Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég fer á barinn og prjóna þar, ekki til að fá mér drykk“

Tóta van Helzing er tutt­ugu og átta ára Reykja­vík­ur­mær sem hefur prjónað nán­ast síðan hún man eftir sér og hún prjónar engar venju­legar peysur. Hún leggur jafn­mikið upp úr því að peys­urnar höfði til aug­ans eins og snert­iskyns­ins og blandar saman ólíkum garn­teg­undum með ein­stæðum árangri.

„Ég fer á barinn og prjóna þar, ekki til að fá mér drykk“

„Ég hef alltaf verið mikið að fikta við prjóna­skap,“ svarar Tóta aðspurð hvað hafi leitt hana út í peysu­fram­leiðsl­una.

Það var í gegnum vinn­una við sjón­varps­þætt­ina Black Mirror sem peysu­gerð Tótu tók nýja stefnu og fór á flug.

„Í þætt­inum sem ég var að vinna við átti ein per­sónan að vera blind,“ segir hún. „Við vorum að búa til barna­her­bergi fyrir blindan karakter og þurftum að tala við Blindra­fé­lagið og setja okkur inn í það hvernig það væri að ala upp barn sem væri blint. Við römm­uðum inn efni með alls kyns áferð og mynstrum og mér fannst þetta svo skemmti­leg pæl­ing og kveikti á því að efnið í peys­unum ætti ekki bara að vera fyrir augað heldur líka fyrir snert­ingu. Núna eru allar peys­urnar mínar sam­settar úr mis­mun­andi garni með mis­mun­andi áferð. Það getur stundum verið vand­ræða­legt þegar ég er í svo­leiðis peysu og fólk fer að káfa á manni til að finna áferð­ina en ég læt mig hafa það vegna þess að mér finnst það skipta máli. Ég þyrfti helst að gera peysur sem væru líka fyrir heyrn­ina,“ bætir hún við og hlær. „Hafa eitt­hvert hljóð í þeim.“

Garn gerir svo mikið fyrir mig

Síðan þessi hug­mynd um mik­il­vægi áferð­ar­innar kvikn­aði hefur Tóta prjónað peysur úr alls kyns mis­mun­andi efnum og hún seg­ist vera orðin alveg föst í því að hver flík verði að hafa margs konar ólíka áferð.

„Það er rosa­fyndið hvað garn gerir mikið fyrir mig og mér finnst alltaf jafn­gaman að kaupa garn.“

„Ég er alltaf að kaupa garn með mis­mun­andi áferð þannig að nú er ég komin með mjög stóran lager,“ segir hún. „Það er rosa­fyndið hvað garn gerir mikið fyrir mig og mér finnst alltaf jafn­gaman að kaupa garn. Ég kaupi allt garn á nytja­mörk­uðum eða fæ afganga hjá öðrum, end­ur­vinn það og tek alltaf hespurnar sem ég kaupi eða fæ gef­ins og vind þær upp á nýtt í hnykla,“ segir Tóta sem prjónar hvar og hvenær sem er.

„Ég fer á bar­inn og prjóna þar, ekki til að fá mér drykk, ég sit bara og drekk kaffi og prjóna. Stundum fer ég af því að ég nenni ekki að vera að ein heima hjá mér að prjóna, þarf að kom­ast út og vera innan um fólk.“

Lestu við­talið við Tótu í heild sinni í 37. tölu­blaði.

Tryggðu þér áskrift að Vikunni í vef­verslun

Myndir / Hallur Karlsson, Julie Rowland, Eva Schram og Val­gerður Anna Ein­ars­dóttir 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una