Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Nú er Villi búinn að taka niður hringinn“

„Nú er Villi búinn að taka niður hringinn“

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Fyrir fimm árum réði ég mig í vinnu hjá litlu en stönd­ugu fyr­ir­tæki. Ég kunni vel við mig að því und­an­skildu að næsti yfir­maður minn, Villi, var eig­in­lega óþol­andi. Okkur gekk ágæt­lega að vinna saman en sjálf­hverfur per­sónu­leik­inn og yfir­gangur hans gagn­vart mér og öðrum reyndi stundum á þol­in­mæð­ina. Svo komst ég að því hver konan hans var.

Strax fyrsta dag­inn minn varð ég var við að Villi átti sér upp­á­halds­vinnu­fé­laga. Í raun hafði hann safnað í kringum sig klíku manna er göptu upp í hann og hlógu að lélegu brönd­ur­unum. Utan við þann hóp stóðu fjórir menn, að mínu mati einna bestu starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins. Bráð­dug­legir og verk­lagnir en gáfu sér sjaldan tíma til að hlusta á frægð­ar­sögur Villa af sjálfum sér. Ég komst líka fljótt að því að Villi gerði aldrei mis­tök. Ef honum brást boga­listin var hann fljótur að kenna öðrum um. Ég varð fyrir þessu og í raun allir í kringum mig. Eigandi fyr­ir­tæk­is­ins kom lítið nálægt rekstri þess og ég efast um að hann hafi nokkurn tíma vitað full­kom­lega hvernig því var stjórnað, þó veit ég að nokkrir menn höfðu kvartað undan Villa og áður en ég byrj­aði hafði teymi rann­sak­enda verið kallað til og kannað ásak­anir um ein­elti. Skýrsla þess lá ekki á lausu og eng­inn vissi hver nið­ur­staðan hafði orðið.

Þegar ég hafði unnið þarna í átta mán­uði var ákveðið að fara út að borða saman, hressa upp á móral­inn, eins og Villi sagði. Ég fór auð­vitað með. Þegar líða tók á kvöldið fluttu menn sig milli staða, sumir fóru heim en aðrir eitt­hvert annað. Undir mið­nætti sátum við fjórir saman á krá niðri í bæ þegar einn vék sér að mér og sagði bros­andi: „Nú er Villi búinn að taka af sér hring­inn.“ Ég leit upp og sá að Villi stóð við bar­inn og var að spjalla við unga konu. „Jæja,“ sagði ég, „er hann gjarn á þetta.?“ Vinnu­fé­lag­inn skelli­hló og hóf að segja mér ótal sögur af fram­hjá­haldi Villa.

Hann hafði gaman af að boða til vinnu­staða­par­tía sem öll voru honum vett­vangur og tæki­færi til að halda fram hjá. Af og til þurftu menn líka að fara utan á ráð­stefnur og fleira og þá var Villi í ess­inu sínu. Ég heyrði utan af mér að hann hefði átt í lang­tíma­sam­bandi við konu í Kaup­manna­höfn og tekið með sér við­höld í utan­lands­ferðir. Genginu fannst auð­vitað ekk­ert athuga­vert við þetta en tveir vinnu­fé­lagar mínir er stóðu utan þess sögðu mér að þeim liði oft rosa­lega illa þegar konan hans Villa væri að spyrja eftir honum og þeir vissu að hann væri á ein­hverju kvenna­fari.

Stúlkan sem ég var skotinn í

Ég verð að segja að ekki jókst álit mitt á Villa við þessar fréttir. Nokkru síðar kom að árs­há­tíð fyr­ir­tæk­is­ins og þá voru makar með. Mér brá ekki lítið þegar ég sá kon­una hans Villa. Þetta var gömul skóla­systir mín, ein fal­leg­asta og indælasta stúlka sem ég hef kynnst. Í mörg ár var ég skot­inn í henni en var rosa­lega feim­inn ung­lingur og þorði því ekk­ert að segja. Það var virki­lega gaman að hitta hana þetta kvöld og við spjöll­uðum mikið saman. Hún var ekk­ert síður glæsi­leg full­orðin kona en ung­lings­stúlka og ég skildi ekk­ert af hverju Villi fann hjá sér þörf til að halda stöðugt fram hjá henni. Hann var hins vegar greini­lega mjög afbrýði­samur eig­in­maður og var aug­ljós­lega ekki vel við sam­töl okkar og hversu vel fór á með okkur.

Árs­há­tíðin var haldin á hót­eli úti á landi og þetta kvöld drakk Villi ótæpi­lega. Undir mið­nætti hjálp­uðum, ég og einn annar úr hópnum, kon­unni hans að koma honum í rúmið. Ég stakk upp á að hún kæmi niður héldi áfram að skemmta sér með okkur. Hún neit­aði því og kannski var það eins gott því ég veit ekki hvað ég hefði gert ef hún hefði sam­þykkt það. Á þessum tíma­punkti var ég búinn að fá yfir mig nóg af Villa og fannst hegðun hans ekki gefa til­efni til að ég virti hann á nokkurn hátt.

„Sjálfur tók hann ekki bein­línis þátt í þessu en sat hjá og hló þegar nýja mann­inum varð fóta­skortur á ein­hvern hátt.“

Eftir þetta gengu dag­arnir sinn vana­gang og ég hélt áfram að mæta í vinn­una og reyna að leiða yfir­mann­inn hjá mér eins og hægt var. Villi var hins vegar samur við sig og hélt áfram að níð­ast á sumum en hampa öðrum. Svo kom nýr starfs­maður. Sá var ósköp ein­föld sál, elsku­legur og hörku­dug­legur í vinnu en átti mjög erfitt með að skilja kald­hæðni og auð­velt var að flækja hann þannig í sam­ræðum að hann léti eitt­hvað heimsku­legt út úr sér. Þetta varð fljót­lega helsta skemmtun geng­is­ins hans Villa. Sjálfur tók hann ekki bein­línis þátt í þessu en sat hjá og hló þegar nýja mann­inum varð fóta­skortur á ein­hvern hátt. Eitt sinn mætti nýlið­inn í vinn­una á skín­andi nýju mót­or­hjóli og allir hóp­uð­ust út og dáð­ust að gripnum. Daginn eftir kom hann hins vegar gang­andi og þegar gengið var á hann kom í ljós að hann hafði keyrt upp á gang­stétt­ar­kant á heim­leið­inni úr vinn­unni, steypst um koll og hjólið skemmst mikið. Næstu mán­uði varð þetta slys aðal­um­ræðu­efnið á kaffi­stof­unni. Villa­gengið fann alltaf nýja og nýja hlið á brand­ar­anum sem óhappið varð í þeirra með­förum.

Fékk nóg og sagði upp

Þegar þarna var komið sögu var ég búinn að fá nóg. Ég sagði upp vinn­unni og fékk fljót­lega stöðu hjá fyr­ir­tæki í sama geira. Þar komst ég að því að Villi var þekktur í brans­anum og ekki af góðu. Sjálfs­á­nægja hans og ofur­trú á sjálfum sér var þekkt sem og hæfi­leiki hans til að koma ávallt sök yfir á aðra þegar miður fór hjá honum. Ég var mjög feg­inn að kom­ast að þessu því það sýndi mér svart á hvítu að ég hafði ekki dæmt Villa að ósekju. Lífið hélt áfram og ég leiddi sjaldan hug­ann að gamla vinnu­staðnum mínum. Ég hafði hins vegar sent gömlu skóla­systur minni vina­beiðni á Facebook og hún sam­þykkt. Ég sá því af og til myndir af henni og Villa, börn­unum þeirra og stundum gömlu vinnu­fé­lög­unum.

Fyrir tveimur mán­uðum setti hún hins vegar status á síð­una sína og sagði að nú væri þau Villi skilin. Ég fann að það gladdi mig ósegj­an­lega en samt kunni ég ekki við að setja mig í sam­band við hana alveg strax. Ég beið því í þrjár vikur en sendi henni svo skila­boð. Við höfum verið að spjalla saman síðan og hist nokkrum sinnum í kaffi. Ekkert meira hefur gerst enn vegna þess að skóla­systir mín er í sárum eftir skiln­að­inn. Hún komst að fram­hjá­haldi Villa, raunar bara einu til­viki og ég hef ekki enn sagt henni að ég viti að þau hafi verið fleiri. Ég veit ekki hvernig ég á að koma orðum að því og efast stundum um að það sé mitt hlut­verk. Villi er á hinn bóg­inn alls ekki sáttur við sam­band okkar og sendir mér reglu­lega hót­anir í SMS eða á Netinu. Mér er alveg sama, hann má gapa eins og hann vill. Ég hef aðeins einu sinni svarað honum og sagði þá: „Þú áttir aldrei skilið að vera í sam­búð með svona frá­bærri konu.“

„Hún komst að fram­hjá­haldi Villa, raunar bara einu til­viki og ég hef ekki enn sagt henni að ég viti að þau hafi verið fleiri.“

Vinkona mín er enn í sárum og á erfitt með að treysta. Börn hennar og Villa eru líka mjög reið út í pabba sinn og það hefur gengið á ýmsu vegna þess. Eldri börnin neita að hitta hann en hann hefur, í sam­ræmi við kúg­un­ar­eðli sitt, reynt að neyða þau til þess. Elsta barnið er sautján ára og hann getur því ekk­ert gert hvað það varðar en hin tvö eru yngri og Villi hefur hótað öllu illu komi þau ekki til hans aðra hverja helgi. Hann notar þau einnig mis­kunn­ar­laust til að kvelja fyrr­ver­andi eig­in­konu sína með and­styggi­legum sím­tölum, alls konar ásök­unum og tuði undir því yfir­skini að hann sé umhyggju­samur faðir sem vilji vera hluti af lífi barn­anna sinna. Hún hefur sagt  mér að hún hefði verið mjög þakk­lát ef hann hefði sýnt þótt ekki væri nema brot af þessum áhuga þegar þau bjuggu saman.

Ég veit að ég er ást­fang­inn af þess­ari konu og er til­bú­inn að bíða þar til henni hentar að taka upp sam­band við mig. Hún veit það núna, því ég er ekki lengur feim­inn ung­lingur og þorði þess vegna að segja henni það. Sjálfur á ég sömu reynslu að baki. Ég var í sam­búð í sex ár með konu sem hélt fram hjá mér. Þegar upp komst um svikin vildi hún halda hjóna­band­inu áfram og fara í ráð­gjöf. Við reyndum það en ég fann fljótt að ég gæti aldrei treyst henni aftur og þá var grund­völlur sam­bands­ins í raun brost­inn. Hún er ágæt mann­eskja en gerði mis­tök. Villi er aftur á móti lít­ils virði, að mínu mati, og ég vona sann­ar­lega að þessi gamla skóla­systir mín og vin­kona sjái það sem allra fyrst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una