Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Draugagangur í nýrri íbúð

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni Við fluttum í nýju íbúð­ina okkar á sól­ríkum sum­ar­degi. Veðrið end­ur­spegl­aði gleði okkar og til­hlökkun því þetta var fyrsta heim­ilið sem við hjónin áttum sjálf. Dóttir okkar var yfir sig spennt að eign­ast sér­her­bergi eftir að hafa þurft að kúldr­ast með bróður sínum í pínu­lít­illi kompu. Þarna var stór draumur að ræt­ast

Draugagangur í nýrri íbúð

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Við fluttum í nýju íbúðina okkar á sólríkum sumardegi. Veðrið endurspeglaði gleði okkar og tilhlökkun því þetta var fyrsta heimilið sem við hjónin áttum sjálf. Dóttir okkar var yfir sig spennt að eignast sérherbergi eftir að hafa þurft að kúldrast með bróður sínum í pínulítilli kompu. Þarna var stór draumur að rætast en hann átti eftir að breytast í martröð.

Ég og Viðar kynnt­umst í mennta­skóla og byrj­uðum að vera saman á loka­ár­inu okkar. Þaðan lá leiðin í Háskól­ann og Rósa fædd­ist þegar ég var á öðru ári í námi. Við lukum okkar prófum hér heima og fluttum út í fram­halds­nám í tvö ár. Þar fædd­ist Benni rétt eftir að náms­tím­anum lauk. Viðar fékk strax góða vinnu eftir að heim kom en mér gekk verr að kom­ast að í mínu fagi enda er það sér­hæfð­ara. Það tókst þó að lokum en í þrjú ár vorum við á hrakn­ingi á leigu­mark­aði. Íbúð­irnar sem við leigðum áttu það sam­eig­in­legt að vera litlar og fremur sjú­skaðar. Rósa var orðin sex ára og henni fannst ömur­legt að vera með þriggja ára bróður sínum í her­bergi. En það gekk hægt og illa að spara og það var ekki fyrr en for­eldrar mínir lögðu okkur til útborgun í íbúð, fyr­ir­fram­greiddan arf, að við gátum keypt.

Íbúðin okkar var í nýju hverfi, í glæsi­legri blokk, rúm­góð og fín. Síðustu dag­ana áður en við fluttum inn svaf Rósa ekki fyrir spenn­ingi. Hún var búin að skipu­leggja her­bergið frá a-ö og raða öllu upp í hug­anum. Ég var ofboðs­lega ánægð með að geta loks­ins veitt dóttur minni þann munað að eiga pláss út af fyrir sig. Svo rann upp þessi gleði­dagur og búslóðin borin inn á nýja stað­inn. Rósa hófst þegar handa við að draga kassa merkta henni inn í her­bergi og taka upp úr þeim. Pabbi hennar hjálp­aði henni að koma rúm­inu fyrir og setja upp hillur og strax þetta kvöld voru bæk­urnar hennar komnar á sinn stað, styttur í glugga­kist­una og nokkur upp­á­halds­leik­föng. Hún braut einnig vand­lega saman fötin sín og rað­aði ofan í kommóð­una. Við vorum öll þreytt og en ánægð þegar við fórum að sofa.

Leið illa í herberginu sínu

Um miðja nótt hrökk ég upp við það að Rósa stóð við rúm­stokk­inn hjá mér. Hún skalf og nötr­aði og bað um að fá að koma upp í. Ég spurði hvort hana hefði dreymt illa og hún svar­aði því ját­andi. Ég rýmdi til fyrir henni og það sem eftir lifði nætur svaf hún hjá okkur. Morg­un­inn eftir var Rósa alveg búin að jafna sig og við nutum þess að borða saman í eld­hús­inu fyrsta sinn. Næstu nótt end­ur­tók sagan sig og svo nótt­ina þar á eftir. Ég fór líka fljót­lega að taka eftir því að Rósa var lítið inni í sínu her­bergi. Hún var frammi hjá okkur öllum stundum sem kom á óvart miðað við hve heitt hún þráði að eign­ast sér­her­bergi. Ég velti þessu samt ekk­ert mikið fyrir mér þangað til Benni fór að tala um mann sem hann sæi reglu­lega í eld­hús­inu.

Til að byrja með hélt ég að Benni hefði komið sér upp ímynd­uðum vini, eins og barna með frjótt ímynd­un­ar­afl er siður, en svo fór að koma í ljós að honum var ekki sér­lega vel við þennan mann. Hann tal­aði oft um að mað­ur­inn væri reiður og eitt sinn bað hann mig að reka mann­inn burtu. Þetta var mjög óhugn­an­legt og í kjöl­farið gekk ég á Rósu og spurði hana hvers vegna hún vildi ekki vera inni í sínu her­bergi. Hún sagði mér að sér liði ekki vel þar. Hvers vegna gat hún ekki skýrt, sagði bara að sér fynd­ist ekki gott að vera þar. Nokkrum sinnum fór ég með henni inn í her­bergið og reyndi að púsla eða teikna með henni en mjög fljót­lega varð hún eirð­ar­laus og vildi kom­ast fram. Hún tal­aði um að sér væri kalt og það væri vont að vera þarna og bað mig um að flytja dótið fram í stofu.

Ég verð að við­ur­kenna að þetta fór mjög fljótt að hafa áhrif á mig. Ég var farin að finna fyrir kvíða þegar ég stakk lykl­inum í skránna og opn­aði fyrir mér og börn­unum í eft­ir­mið­dag­inn. Ég gerði mitt besta til að leyna þessu og vera glöð og ánægð í kringum þau en ónota­til­finn­ingin jókst með degi hverjum. Viðar fann ekki fyrir neinu og hló að mér þegar ég sagði honum þetta. „Hvað ætti að vera í íbúð­inni og hvers vegna vondur andi?“ sagði hann og hló. „Þetta er alveg nýtt hús.“ Jú, ég vissi það og barði þess vegna á sjálfri mér fyrir ímynd­un­ina og vit­leys­una. Maður tengir jú drauga­gang fyrst og fremst við gömul hús.

Maðurinn enn á ferð

Tíminn leið og ekk­ert breytt­ist. Rósa hélt áfram að koma inn til okkar á næt­urnar og forð­ast her­bergið sitt á dag­inn. Benni tal­aði af og til um mann­inn og einn morg­un­inn þegar Viðar var að gefa þeim að borða sneri hann sér við í stólnum og benti aftur fyrir sig. „Pabbi, þarna er mað­ur­inn,“ sagði hann. Viðar hló bara að þessu og hélt áfram að gera grín að mér fyrir van­líð­an­ina. Ég sagði Dóru, vin­konu minni, frá þessu en hún er ein þeirra er trúir á að ekki sé allt sýni­legt öllum í þess­ari ver­öld og hún vildi endi­lega koma í heim­sókn með konu sem hún þekkti, miðil. Ég sam­þykkti það, enda á þessum tíma eig­in­lega til­búin til að gera hvað sem er til að okkur liði betur. Ég sló þó þann varnagla að skipa Dóru að stein­þegja um það sem gengið hafði á og hún mætti alls ekki tala um mann­inn eða að það væri her­bergi Rósu sem virt­ist versti and­inn í.

Mið­ill­inn kom og gekk her­bergi úr her­bergi en stað­næmd­ist strax í her­bergi Rósu. Þar tók hún um hjartað um stund og and­aði djúpt nokkrum sinnum með lokuð augu. Svo sagði hún: „Hér er ein­hver sem fær ekki frið.“ Mér dauð­brá. Þótt ég hefði barist við þessa óljósu og erf­iðu óþæg­inda­til­finn­ingu fannst mér bein­línis ógn­vekj­andi að fá stað­fest­ingu á að eitt­hvað væri þarna. Við sett­umst svo saman frammi í stofu og mið­ill­inn tók um hendur okkar beggja og við báðum saman fyrir ráð­villtri sál, eins og hún orð­aði það. Eftir komu hennar var friður um stund og Rósa svaf í fyrsta sinn heila nótt í sínu her­bergi.

Nokkrum dögum seinna fórum við í ferða­lag með krakk­ana og komum við hjá gam­alli frænku Viðars. Hún hafði verið gift breskum manni og eldri bróðir hans var her­maður í seinni heim­styrj­öld­inni. Uppi á vegg var mynd af honum í her­bún­ingi. Allt í einu benti Benni á mynd­ina og sagði: „Mamma, mað­ur­inn.“ Ég kippt­ist við og leið ömur­lega en Viðar yppti öxlum og útskýrði fyrir frænku sinni að dreng­ur­inn hefði komið sér upp ímynd­uðum vini og greini­lega minnti þessi maður eitt­hvað á hann. Ég á hinn bóg­inn varð strax sann­færð um að það væri her­bún­ing­ur­inn sem hefði vakið athygli Benna.

Leitað til prests

Róin eftir heim­sókn mið­ils­ins varði ekki lengi. Rósa var aftur farin að koma inn til okkar á næt­urnar og Benni tal­aði áfram um mann­inn. Hann var far­inn að biðja mig að reka hann burtu þegar hann vildi kom­ast inn á svefn­her­berg­is­gang­inn og alltaf var aug­ljós­ara að drengnum var alls ekki vel við þennan mann. Hann vældi stundum og bað mig að segja honum að fara og það kom einnig fyrir að hann eins og reyndi að ýta ein­hverjum frá sér. Rósa á hinn bóg­inn sá aldrei neitt en van­líðan hennar magn­að­ist líka. Henni var illa við þetta tal bróður síns þótt ég reyndi eftir bestu getu að full­vissa hana um að þetta væri bara ímyndun og eitt­hvað sem væri algengt meðal barna. Ég var orðin örvænt­ing­ar­full og fannst hræði­legt að sjá börnin mín í þessum aðstæðum. Að lokum krafð­ist ég þess við Vidda að við töl­uðum við prest.

Hann hló að mér til að byrja með en varð svo ösku­reiður, fannst þetta ger­sam­lega út í hött en ég stóð föst á mínu. Ég fór og tal­aði við sókn­ar­prest­inn og hann tók mér vel, hlust­aði en var aug­ljós­lega á sama máli og Viðar að ég léti streitu og hug­mynda­flugið ná tökum á mér. Hann stakk samt upp á því að hann kæmi heim til okkar og bless­aði heim­ilið ef mér liði betur við það. Ég var til­búin að reyna hvað sem er og úr varð að hann gerði þetta. Ég fann fyrir ákveðnum létti þegar hann fór en blessun hans breytti engu.

„Við settum íbúð­ina á sölu skömmu síðar og keyptum aðra langt frá þeirri sem við vorum í.“

Þremur dögum eftir þetta hrökk Viðar upp með and­fælum um miðja nótt. Hann stökk fram úr rúm­inu og ég vakn­aði við að hann stóð frammi við dyrnar og skalf. Honum hafði fund­ist ein­hver beygja sig yfir sig í rúm­inu og þrengja að brjóst­inu. Honum leið mjög illa og við sátum góða stund frammi í eld­húsi á meðan hann jafn­aði sig og hann ætl­aði aldrei að þora að fara aftur inn í rúm. Við settum íbúð­ina á sölu skömmu síðar og keyptum aðra langt frá þeirri sem við vorum í. Eftir að við fluttum þangað hefur Benni ekki minnst á mann­inn og Rósa er alsæl með her­bergið sitt. Mér líður mjög vel og finn ekki fyrir neinum óþæg­indum. Ég segi ekki að Viðar hafi við­ur­kennt að eitt­hvað hafi átt sér stað í hinni íbúð­inni en hann er hættur að gera lítið úr orðum mínum þegar ég tala um þetta. Fyrir nokkrum dögum sá ég gamla heim­ilið mitt á skrá hjá fast­eigna­sala í þriðja sinn á einu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu