Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Ég er eiginlega enn að meðtaka fréttirnar“

Sif Sig­mars­dóttir hefur gengið frá samn­ingum um útgáfu á skáld­verki sínu, The Sharp Edge of a Snowflake, í Þýska­landi og Frakk­landi. Bókin er önnur bók Sifjar á ensku og hefur verið að gera góða hluti frá því að hún kom út í Bret­landi í sumar. Í sam­tali við Mannlíf seg­ist Sif vera hæstá­nægð með tíð­indin en við­ur­kennir að hún eigi enn erfitt með að líta á sig sem „alþjóð­legan“ höf­und.

„Ég er eiginlega enn að meðtaka fréttirnar“
Sif Sig­mars­dóttir rit­höf­undur.
Bókin The Sharp Edge of a Snowflake kemur út í Þýska­landi og Frakk­landi næsta haust.

„Það má segja að þessar fréttir séu besta jóla­gjöfin sem rit­höf­undur getur fengið. Ég er eig­in­lega enn að með­taka frétt­irnar,“ segir Sif glöð, en umboðs­maður hennar í Bret­landi var að enda við að ganga frá útgáfu bókar Sifjar, The Sharp Edge of a Snowflake, bæði í Þýska­landi og Frakk­landi.

Í Þýska­landi verður bókin gefin út af Loewe Verlag, 150 ára gömlu útgáfu­fé­lagi sem er risi á sviði barna- og ung­linga­bóka, en það hefur meðal ann­ars gefið út bæk­urnar um Max og Moritz sem margir Íslend­ingar kann­ast við. Í Frakk­landi verður bókin gefin út af Casterman, útgef­anda Tinna­bókanna, en það er útgáfu­fé­lag sem hefur höf­uð­stöðvar sínar í Belgíu og hefur starfað í meira en 200 ár.

„Manni finnst maður ekk­ert vera rosa­lega alþjóð­legur þar sem maður situr heima hjá sér á nátt­föt­unum, umkringdur hálf­tómum kaffi­bollum og óhreinu taui.“

Sif er að vonum him­in­lif­andi. Hún segir að það sé algjör draumur að vita til þess að bók hennar kom­ist nú í hendur enn fleiri les­enda. „Ég er búin að fagna þessu með kampa­víns­glasi. En svo tek ég þá með­vit­uðu ákvörðun að velta mér ekki upp úr því frekar. Ég á mér nefni­lega þá reglu að fagna sigrum aðeins í einn dag, ekki lengur,“ flýtir hún sér að útskýra. „Það þýðir ekki að staldra of lengi við, maður verður að horfa fram á veg­inn, vera á tánum, með mörg járn í eld­inum. Svo ég grípi til allra klisja í íslenskri tungu í einni máls­grein,“ segir hún og hlær.

Sótti innblástur í Facebook-hneyksli og MeToo

Að sögn Sifjar fjallar The Sharp Edge of a Snowflake um Hönnu, hálf-íslenska stelpu búsetta í London sem flyst til föður síns á Íslandi þegar móðir hennar fellur frá. Hún fær vinnu sem blaða­maður og er falið að taka létt við­tal við sam­fé­lags­miðla­stjörnu sem er á leið­inni til lands­ins. Þegar sú er hand­tekin fyrir morð ein­setur Hanna sér að sanna sak­leysi hennar. En ekki er allt sem sýn­ist og Hanna kemst á snoðir um illar áætl­anir alþjóð­legs mark­aðs­fyr­ir­tækis sem mis­notar per­sónu­upp­lýs­ingar fólks um allan heim til að græða pen­inga – og þaðan af verra.

Nú í haust kom út íslensk þýð­ing á fyrstu bók Sifjar sem hún skrif­aði á ensku, Ég er svik­ari.

Í Bret­landi, þar sem sagan kom út í sumar, hefur henni verið lýst sem sam­blandi af bók­inni Karlar sem hata konur og sög­unum um spæj­ar­ann Nancy Drew. Sjálf segir Sif að bók­ina megi flokka sem nor­ræna glæpa­sögu fyrir ung­linga. Það sem ein­kenni nor­rænar glæpa­sögur sé að þær fjalla um glæp, oft­ast morð, og oftar en ekki séu þær líka sam­fé­lags­á­deila. „Ég er til dæmis að skoða hættur Netsins og þau áhrif sem það hefur á sjálfsí­mynd, sam­skipti fólks, við­skipti og sam­fé­lagið allt,“ segir hún og getur þess að tvær konur hafi veitt sér inn­blástur við skrifin; leik­konan Rose McGowan, sem er ein þeirra kvenna sem stuðl­aði að falli Harvey Weinstein, og breski blaða­mað­ur­inn Carole Cadwalladr, sem kom upp um Facebook-Cambridge Analytica-hneykslið.

„Cambridge Analytica er gagna­fyr­ir­tæki sem not­aði illa fengnar per­sónu­upp­lýs­ingar af Facebook til að beina póli­tísku efni að fólki og hafa þannig áhrif á lýð­ræð­is­legar kosn­ingar. Það var ráð­gjafi kosn­inga­liðs Donalds Trump og vann líka fyrir sam­tök sem studdu úrgöngu Breta úr ESB fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una 2016. Eftir að upp komst um þetta hneyksli hefur ímynd Facebook beðið hnekki og við lítum öðrum augum á per­sónu­upp­lýs­ingar okkar, erum með­vit­aðri um fótsporin sem við skiljum eftir okkur á Netinu,“ segir Sif og bætir við að bæk­urnar hennar séu nán­ast alltaf inn­blásnar af því sem er að ger­ast í heim­inum hverju sinni, enda sé hún algjör fréttafík­ill.

Á erfitt með að líta á sig sem alþjóðlegan höfund

Talandi um skrifin, er Sif eitt­hvað byrjuð að huga að næstu bók? „Ja, eins og ég segi þá reyni ég að vera með mörg járn í eld­inum. Svo er umboðs­mað­ur­inn minn, Sophie Hicks, harður yfir­maður og bíður nú eftir nýrri bók. Það er gott að hafa ein­hvern sem rekur á eftir manni og minnir mann á að halda sig við efnið,“ segir hún kímin. „En svo er ég líka alltaf að skrifa á íslensku og von­ast til að hafa tíma til að vinna að íslenskri skáld­sögu á nýju ári. Það er skemmti­leg heila­leik­fimi að skrifa á tveimur tungu­málum, stundum verður maður alveg kol­rugl­aður.“

Spurð hvernig til­finn­ing það sé ann­ars að vera orðin „alþjóð­legur“ höf­undur skellir hún upp úr og seg­ist nú ekki beint geta sagt að hún líti á sig sem alþjóð­legan höf­und. „Manni finnst maður ekk­ert vera rosa­lega alþjóð­legur þar sem maður situr heima hjá sér á nátt­föt­unum, umkringdur hálf­tómum kaffi­bollum og óhreinu taui sem flæðir upp úr þvotta­körf­unni og skrifar bækur,“ segir hún og hlær.

„En auð­vitað er alltaf jafn­skemmti­legt og óraun­veru­legt þegar maður hittir fólk sem hefur lesið bæk­urnar manns, eða þegar maður rekst á þýdda útgáfu af verkum sínum úti í heimi. Þegar fyrsta bókin mín, Ég er ekki drama­drottn­ing, kom út man ég hvað mér fannst skrítið að hug­ar­burður minn væri kom­inn á nátt­borðið hjá ung­lingum út um allt land. Drama­drottn­ingin var líka fyrsta bókin mín sem var þýdd á erlent tungu­mál og þegar hún kom út í Frakk­landi gerðum við fjöl­skyldan okkur ferð til Parísar þar sem ég gekk inn í stærstu bóka­búð lands­ins í hálf­gerðu móki í leit að bók­inni. Þar stóð hún á borði með ótrú­lega flotta kápu og titil sem ég skildi ekki einu sinni. Það var skrítin og skemmti­leg upp­lifun,“ segir hún hress.

„Nú hlakka ég bara til að hafa uppi á The Sharp Edge of a Snowflake bæði í Frakk­landi og Þýska­landi þegar hún kemur þar út í haust á næsta ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina