Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Leikdómur: Mamma klikk – „Leikstjórinn Björk…þrautþjálfuð í að skemmta börnum og unglingum“

Leikdómur: Mamma klikk – „Leikstjórinn Björk…þrautþjálfuð í að skemmta börnum og unglingum“
||||||

Silja Aðal­steins­dóttir, íslensku- og bók­mennta­fræð­ingur, þýð­andi og rit­stjóri skrifar á heima­síðu Tímarits Máls og Menn­ingar leik­dóm um Mamma klikk sem frum­sýnt var í Gafl­ara­leik­hús­inu laug­ar­dag­inn 189 októ­ber.

Leik­stjóri og leik­gerð: Björk Jak­obs­dóttir
Saga: Gunnar Helgason
Leikari: Gríma Vals­dóttir, Val­gerður Guðna­dóttir, Gunnar Helgason, Felix Bergsson, Þórunn Lár­us­dóttir, Ásgrímur Gunn­ars­son, Agla Bríet Ein­ars­dóttir, Vera Stef­ans­dóttir, Thea Snæ­fríður Krist­jáns­dóttir, Auðunn Sölvi Hugason, Matthías Davíð Matth­í­as­son
Leikmynd: Stígur Stein­þórs­son
Lýsing: Freyr Vil­hjálms­son
Hljóð: Hallur Ing­ólfs­son

Mamma klikk eftir Gunnar Helgason er meðal vin­sæl­ustu íslensku barna­bóka þess­arar aldar en það lá alls ekki á borð­inu að hægt væri að færa hana á svið með góðu móti. Eins og allir sem hafa lesið hana vita geymir hún óhemju stórt leynd­ar­mál sem við komumst ekki að fyrr en í lokin – og verðum þá yfir okkur hissa. Þetta stóra leynd­ar­mál kemst upp fyrr í sýn­ing­unni sem var frum­sýnd í Gafl­ara­leik­hús­inu í gær­dag, það er óhjá­kvæmi­legt, en hér á að reyna að skrifa um verkið án þess að segja frá því.

Stella (Gríma Vals­dóttir) er ösku-bál­reið út í Katrínu mömmu sína (Val­gerður Guðna­dóttir) sem henni finnst vera alger klikk­haus. Ástæðan er sú að mamma sagði á sinn opin­skáa og frjáls­lega hátt yfir heila ferm­ing­ar­veislu að Stella væri „byrjuð á blæð­ingum“. Svona fram­koma er auð­vitað ófyr­ir­gef­an­leg og mikið vildi Stella að mamma hennar væri bara venju­leg. Þar að auki er mamma óperu­söng­kona sem tekur lagið í tíma og þó einkum ótíma og allir vita hvað það er óþol­andi þegar for­eldrar manns láta svona á sér bera. Mamma reynir að hugga Stellu með því að bjóða henni í Kringl­una til að kaupa handa henni föt fyrir þrettán ára afmælið en Stella vill frekar fara með vin­konum sínum. Þær reyn­ast allar vera upp­teknar. Fatíma (Agla Bríet Ein­ars­dóttir) er að fara í mosku með mömmu sinni, Júdíta (Vera Stef­áns­dóttir) í ferm­ing­ar­veislu, Guðbjörg (Thea Snæ­fríður Krist­jáns­dóttir) á leið í sum­ar­bú­stað með pabba og mömmu. Stella fellst þá á að fara með mömmu en vill frekar fara í Smára­lind. Þar hittir hún allar þrjár vin­kon­urnar sem hafa bara skrökvað að henni, vænt­an­lega til að losna við að hafa hana með. Þetta eru kunn­ug­legar aðstæður í augum flestra ung­linga en ekki minna sárar fyrir það.

Stellu finnst hún heillum horfin. Vin­kon­urnar í ónáð og fjöl­skyldan óþol­andi. Þar eru auk mömmu pabbi (Gunnar Helgason) sem er atkvæða­lít­ill, stóri bróðir Palli (Ásgrímur Gunn­ars­son) sem vill helst vera ber að ofan og litli bróðir Siggi sítróna (Auðunn Sölvi Hugason) sem er alltaf óhreinn og getur ekki sagt err. Föð­ur­amman (Þórunn Lár­us­dóttir) er ótta­legt snobb og eitt áhrifa­mesta atriði sýn­ing­ar­innar eru átök þeirra tengda­mæðgna þegar mamma tekur ömmu snobb ræki­lega í gegn. Sérlega leið­in­legur er líka grann­inn Hanni (Felix Bergsson) sem þolir ekki neinar fram­kvæmdir við húsið. Þar mætir hann ofjarli sínum í mömmu klikk því hún er stað­ráðin í að gera lífið skemmti­legra fyrir börnin sín og vílar þá ekki fyrir sér að búa til renni­braut niður úr trénu í garð­inum með eigin óperu­dívu­höndum!

Leikgerð Bjarkar Jak­obs­dóttur er við­burða­rík og leik­ur­inn berst víða. Við förum í ferm­ing­ar­veisl­una til Ragnars frænda (Matthías Davíð Matth­í­as­son), í skól­anum hittum við tauga­veikl­aða kennar­ann hennar Stellu (Þórunn Lár­us­dóttir) og fáum tauga­á­fall með henni. Við verslum með Stellu og mömmu og lendum í úti­stöðum við búð­ar­mann (Ásgrímur) en það frá­bærasta er að við fáum að fara í óper­una með Stellu, vinum hennar og ætt­ingjum af því að Katrín fær að leysa af sem tit­il­söng­kona í óper­unni Carmen!  Það var óvænt skemmtun að fá grín­út­gáfu af því dýr­lega stykki og njóta söng­listar Val­gerðar Guðna­dóttur um leið. En þó að asinn sé mik­ill og fjörið gleym­ist ekki að verkið hefur mjög ákveð­inn boð­skap: End­an­lega er eng­inn „venju­legur“, við erum öll „eins og allir aðrir – en spes“ eins og Stella syngur svo fal­lega.

Leik­ur­inn er í traustum höndum. Gríma Vals­dóttir hefur oft sýnt ein­staka næmi í túlkun á flóknum per­sónum og gerir Stellu alger­lega að sinni. Gam­al­reyndir fag­menn eins og Gunnar og Felix, Val­gerður og Þórunn fara létt með sín hlut­verk. Ásgrímur kemur sterkur inn í hlut­verki Palla, frumraun sinni sem atvinnu­leik­ari. Ung­ling­arnir Matthías Davíð, Agla Bríet, Vera og Thea Snæ­fríður skipta um gervi og fas eins og þraut­þjálfaðir fag­menn – og sér­stak­lega fannst mér gaman að sjá í Theu svip­inn af langömmu hennar og afa­systur og fleiri fögrum konum úr þeirri ætt. Aðal­senu­þjóf­uð­inn vað þó Auðunn Sölvi, geð­sam­lega óboð­g­an­leguð í hlut­verki Sigga sítð­ónu!

Það er gríð­ar­lega mik­ill erill á svið­inu og hávað­inn er tals­verður enda allt magnað (nema kannski Val­gerður?).  Inn á milli koma þó kær­komin rólegri atriði, einum þau sem ger­ast á heim­ili Stellu. Tónlist Halls Ing­ólfs­sonar er skemmti­leg og textar þeirra Halls, Þor­steins Valdi­mars­sonar og Hjör­leifs Hjart­ar­sonar afbragðs­góðir. Stígur Stein­þórs­son gerir geysi­breiðan og lit­ríkan bak­vegg sem opn­ast óvænt bæði út í garð, þar sem stórt og mynd­ar­legt tré breiðir úr sér, og inn í drasl­ara­legan bíl­skúr. Það var sjón að sjá. Búningar Bjarkar Jak­obs­dóttur eru við hæfi, ekki síst dívu­bún­ingar mömmu klikk, og lýs­ing Freys Vil­hjálms­sonar heldur þokka­lega vel í við hama­gang­inn. Utan um þetta allt heldur svo leik­stjór­inn, Björk, sínum styrku höndum, þraut­þjálfuð í að skemmta börnum og ung­lingum. Þau hund­ruð eða þús­undir barna og ung­menna sem munu sjá þessa sýn­ingu á næstu mán­uðum geta hlakkað til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina