Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Meiðandi orð

Meiðandi orð

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Þegar dóttir mín veiktist af sjúkdómi sem síðar dró hana til dauða sagði ókunnugur maður eina setningu við mig sem hefur lifað með mér síðan. Enn skil ég ekki tilgang mannsins og mun eflaust aldrei gera það.

María, elsta barnið mitt, fékk krabba­mein þegar hún var sjö ára gömul. Hún þurfti oft að sleppa skóla vegna veik­ind­anna. Skóla­stjór­anum fannst slæmt hvað hún missti mikið úr námi og vildi að hún fengi heima­kennslu. Á þessum tíma vorum við von­góð um að Maríu batn­aði og þá var mik­il­vægt að hún héldi í við skóla­fé­lag­ana.

Nýút­skrif­aður kenn­ari, þó kom­inn yfir þrí­tugt, mætti á vegum skól­ans og kenndi Maríu heima. Hann var þybb­inn, man ég, og virt­ist ágætur.

Fyrsta heim­sóknin gekk vel en eftir annað skiptið þegar ég fylgdi kenn­ar­anum til dyra sagði hann við mig: „Mikið hlýtur þú að vera vond mann­eskja fyrst barnið þitt fékk krabba­mein.“

Ég starði á mann­inn, kom ekki upp orði en opn­aði dyrnar og hleypti honum út. Síðan gekk ég beint að sím­anum og hringdi í skól­ann. Eftir smá­bið fékk ég sam­band við skóla­stjór­ann og sagði honum hvað hefði gerst. Enn skil ég ekki hvers vegna ég brotn­aði ekki niður þarna en mér hefur alltaf gengið vel að halda ró minni á erf­iðum stundum. Skóla­stjór­inn varð miður sín og lof­aði því að þessi maður kæmi aldrei framar inn fyrir mínar dyr, það kæmi ein­hver annar.

„Kannski voru þetta illa orðuð sam­úð­ar­orð hjá kenn­ar­anum, mér datt líka í hug að hann væri ofsa­trúar…“

Kannski voru þetta illa orðuð sam­úð­ar­orð hjá kenn­ar­anum, mér datt líka í hug að hann væri ofsa­trúar, syndir feðr­anna og allt það, en setn­ingin hljóm­aði lengi í eyrum mér og mér hefur aldrei tek­ist að gleyma henni. Ég man ekki nafn þessa manns og myndi ekki þekkja hann á götu en ég get séð útlínur hans fyrir mér þar sem hann stóð við dyrnar og sagði þetta við mig.

Martraðarkenndur tími

Maríu batn­aði og gat farið aftur í skól­ann en svo tóku veik­indin sig upp og þannig gekk þetta næstu árin. Ég breytt­ist mikið á þessum tíma og næmni mín jókst. Einn dag­inn var ég ofboðs­lega kvíðin og eirð­ar­laus þar sem ég sat við sjúkra­beð Maríu, eitt­hvað slæmt var í aðsigi. Svo birt­ist mað­ur­inn minn á spít­al­anum alvar­legur á svip og sagði mér að níu ára sonur okkar hefði dottið af bíl­skúrs­þak­inu heima við leik með vinum sínum. Hann hefði slasast mikið, væri illa brot­inn en ekki í lífs­hættu.

Nú átti ég tvö börn á spít­ala en á þessum tíma var María orðin ell­efu ára og svo veik að ég vissi að hún kæmi ekki aftur heim.

Stundum rifj­að­ist upp setn­ingin sem kenn­ar­inn sagði við mig og ég fyllt­ist alltaf sjálfs­á­sökun. Ég gat að vísu ekki verndað dóttur mína fyrir krabba­mein­inu en kannski hefði ég getað komið í veg fyrir að sonur minn dytti af þak­inu, ef ég hefði verið heima en ekki á spít­al­anum hjá Maríu. Ég ásak­aði mig samt fyrir að vera vond móðir sem gat ekki passað börnin sín.

Næstu vikur voru erf­iðar, bæði börnin þurftu mikið á mér að halda. Maðurinn minn vann fulla vinnu og sá um yngsta barnið en stundum kom hann því í pössun og stóð vakt­ina með mér. Hann hefur alla tíð staðið eins og klettur við hlið­ina á mér og ég hef einnig reynt að vera honum styrkur.

Einn dag­inn bað ég hann um að vera um nótt­ina og fram á næsta dag með mér, því María myndi deyja dag­inn eftir. Það var ekk­ert sem lækn­arnir höfðu sagt eða gefið í skyn og ástand hennar hafði ekki breyst frá því hvernig það var en ég bara vissi það.

Síðdegis næsta dag lést María í faðmi okkar for­eldr­anna. Henni hafði versnað mikið upp úr hádegi og okkur voru ekki gefnar vonir um að nokkuð breytt­ist. Við vorum við­búin en samt ekki. Það er ekki hægt að vera við­búin því að missa barnið sitt.

Nú ein­beittum við okkur að syni okkar en höfðum áður skipt tíma okkar á milli systk­in­anna eftir bestu getu. Hann lá í margar vikur á sjúkra­hús­inu og þrátt fyrir að lækn­arnir hafi unnið krafta­verk stingur hann enn við, rúmum þrjá­tíu árum seinna. Þessi tími er í móðu hjá mér en ég man samt eftir gleð­inni þegar dreng­ur­inn gat gengið hjálp­ar­laust á nýjan leik.

„Komin strax á djammið?“

Mán­uð­irnir liðu, bati drengs­ins okkar var hægur en jafn og við glödd­umst yfir því. Sökn­uð­ur­inn eftir dóttur okkar var mik­ill en við þurftum að standa okkur fyrir yngri börnin, það var mik­il­væg­ast.

Einn dag­inn kom systir mín með tvo miða á skemmtun sem haldin var á vin­sælum skemmti­stað á þessum tíma. Okkur hjónin lang­aði nákvæm­lega ekk­ert að fara en systir mín tal­aði okkur til. Hún sagði að við hefðum gott af því að hitta fólk og skipta um umhverfi þótt ekki væri nema eina kvöld­stund. Hún skyldi passa börnin. Mamma og systir mín höfðu slegið saman í mið­ana sem kost­uðu þó ekki mjög mikið en veik­indi barn­anna höfðu haft slæm áhrif á fjár­hag­inn svo við hefðum aldrei leyft okkur eitt­hvað svona. Ég hafði ekk­ert getað unnið í nokkur ár og mað­ur­inn minn var ekki í hálauna­starfi.

Eitthvað varð ég samt vör við að fólk héldi að við hefðum fengið miklar bætur vegna barn­anna en svo var sann­ar­lega ekki. Það tók okkur mörg ár að vinna okkur út úr þeim skuldum sem söfn­uð­ust upp – og þó var þjón­usta í heil­brigð­is­kerf­inu ókeypis á þeim tíma.

Á laug­ar­dags­kvöld­inu fórum við prúð­búin á skemmti­stað­inn. Við höfðum ákveðið að fá okkur ekki vín, mögu­lega af ótta við að vekja upp sárar til­finn­ingar. Mér fannst að minnsta kosti mikið öryggi í því fólgið að þurfa ekki að bíða lengi eftir leigu­bíl heldur kom­ast heim þegar við vildum.

Tón­listin var skemmti­leg og vel flutt og þetta virt­ist ætla að verða góð kvöld­stund, betri en við höfðum þorað að vona. Það þurfti samt ekki meira til en van­hugsuð orð drukk­ins manns til að eyði­leggja allt. Þetta var gam­all sam­starfs­maður manns­ins míns. Hann horfði á okkur og sagði svo við mann­inn minn: „Hei, varst þú ekki að jarða barnið þitt? Og bara kom­inn strax á djam­mið?“ Hvorugt okkar sagði nokkuð við mann­inn og hann ætl­að­ist kannski ekki til þess. Við flýttum okkur heim og þetta sat lengi í mér.

Sjálfskipaðir sorgarsérfræðingar

Fyrir tæpu ári missti vin­kona mín upp­komið barn sitt í slysi og var í kjöl­farið umvafin ætt­ingjum og vinum sem hjálp­uðu henni mikið. Nýlega sagði hún mér frá ýmsu sem hefði sært sig eða angrað í sorg­ar­ferl­inu. Hún grætur helst ekki fyrir framan aðra, og ekki prest­inn sem færði henni frétt­irnar, og af því að hún brotn­aði ekki niður fyrir framan hann sagði hann hana vera í afneitun sem var fjarri sanni.

Indæl eldri kona sem vann hjá kirkj­unni kvaddi hana eftir erfi­drykkj­una með því að segja: „Komdu til okkar hvenær sem þú þarft að tala …“ og bætti við; „þetta á eftir að verða svo miklu, miklu verra hjá þér.“ Ekki upp­lífg­andi kveðju­orð, fannst vin­konu minni. Hún gerði sér fulla grein fyrir því að þetta yrði erfitt en þetta varð samt ekki verra, heldur öðru­vísi. Mis­jafnir dagar þar sem þeim góðu fjölg­aði jafnt og þétt.

Þegar vin­kona mín reyndi að gleðj­ast yfir því að halda óskertri ein­beit­ingu; geta lesið, fylgst með sjón­varpi og slíkt, öfugt við það sem búið var að segja henni, fékk hún að heyra að svona væri þetta bara rétt fyrst og tengd­ist áfall­inu. Það reynd­ist líka vera rangt.

Fólk er svo ólíkt –það er engin upp­skrift að sorg. Vinkona mín sagði reyndar að þetta hefði gert sér gott að því leyti að hún gat nöldrað yfir þessu og fengið þannig útrás. Það sem kannski sat lengst í henni og gerði hana óör­ugga um tíma var að þegar ætt­ingi hennar var spurður um líðan hennar nokkrum mán­uðum eftir miss­inn og sagði að allt gengi vel, þá sagði við­kom­andi að sorgin ætti bara eftir að hell­ast yfir hana seinna af fullum krafti. Þvílíkt drama! Það eru greini­lega til margir sjálf­skip­aðir sér­fræð­ingar um sorg­ina, meina kannski vel en geta gert skaða.

Margir vita vissu­lega ekki hvernig þeir eiga að koma fram við syrgj­endur og segja jafn­vel eitt­hvað klaufa­legt. Stundum léttir slíkt bara and­rúms­loftið. Ég man eftir að hafa lesið um ekkju sem var óskað hjart­an­lega til ham­ingju í erfi­drykkju manns hennar. Hún fór afsíðis og skelli­hló, þetta bjarg­aði deg­inum.

„Líf mitt er gott og margt að gleðj­ast yfir en mér finnst ég verða að koma þess­ari sögu frá mér, þótt ekki nema til þess að reyna að vekja skiln­ing á því hversu mikil áhrif orð geta haft.“

Áratugir eru liðnir síðan stelpan mín dó og ég er hætt að finna fyrir sárs­auka og sam­visku­biti þegar orð kenn­ar­ans koma upp í hug­ann. Ég hef unnið mikið í sjálfri mér og finnst ég loks vera að kom­ast á þann stað sem ég vil vera á. Börnin mín eru öll mikið sóma­fólk og hafa gert mig að marg­faldri ömmu. Við hjónin erum sam­stiga og ástin hefur ekk­ert minnkað. Líf mitt er gott og margt að gleðj­ast yfir en mér finnst ég verða að koma þess­ari sögu frá mér, þótt ekki sé nema til þess að reyna að vekja skiln­ing á því hversu mikil áhrif orð geta haft. Stundum er betra að segja minna, faðma frekar og styrkja með nær­veru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu