Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Slökunaraðferðir sem koma þér í jafnvægi

Ef þú finnur fyrir mik­illi streitu, lík­am­legri spennu eða and­legu ójafn­vægi geta ýmsar slök­un­ar­að­ferðir hjálpað þér að kom­ast aftur í jafn­vægi og ná meiri vellíðan á sál og lík­ama.

Slökunaraðferðir sem koma þér í jafnvægi

Að vinna gegn áhrifum streitu og halda sér í góðu jafn­vægi gerir öllum gott – því þegar manni líður vel er maður marg­falt betri útgáfa af sjálfum sér og nær að vera betur til staðar bæði fyrir sjálfan sig og aðra.

Hugræn slökun

Eitt af því áhrifa­rík­asta til að ná innri ró og slökun er hug­leiðsla. Það eru til ótal margar gerðir af hug­leiðslu – núvit­und, leidd hug­leiðsla, kyrjun mantra og margt fleira, en fyrir þá sem hafa enga reynslu af slíku er núvit­und mjög ein­föld og góð leið til að byrja á.

Núvitund snýst um að vera til staðar hér og nú og taka eftir því sem er að ger­ast hið innra. Maður situr með lokuð augun, er beinn í baki og ein­beitir sér að önd­un­inni. Alls konar hugs­anir koma til manns, en maður sleppir tök­unum á þeim jafn­óðum og heldur áfram að ein­beita sér að and­ar­drætt­inum. Smám saman nær maður að slaka betur á og ná betri teng­ingu við til­finn­ingar sínar og sinn innsta kjarna.

Annað sem virkar mjög vel er „yoga nidra“ en það er leidd djúp­slökun.  Gong-slökun er önnur dásam­leg leið til að ná innri ró, þar sem maður liggur á meðan spilað er á hið hljóm­fagra gong.

ASMR-mynd­bönd á YouTube hafa náð gríð­ar­legum vin­sældum út um allan heim og nýta millj­ónir manna sér þau til að ná slökun og auka vellíðan. Fyrir þá sem hafa ekki heyrt um ASMR er um að gera að finna vin­sælt mynd­band á YouTube, setja heyrn­ar­tólin á sig og horfa/hlusta. Þú munt að öllum lík­indum slaka vel á, fá gæsa­húð, kraft­mik­inn hroll … og lík­leg­ast massí­van kjána­hroll með þessu öllu saman.

Ilmkjarnaolíur

Ilm­kjarna­ol­íur geta verið mjög öfl­ugar til að hjálpa manni að slaka á, en ein algeng­asta olían til slök­unar er lavender-olían. Það er hægt að setja nokkra dropa af henni út í vel heitt bað ásamt góðri olíu, slökkva ljósin, kveikja á nokkrum kertum og setja slak­andi tón­list á. Svo er hægt að liggja í bað­inu og nudda lík­amann frá toppi til táar á meðan slakað er á og enda á að liggja í algerri slökun.

Fyrir þá sem eiga erfitt með að ná sér niður og sofna á kvöldin er mjög snið­ugt að eiga blöndu af olíu og lavender-dropum sem notuð er til að nudda sig í smá­stund fyrir svefn­inn. Það er alveg nóg að nudda efri hluta lík­am­ans og maður getur auð­veld­lega gert það sjálfur. Ef maður nennir því ekki getur maður líka sett nokkra dropa á lík­amann og andað að sér ilm­inum, en fyrir þá sem vilja taka þetta alla leið er hægt að kaupa sér ilmol­íu­lampa og setja nokkra dropa í hann þegar maður vill slaka á.

Hreyfing og bætiefni

Flestir tengja kannski ekki hreyf­ingu við slökun, en stað­reyndin er sú að hreyf­ing er ein besta leiðin til að vinna gegn streitu og ná að slaka almenni­lega á. Rólegar göngur, hlaup, jóga og sund eru allt frá­bærar leiðir til að hreyfa lík­amann, en oft getur það veitt enn meiri slökun þegar hreyf­ingin fer fram utandyra í fal­legri nátt­úru; því nátt­úran ein og sér býr yfir sér­stökum heil­un­ar­mætti.

Til eru fullt af alls konar slak­andi jurtum sem not­aðar eru í te eða teblöndur, og er um að gera að nýta sér þær. Sítrónu­melissa, kamilla, fennel og rauðr­unni eru dæmi um jurtir sem hafa slak­andi áhrif. Annað sem margir eru hrifnir af til að ná meiri slökun er magnesí­um­duft. Það er sett út í sjóð­andi vatn og drukkið, til dæmis fyrir svefn­inn.

Texti / Fjóla María Bjarna­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu