Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Leikdómur: Rocky – „Snjöll leið til að kynna þennan mikla orðsins listamann fyrir nýjum kynslóðum“

Silja Aðal­steins­dóttir, íslensku- og bók­mennta­fræð­ingur, þýð­andi og rit­stjóri skrifar á heima­síðu Tímarits Máls og Menn­ingar leik­dóm um Rocky sem frum­sýnt var í Tjarn­ar­bíói föstu­dag­inn 18. októ­ber.

Leikdómur: Rocky – „Snjöll leið til að kynna þennan mikla orðsins listamann fyrir nýjum kynslóðum“
|

Leik­stjóri: Vignir Rafn Val­þórs­son
Leikari: Sveinn Ólafur Gunn­ars­son
Búningar og leik­mynd: Enóla Ríkey
Lýsing: Jóhann Bjarni Pálsson og Magnús Thorlacius
Hljóð: Ísidór Jökull Bjarna­son
Fram­kvæmda­stjórn: Jónas Alfreð Birk­is­son

Það er umtals­vert afrek sem Sveinn Ólafur Gunn­ars­son vinnur á sviði Tjarn­ar­bíós í verk­inu Rocky sem Óskabörn ógæf­unnar frum­sýndu þar á föstu­dags­kvöldið undir stjórn Vignis Rafns Val­þórs­sonar. Sveinn er einn á svið­inu í um það bil 80 mín­útur, talar allan tím­ann, lendir í hörku­bar­daga við ósýni­legan and­stæð­ing og sýnir sjálfum sér að lokum þá dýpstu fyr­ir­litn­ingu sem hugs­ast getur. Ég var eig­in­lega alveg lömuð þegar hann gekk út af svið­inu.

Rocky er nýr danskur ein­leikur eftir Tue Biering sem byggir á frum­legan hátt á bíó­mynd­unum um boxar­ann Rocky með Sylv­ester Stallone. Nú hef ég ekki séð neina af þeim kvik­myndum, sem munu vera sex fyrir utan afleiddar myndir, en sama varð ekki sagt um alla aðra áhorf­endur í gær­kvöldi. Tals­verður hópur í salnum gat meira að segja sungið tit­il­lagið, umbeð­inn. En það er ekki Rocky sem við sjáum á svið­inu; þar stendur sögu­maður sem segir okkur sög­una af Rocky, og þessi sögu­maður upp­lýsir okkur um það að hann sé fæddur sama ár og fyrsta kvik­myndin var frum­sýnd, 1976. Þetta á einnig við um Svein Ólaf leik­ara þannig að hann lætur eins og það sé hann sjálfur sem segir okkur sög­una af fátæka ítalska stráknum sem varð heims­meist­ari í hnefa­leikum. Það er vandi að leika sjálfan sig en Sveinn Ólafur er eins og fiskur í vatni meðan hann spjallar við okkur og rifjar upp sög­una af Rocky Balboa.

Einhvers staðar á leið­inni sveigir sögu­mað­ur­inn út af sög­unni um Rocky kvik­mynd­anna þannig að hann verður meira póli­tískur aktífisti sem vill „bjarga heim­inum“ – raunar aðal­lega, að því er virð­ist, frá fólki eins og sögu­manni okkar sem er vel­mennt­aður, víð­sýnn maður með sér­stakan áhuga á heim­speki. Þá þró­ast sögu­mað­ur­inn líka á svið­inu, vex út úr afslöpp­uðum leik­ar­anum og verður ein­lægur bar­áttu­maður fyrir sínum lífs­skoð­unum. Og þá takast þeir á, Rocky og sögu­maður, með ófyr­ir­sjá­an­legum afleið­ingum.

Þetta er kol­svart verk en býsna brýnt nú um stundir þegar virð­ist stefna í end­ur­tekn­ingu á nýlið­inni sögu. Vignir Rafn hefur valið vel í hlut­verk sögu­manns­ins, enda hefur Sveinn Ólafur áður leikið stór hlut­verk undir stjórn Vignis með eft­ir­minni­legum árangri. Enóla Ríkey sér um svið og bún­inga og var hvort tveggja sér­lega vel hugsað – bún­ingur sögu­manns smart, sviðið blóð­hrátt en tók vel á móti öllum auka­hlutum og aðgerðum. Lýsingin var sömu­leiðis gróf og stuð­andi og flott.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina