Við sögðum frá því á þriðjudaginn að leikkonan Jennifer Aniston er byrjuð að nota samfélagsmiðilinn Instagram. Fyrsta myndin sem Aniston deildi er af leikarahópnum úr þáttunum Friends. Á tveimur klukkustundum var hún komin með 178 þúsund fylgjendur.
Nú þegar lengra er liðið síðan Aniston mætti á Instagram er komið í ljós að hún hefur slegið met. Hún var ekki lengi að ná milljón fylgjendum, nánar tiltekið tók það hana fimm klukkustundir og sextán mínútur en engum hefur tekist að fá svo marga fylgjendur á Instagram á svo skömmum tíma.
Áður áttu hjónin Harry og Meghan Markle metið en þau voru komin með milljón fylgjendur á Instagram á fimm klukkutímum og 45 mínútum.
View this post on Instagram
And now we’re Instagram FRIENDS too. HI INSTAGRAM 👋🏻
A post shared by Jennifer Aniston (@jenniferaniston) on Oct 15, 2019 at 6:03am PDT
Sjá einnig: Vinur okkar Jennifer er mætt á Instagram: Fyrsta myndin er frábær































Athugasemdir