Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Björk stóð frammi fyrir erfiðri ákvörðun: „Ég þurfti annaðhvort að skilja við manninn minn eða skilja hann“

Björk Vil­helms­dóttir var hand­tekin af ísra­elska hernum, ásamt Tinnu Eyberg Örlygs­dóttur og tveimur frönskum konum, Nanou og Isabel, í síð­asta mán­uði þegar hún var við ólífu­tínslu í Palest­ínu og sat í haldi í þrjá tíma. Hún seg­ist hafa haldið ró sinni allan tím­ann, en vissu­lega hafi þessi reynsla haft áhrif á hana og valdið henni óróa. Það sé þó ekki neitt neitt miðað við það ofbeldi og mann­rétt­inda­brot sem hún verði nán­ast dag­lega vitni að þegar hún dvelur í Palest­ínu.

Björk stóð frammi fyrir erfiðri ákvörðun: „Ég þurfti annaðhvort að skilja við manninn minn eða skilja hann“
Björk Vil­helms­dóttir

Í for­síðu­við­tali við Mannlíf ræðir hún meðal ann­ars hand­tök­una, hjóna­bandið og hvað er ólíkt með Palest­ínu og Íslandi.

En hvað olli því  að Björk og Sveinn Rúnar maður hennar tengd­ust Palest­ínu þessum sterku böndum?

„Það er nú saga að segja frá því,“ segir Björk og hlær.

„Sveinn var skiptinemi í Banda­ríkj­unum þegar hann var ung­lingur og lærði þá Mið-Aust­ur­landa­fræði í skól­anum. Hann fékk þá strax brenn­andi áhuga á Palest­ínu en þá var Víetnam­stríðið í gangi og hann fór að berj­ast gegn því. Svo komst loks friður á þar og sigur og hann fór að ein­beita sér að Palest­ínu. Árið 1987 ákvað hann ásamt nokkrum öðrum að stofna félagið Ísland-Palest­ína og það heltók hann svo­lítið og hann byrj­aði að fara þangað árið 1990 og fór yfir­leitt árlega eftir það. Mér var farið að finn­ast þetta taka ansi mik­inn tíma í hans lífi og ég segi stundum að ég hafi staðið frammi fyrir því árið 2002 að ég þyrfti ann­að­hvort að skilja við mann­inn minn eða skilja hann.

Ég ákvað þá að fara til Palest­ínu í fyrsta sinn og snar­hætti við að skilja við mann­inn minn þegar ég skildi hann loks­ins. Ég fékk sjálf þessa ástríðu og upp­lifði mjög sterkt þessa skýru aðskiln­að­ar­stefnu. Í einskis­manns­landi á milli landamæra Jórdaníu og Ísraels voru tvær rútur, önnur fyrir útlend­inga og Ísra­els­menn og hin fyrir Palest­ínu­menn. Síð­ar­nefnda rútan fór ekki af stað fyrr en hún var orðin full, óháð aðstæðum far­þega, en aðrir fengu ferð án biðar. Þetta var eitt af mjög mörgum atriðum sem varð til þess að ég skildi Svein. Það er ekki hægt að koma þangað og horfa fram hjá aðstæð­unum.“

„Ég ákvað þá að fara til Palest­ínu í fyrsta sinn og snar­hætti við að skilja við mann­inn minn þegar ég skildi hann loks­ins.“

Eftir þessa fyrstu ferð fór Björk nokkrum sinnum til Palest­ínu með Sveini, bæði á Gasa og á Vest­ur­bakk­ann, og upp­lifði sífellt sterkar hversu gróf­lega brotið er á mann­rétt­indum Palest­ínu­manna. Hún seg­ist hafa tekið þá ákvörðun 2015, þegar hún hætti í borg­arpóli­tík­inni, að leita nýrra leiða til að styðja Palest­ínu­menn.

Lestu viðtalið við Björk í heild sinni í nýjasta Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina