. Ég nenni ekki að fylgja öllum straumum og stefnum sem eru í gangi heldur vil ég umkringja mig með hlutum sem mér finn­ast fal­legir. Mamma mín hefur einnig kennt mér að treysta mest á minn eigin smekk þegar kemur að því að velja hluti fyrir heim­ilið svo ég held að ég geti sagt með sanni að hún sé minn stærsti inn­blástur,“ segir Björg að lokum.

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni