Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Borðplötur – ýmsir möguleikar í boði

Alls konar efni í borð­pötur eru í boði, granít, marmari, kvarts­steinn og basalt­steinn, harð­plast, harð­viður og fleira. Hver og einn verður svo að velja borð­plötu eftir sínu nefi og smekk. Allt hefur sína kosti og galla.

Borðplötur – ýmsir möguleikar í boði
Marmari

Marmari er tign­ar­legur það verður ekki af honum tekið og algengastur er hann hvítur með gráum æðum en hann er samt til í mörgum lit­brigðum. Gallinn við marm­ara­borð­plötu í eld­húsi er að ef til dæmis rauð­vín hellist niður og liggur á marm­ar­anum geta mynd­ast blettir sem erfitt er að ná af en ítalir setja það ekki fyrir sig og nota marm­ar­ann mikið og hafa gert í marga ára­tugi. Það sama á við um efni sem inni­halda sýrur; ef sítrónu­safi t.d. fær að liggja á borð­inu ætir hann upp marm­ar­ann. Og eins og með granítið, það má ekki heldur nota sterk hreinsi­efni á hann. Nið­ur­staðan er þá kon­ung­legur bragur á borð­plötu sem þarf að hugsa um svo hún hald­ist fal­leg, og ekki sulla niður rauð­víni.

Granít

Granít er harð­asta stein­teg­undin, það er gróf­kornótt djúp­berg, þolir mikið álag og er mjög slitsterkt þannig að ef þú ert í fram­tíð­ar­hús­næði og vilt borð­plötu sem end­ist svo lengi að þú þarft aldrei að skipta um þá er granít kannski eitt­hvað sem hentar þér. Kost­ur­inn við granítið er að á það má leggja sjóð­andi heita potta og pönnur. Það er algeng­ast í svörtu og ljósu. Það sem þarf að passa ef borð­platan er úr graníti er að nota ekki sterk hreinsi­efni og að láta ekki efni sem inni­halda sýrur liggja á borð­inu því sítrónu­safi t.d. ætir upp granítið. Einnig ætti að var­ast að láta fitu og rauð­vín liggja á granít­borð­plötu því þá geta mynd­ast blettir.

Viður

Olíu­borið lím­tré er til dæmis einn við­ar­kostur í eld­hús. Olían verndar við­inn og er vatns­frá­hrind­andi en passa þarf að bera reglu­lega olíu á lím­trés­plötur svo þær end­ist betur og haldi feg­urð sinni. Eins geta mynd­ast sprungur ef við­ur­inn þornar mikið og það viljum við ekki því þá er aðgangur vökva greiður inn í við­inn, þ.e. ef hellist niður í sprung­una. Viðurinn er alltaf hlý­legur og hann er líka hag­kvæm­ari kostur en margt annað.

Kvarts

Kvarts­steinn er unnin steinn. Við fram­leiðslu hans eru stein­teg­undir muldar niður, blandað í þær litar- og bindi­efnum og svo er þetta pressað aftur saman. Kvarts­steinn er mjög slitsterkt efni og hann er með lok­aðra yfir­borð en nátt­úru­steinn, eins og marmari eða granít, sem þýðir að hann blettast ekki jafn­auð­veld­lega og ef það hellist niður rauð­vín sleppur þú vænt­an­lega við bletti þótt það liggi á borð­plöt­unni í ein­hvern tíma. Kvarts­borð­plötur er til í mörgum litum og með mis­mun­andi korna­stærðum. Kvarts er vin­sæll í dag hjá þeim sem vilja stein­borð­plötu og kannski ekki síður vegna þess að hægt að fá hann í „hreinum“ litum, hvítum, gráum, svörtum og alls konar litum.

Basalt­steinn

Basalt er hægt að fá í borð­plötu en basalt er algeng­asta stein­teg­und á íslandi. Það er grátt og líka til nán­ast alveg svart. Basalt hentar vel á gólf og veggi inni og úti og einnig í eld­hús. Basalt­borð­plata er mjög sterk því þetta er mjög lokuð stein­teg­und. Það má setja sjóð­andi heitt á basalt og það á ekki að blettast. Þessi algeng­asta stein­teg­und á íslandi hefur því ýmsa kosti.

Akríl­steinn

Til eru fleiri en ein sam­setn­ing af akríl­steinum (frá mis­mun­andi fram­leið­endum) en hann er t.d. búinn til úr hreinu akrílefni, nátt­úru­legum efnum og nátt­úru­legum lit­ar­efnum og jafn­vel trjá­kvoðu. Það koma ekki blettir á akríl­stein­inn því hann er mjög lokað efni, hann upp­lit­ast ekki og það er hægt að pússa upp rispur með sand­pappír ef þær mynd­ast með tíð og tíma. Það er hægt að fá hann í mörgum litum, sam­skeytin eru nán­ast ósýni­leg og svo er mjög auð­velt að þrífa akríl­stein­inn. Hann er mjög hita­þol­inn en það er víst örugg­ara að nota hita­hlíf undir sjóð­andi heita potta og pönnur. Það má ekki skera beint á akríl­stein­inn því hann getur þá rispast en ef það ger­ist skilst mér að hægt sé að pússa burtu risp­urnar þannig að það er ekki hund­rað í hætt­unni.

Harðplast

Harð­plast er hag­kvæm­ari kostur en steinn­inn sem er nokkuð dýr þar sem stein­plata í með­al­stórt eld­hús kostar yfir­leitt nokkur hund­ruð þús­und. Harð­plastið er slitsterkt og ætti því að end­ast lengi, það er við­halds­frítt og vin­sælt efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni