Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Held að ég hafi eytt meiripartinum af peningunum mínum undanfarin ár í þetta safn“

Trans­for­mer er málið fyrir Guðjón Orra Gunn­ars­son sem er tví­tugur Reyk­vík­ingur og á eitt stærsta safn Íslands af plast­körlum af teg­und­inni Trans­for­mer auk ýmissa ann­arra fígúra af svip­uðu tagi.

„Held að ég hafi eytt meiripartinum af peningunum mínum undanfarin ár í þetta safn“

„Trans­for­mer eru per­sónur utan úr geimnum sem hafa hug á að leggja undir sig orku­lindir jarð­ar­innar. Sumir með ofbeldi en aðrir í sam­starfi við jarð­ar­búa. Þeir dul­búa sig sem far­ar­tæki á jörð­inni til þess að koma áformum sínum í kring,“ segir Guðjón Orri þegar við stöndum saman og skoðum safnið hans.

Hvenær fórstu að safna Trans­for­mer-per­sónum? Blaða­maður spyr andakt­ugur er hann virðir fyrir sér til­komu­mikið safnið af umræddum geim­per­sónum sem Guðjón geymir á mörgum hillum. Þar er sann­ar­lega marga sér­kenni­lega og jafn­vel háska­lega náunga að sjá. „Ég var sex ára þegar ég fékk fyrsta Trans­for­mer-karl­inn. Ég á hann ekki lengur en sá sams­konar karl á Netinu. Hann var hins vegar svo dýr að ég lét vera að kaupa hann. Ég fór að safna mark­visst Tranfs­for­mer-körlum þegar ég var tíu ára. Safnið mitt hefur að geyma að minnsta kosti þrjú hund­ruð slíka, suma á ég í ýmsum stærðum,“ bætir Guðjón við.

Hafa í hyggju að drepa alla á jörðinni

Hver úr safn­inu er í mestu upp­á­haldi hjá þér? „Ég á dálítið erfitt með að velja – held samt að ég nefni Springer. Hann getur breytt sér bæði í þyrlu og bíl og er einn af þeim góðu úr Trans­for­mer-hópnum utan úr geimnum. Aðal­per­sónan af hinum góðu er Optimus Prime, hann er höfð­ingi þeirra og vill hjálpa mann­fólk­inu á jörð­inni að nýta orku­lindir sínar.“

„Ég fór að safna mark­visst Tranfs­for­mer-körlum þegar ég var tíu ára. Safnið mitt hefur geyma að minnsta kosti þrjú hund­ruð slíka, suma á ég í ýmsum stærðum.“

Hver er höfð­ingi þeirra vondu? „Hann heitir Megatron og er alltaf grár, hann á ég í nokkrum stærðum. Hann og hjálp­ar­menn hans hafa í hyggju að drepa alla á jörð­inni með ofur­vopni. Hjálp­ar­per­sónur Megatrons á ég líka til í safn­inu mínu.“

Er þetta dýrt tóm­stundagaman? „Já. Ég held að ég hafi eytt meiri­part­inum af pen­ing­unum mínum und­an­farin ár í þetta safn. Ég hef reyndar líka fengið ýmsa Trans­for­mer-karla að gjöf.“

Hefurðu verið í sam­bandi við erlenda safn­ara? „Nei, en ég er í sam­bandi við tvo íslenska safn­ara. Við höfum hist á kaffi­húsi. Ég hef ekki enn séð söfnin þeirra, bara heyrt um þau. Við ræddum reyndar meira um spila­kvöld þegar við hitt­umst, við spilum saman borð­spil.“

Safnið hefur geyma að minnsta kosti þrjú hund­ruð Trans­for­mer-karla. Mynd/Hákon Davíð Björns­son.

Fann Transformers-borðspil í Góða hirðinum

Hefurðu farið til útlanda til að kaupa í safnið? „Já, ég hef farið margar slíkar ferðir og keypt per­sónur í safnið sem ekki fást hér heima. Ég hef líka skoðað mikið á Netinu og stundum keypt þar inn í safnið mitt.“

Ertu að hugsa um að halda áfram að safna? „Já, mér finnst þetta mjög gaman og ætla ekki að hætta í bráð. Ég safna reyndar fleiru og hef sjálfur sett saman módel. Þau eru samt ekki af „ætt“ Trans­for­mer, heldur Gundam sem eru japönsk módel. Ég leita víða að ein­hverju í safn mitt. Um dag­inn var ég hepp­inn, fann í Góða hirð­inum Trans­for­mer-borð­spil sem er alveg ónotað,“ segir Guðjón, lukku­legur með að hafa fundið þennan dýr­grip.

Texti / Guðrún Guð­laugs­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una