Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég er algjör hrafn og elska allt sem glitrar“

Daníel Örn Wirkner Jóhann­es­son gull­smiður ætl­aði sér ekki í nám 25 ára gam­all, en lét slag standa og komst inn í eft­ir­sótt nám í gull- og silf­ur­smíði. Honum finnst gaman að fara óhefð­bundnar leiðir í list sinni og seg­ist ekki sjá fyrir sér að vinna við annað en sköpun.

„Ég er algjör hrafn og elska allt sem glitrar“
Daníel Wirkner

Árið 2009 ákvað Daníel að prófa silf­ur­smíði­nám­skeið í Tækni­skól­anum, sem honum fannst góð hug­mynd þar sem hann hefur alltaf haft gaman af málm­smíði og málm­formum. Að því loknu mælti kenn­ar­inn hans með að hann sækti um nám í gull- og silf­ur­smíði.

„Ég sagði við hann að það væri nú ekk­ert á plan­inu að fara í nám eld­gam­all,“ segir Daníel sem þá var 25 ára. En hann lét slag standa, sótti um og komst inn, einn af átta, en það ár sóttu 267 um námið. En af hverju valdi hann gull­smíð­ina?

„Afi átti gull­mola sem hann fann úr Surts­eyj­ar­gos­inu, held ég, og hann var alltaf á nátt­borð­inu hjá honum. Ég var alltaf að skoða mol­ann, fannst hann svo flottur og bara allt sem glitrar. Ég er algjör hrafn og hef alltaf verið.“

View this post on Instagram

#atthebench#wirknerdesign#goldsmiths#handmadejewelry#iceland#sil­versmiths#workshop #filigreejewelry

A post shared by Wirkner design (@wirknerdesign) on Aug 27, 2019 at 2:11am PDT

Daníel er heill­aður af víra­virki þjóð­bún­ing­anna og vill við­halda því hand­bragði, hann hefur hannað bæði fín­gerða hringi og rokk­ara­skart með víra­virk­inu.

Hannar með óhefðbundnum hætti

Daníel starfar hjá Dóru Jóns­dóttur í Gull­kist­unni á Frakka­stíg, en þar hefur hann verið í fimm ár. „Þetta er elsta gull­smíða­verk­stæði á Íslandi og sér­hæfir sig í íslenska víra­virk­inu. Axel vinur minn var á samn­ingi þar, það vant­aði auka­starfs­kraft fyrir jólin og ég var kall­aður til. Síðan þegar hann kláraði sinn samn­ing tók ég ein­fald­lega við af honum. Ég á hins vegar sveins­prófið eftir, af því ég er svo lélegur á bók­ina að ég er alltaf að fresta. Svo missti ég úr vegna aðgerða og veik­inda, en ég á nokkra áfanga eftir til að klára,“ segir Daníel, sem bindur sig ekki við einn stíl heldur tekur að sér öll verk­efni.

Daníel Wirkner Mynd / Hallur Karlsson

Daníel er heill­aður af víra­virki þjóð­bún­ing­anna og vill við­halda því hand­bragði, hann hefur hannað bæði fín­gerða hringi og rokk­ara­skart með víra­virk­inu. Hann hefur fengið jákvæð við­brögð við því að fara nýstár­legar leiðir með hand­bragðið og segir skartið eitt­hvað sem bera má dag­lega, en ekki skart sem ein­skorð­ast við hátíð­is­daga.

View this post on Instagram

#whonnun #fillagree #925sterl­ingsil­ver #icelandicstyle #mywork #goldsmith #sil­versmith #bracelet

A post shared by Wirkner design (@wirknerdesign) on Jul 22, 2016 at 5:14pm PDT

View this post on Instagram

Þetta var ég að klára fyrir Pjakkana í hljóm­sveit­inni DIMMU 🤘 #whonnun #sil­verr­ing #filigree #skullring #sil­versmith #goldsmithstu­dent #icelandicstyle #rock #dimma­band

A post shared by Wirkner design (@wirknerdesign) on Nov 30, 2017 at 7:03pm PST

Aðdá­endur hljóm­sveit­ar­innar DIMMU ættu að þekkja hand­bragð Daníels því með­limir hennar eru skreyttir skarti frá honum og Inga í Sign. „Ég hann­aði 15 cm arm­band handa Stefáni söngv­ara. Arm­bandið er Mývatn séð ofan frá en hann er þaðan. Arm­bandið sló í gegn hjá Stefáni og ég hef hannað fleira fyrir hann og félaga hans. Svo hef ég mikið unnið með gull eins og sést kannski á kon­unni minni.“

Honum finnst gaman að fara óhefð­bundnar leiðir við gull­smíð­ina og fá sem mest út úr málm­inum, án þess að skart­grip­ur­inn þurfi að kosta hálfan hand­legg­inn. „Mér finnst álagn­ing á skart­gripum fárán­leg á Íslandi af því þetta þarf ekki að vera svona. Ég þarf ekki að taka 150% álagn­ingu til að vera sáttur.“

Daníel Wirkner Mynd / Hallur Karlsson

Daníel er kom­inn í sam­starf við húð­flúrs­stof­una Reykja­vík Ink, sem selur hringi og háls­men sem hann hefur hannað og hefur skartið selst vel til erlendra ferða­manna. Einnig er sam­starf við 24 Iceland á byrj­un­ar­stigi. „Við Valli erum æsku­vinir, þekkj­umst mjög vel og báðir með bull­andi ADHD og búnir að tala um þetta sam­starf i fjölda ára án þess að nokkuð hafi gerst. En núna erum við komnir með Íslands­hring, sem von­andi fer að kom­ast í sölu.“

Daníel seg­ist aðspurður munu starfa við gull­smíð­ina til fram­tíðar. „Ég get ein­hvern veg­inn ekki séð mig í neinu öðru en að skapa. Það eru einnig breyt­ingar fram undan hjá Gull­kist­unni, henni verður breytt að hluta í walk in-safn. Ég verð alfarið með mitt verk­stæði þar og sé fyrir mér að ég og Axel munum taka við rekstr­inum seinna meir. Við vinnum vel saman þrátt fyrir að vera með gjör­ó­líkan stíl.“

Fylgjast má með verkum Daníels á Facebook og Instagram.

View this post on Instagram

#sil­versmith#silverbracelet#wirknerdesign #rockandroll #skull

A post shared by Wirkner design (@wirknerdesign) on Jul 27, 2019 at 4:09pm PDT

View this post on Instagram

#wirknerdesign#sil­versmith#costumedesign#925sil­ver#iceland#ankerr­ing#signetr­ing#goldsmith#fas­hion#jewelry#handmadejewelry#hand­made

A post shared by Wirkner design (@wirknerdesign) on Apr 30, 2019 at 11:55pm PDT

Sjá einnig: „Lífs­björgin segir mér að ég á greini­lega að gera meira í líf­inu en að fá flog“

Sjá einnig: Daníel heldur styrkt­ar­tón­leika: „Ég vil launa líf­gjöf­ina og láta gott af mér leiða”

Sjá einnig: Daníel safnar fyrir súr­efn­is­mett­un­ar­mælum: Slysa­varna­deildir á Suð­ur­nesjum og í Kópavogi gefa fyrstu sjö mæl­ana

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina