Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðgeir eins og maðurinn í næsta húsi

Fimmta bók Sól­veigar Páls­dóttur, Fjötrar, er nýkomin út og þar höldum við áfram að kynn­ast rann­sókn­ar­lög­reglu­mann­inum Guðgeiri sem hefur ekki beint fetað beinu braut­ina í starfi sínu. Hvers vegna valdi Sólveig hann sem aðal­rann­sak­anda og hefur hún hug­leitt að koma honum fyrir katt­ar­nef?

Guðgeir eins og maðurinn í næsta húsi
Sólveig Páls­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Hvers vegna vald­irðu glæpa­sagna­formið? „Þessu er öfugt farið því glæpa­sagna­formið valdi mig. Fyrsta bókin mín, Leik­ar­inn, kom út árið 2012 en sagan hafði verið að þró­ast í tvö til þrjú ár. Per­són­urnar Alda sem vinnur við kvik­mynda­gerð sem props­ari/leik­muna­vörður og Andrés sem vinnur sem aðstoða­maður við blóð­ferla­rann­sóknir hjá lög­regl­unni kvikn­uðu í huga mér á nám­skeiði í skap­andi skrifum sem Þor­valdur heit­inn Þor­steins­son kenndi. Þar skrif­aði ég drögin að kafla sem seinna varð númer átta í Leik­ar­anum. Upp­haf­lega var ég að vinna með sam­skipti fólks á fer­tugs­aldri sem hitt­ist á bar, örlítið drukkið og klaufa­legt í þeirri við­leitni að nálg­ast hvort annað.

Fimmta bók Sól­veigar Páls­dóttur, Fjötrar, er nýkomin út.

Mér hefur alltaf fund­ist gaman að skrifa texta með ríkum und­ir­texta, gjarnan dálítið pín­legum og það var einmitt það sem ég var að leika mér með þarna. Mörgum mán­uðum eftir að nám­skeið­inu lauk fór ég að spinna í kringum þennan kafla og fann fljótt að það að skapa spennu í text­anum kom blóð­inu á hreyf­ingu í mér og per­sónur Guðgeirs og Særósar fóru smám saman að taka á sig mynd. Ég gleymi svo aldrei deg­inum sem ég fékk hug­mynd­ina að plott­inu í Leik­ar­anum. Það var svo æðis­leg upp­lifun að ég dans­aði fagn­að­ar­dans um allt hús. Eftir það var svo gaman að skrifa að ég hef verið háð því síðan.“

Hvaðan kom hug­myndin að Guðgeiri sem aðal­sögu­hetju? Á hann sér ein­hverja fyr­ir­mynd í raun­veru­leik­anum? „Guðgeir mót­að­ist mjög með­vitað í huga mér. Ég vildi skapa per­sónu sem væri and­stæða við hina ótrú­legu lífs­seigu klisju um að lög­reglu­menn í skand­in­av­ískum krimmum væru allir sem einn þjak­aðir af fíkni­sjúk­dómum, þung­lyndi og per­sónu­legum vanda­málum. Þannig varð Guðgeir til sem ákveðið and­svar við það bók­menntaminni. En þótt Guðgeir sé eins og „mað­ur­inn í næsta húsi“ þá er hann auð­vitað ein­stakur og á sína sögu, eins og allir aðrir. Hann á sér enga beina fyr­ir­mynd en í honum eru eig­in­leikar sem fengnir eru að láni frá góðum mönnum sem ég þekki.“

Er ekk­ert þving­andi að skrifa inn í svona seríu um sömu rann­sókn­ar­mann­eskj­una ár eftir ár? „Hreint ekki. Mér finnst það mjög skemmti­legt því per­són­urnar mínar þró­ast og líf þeirra tekur breyt­ingum, jafn­vel koll­steypu, nákvæm­lega eins og hjá mér eða þér. Það hefði til dæmis ekki hvarflað að mér fyrir tíu árum síðan að árið 2019 ætti ég fimm útgefnar bækur.“

Sumir höf­undar hafa tekið það til bragðs að láta aðal­per­són­una deyja, eða gera hana ófæra um að sinna starfi sínu – Erlendur Arnalds og Wallander Mankells, sem dæmi – er það að þínu áliti góð leið til að slá á vænt­ingar les­enda um fleiri bækur í ser­í­unni?

„Ég gekk ansi nærri Guðgeiri í þriðju bók­inni minni sem heitir Flekk­laus. Sumir héldu að ég væri hrein­lega búin að ganga frá per­són­unni og gæti ekki skrifað meira um hann. Sjálf vissi ég að hann ætti sér fram­halds­líf og þótt ég hafi tekið mikla áhættu með því sem gerð­ist í Flekk­laus þá hefur hún borgað sig. Mér fannst ég vera komin á of staðl­aða braut með hann og það er í eðli mínu að brjót­ast út þegar ég fæ þá til­finn­ingu. Það sem gerð­ist í Flekk­laus veitti mér frelsi til að skrifa Refinn og Fjötra. Staða Guðgeirs er allt önnur þar en í fyrri bók­unum og í Fjötrum er Særós orðin yfir­maður hans. Þótt ég skrifi inn í seríu þá er hver bók full­kom­lega sjálf­stæð og ég hef oft heyrt að fólk lesi þær aftur og fram í tíma, ef svo má að orði kom­ast. Bækurnar mínar eru sam­tíma­sögur og gegn­um­gang­andi per­sónur eld­ast og breyt­ast í sam­ræmi við það, ólíkt mörgum þekktum per­sónum úr þess­ari grein bók­mennt­anna svo sem Poirot hjá Agötu Christie sem er alltaf nákvæm­lega eins, eða Wallander hjá Henning Mankell sem breyt­ist lítið milli bóka svo að þekkt dæmi séu tekin.“

Mynd / Hákon Davíð

Þetta form, glæpa­sagna­sería, verður það auð­veld­ara eftir því sem þú skrifar fleiri bækur? Er þetta eins og vöðvi sem verður sterk­ari með æfing­unni? „Já og nei. Auðvitað kann ég miklu betur til verka, það er ekki spurn­ing. En eftir hverja bók fæ ég örlítið kvíða­kast yfir því hvort ég fái fleiri hug­myndir, svona eins og um sé að ræða ein­hvern brunn sem geti tæmst. Að sjálf­sögðu getur það gerst en reynsla mín hingað til er sú að eftir að hafa fylgt nýrri bók úr hlaði þarf ég að gefa sjálfri mér tíma til að losna við hana úr kerf­inu, byggja mig svo upp and­lega og lík­am­lega án þess að krefj­ast neins af sköp­un­ar­gáf­unni og áður en ég veit af eru nýjar hug­myndir farnar að streyma inn í koll­inn á mér. Ég hef líka passað mig á því að setja sjálfa mig ekki í þá stöðu að finn­ast ég þurfa að vera með bók á hverju ári. Ef það tekst þá er það auð­vitað hið besta mál en það er líka allt í lagi að hafa lengra á milli. Hver bók þarf sinn tíma.“

„Mínar bækur hafa verið kall­aðar sál­fræði­tryllar og hvað svo sem er rétt í því þá held ég að ég myndi alltaf skrifa um mann­lega reynslu, lífið í öllum sínum fjöl­breyti­leika og um örlög fólks.“

Ef þú værir ekki að skrifa glæpa­sögur hvað myndi þá helst heilla þig að skrifa um? „Mínar bækur hafa verið kall­aðar sál­fræði­tryllar og hvað svo sem er rétt í því þá held ég að ég myndi alltaf skrifa um mann­lega reynslu, lífið í öllum sínum fjöl­breyti­leika og um örlög fólks. Ég verð líka alltaf að hafa eitt­hvert erindi, hafa eitt­hvað að segja. Um það leyti sem Fjötrar komu út fór ég að horfa á dönsku þátta­röð­ina Krøniken sem var gerð 2004. Ákaflega vel skrifað hand­rit og vel gert í alla staði. Saga nokk­urra fjöl­skyldna í marga ætt­liði og um leið þjóð­ar­speg­ill hvers tíma. Heill­andi við­fangs­efni, finnst mér, og ekki spillir húmor­inn fyrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu