Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Gríðarleg áhrif Game of Thrones

Höfundar, útgef­endur og annað bók­mennta­fólk munu hitt­ast og ræða íslenskar furðu­sögur á mál­þingi sem verður haldið í Norræna hús­inu á sunnu­dag klukkan 14 undir yfir­skrift­inni Æsingur – Furðu­sagna­há­tíð. En hvað eru furðu­sögur? Mannlíf náði tali af Bryn­hildi Heiðar- og Ómars­dóttir sem stýrir pall­borðsum­ræðum og grennsl­að­ist fyrir um það.

Gríðarleg áhrif Game of Thrones
Bryn­hildur Heiðar- og Ómars­dóttir hefur í nógu að snú­ast um helg­ina því auk þess að stýra pall­borðsum­ræðum kemur hún að skipu­lagi Kynja­þings

„Furðu­sögur er í stuttu máli sam­heiti yfir fantasíur, hroll­vekjur og vís­inda­skáld­sögur, eða með öðrum orðum skáld­skápur sem tekur á furðu­legum hlutum í okkar heimi og reynir að ímynda sér fram­tíð­ina eða alls konar hlið­ar­víddir,“ útskýrir Bryn­hildur og bætir við að á mál­þing­inu verði einmitt farið nánar út í þetta og jafn­framt skoðað hvaða stöðu furðu­sögur hafi í íslenskri sagna­menn­ingu og hvert þær stefni.

Að hennar sögn er þetta í fyrsta sinn sem Æsingur fer fram en um er að ræða afsprengi hinnar alþjóð­legu hátíðar Ice-Con sem hefur verið haldin tví­vegis í Reykja­vík við góðar und­ir­tektir, fyrst árið 2016 og svo 2018. „Ice-Con var vel tekið og það benti til þess að það væri vett­vangur til að ræða furðu­sögur á íslensku. Til að tryggja fram­gang furðu­sög­unnar er nefni­lega mik­il­vægt að höf­undar og les­endur fái tæki­færi til að spjalla saman um furðu­sögur og kynn­ist nýjum straumum og stefnum og að les­endur geti kynnst höf­undum sem eru að spreyta sig á þess­ari stór­skemmti­legu teg­und bók­mennta,“ segir hún en á meðal höf­unda sem taka þátt í pall­borðsum­ræðum má nefna Hildi Knúts­dóttur, Alex­ander Dan og Ármann Jak­obs­son.

Hið yfirnáttúrulega aftur vinsælt

Furðu­sögur, hroll­vekjur, fantasíur og vís­inda­skáld­sögur eru vin­sælt les­efni úti í heimi, en Bryn­hildur segir að í raun sé skrítið hvað þeim hafi gengið illa að ná fót­festu á Íslandi. „Eins og við vitum hafa þannig sögur verið vin­sælar erlendis um langt skeið en það er eins og íslenskir les­endur, og þá er ég að ekki að tala um börn heldur full­orðna, hafi hingað til ekki verið mót­tæki­legir fyrir þeim. Það er bara á síð­ustu árum í kjöl­far gríð­ar­legra áhrifa Game of Thrones sem full­orðna fólkið virð­ist vera orðið opn­ara. Hér áður fyrr lifðu furðu­sögur nefni­lega góðu lífi á Íslandi, eins og sést á Íslend­inga­sög­unum og þjóð­sögum, þar sem nornir og draugar ganga ljósum logum, en það er eins og ekki hafi verið pláss fyrir hið yfir­nátt­úru­lega í íslenskum bók­menntum á 20. öld­inni þegar raun­sæið réði ríkjum. Nú virð­ist furðan vera að ryðja sér til rúms aftur.“

„Eins og við vitum hafa þannig sögur verið vin­sælar erlendis um langt skeið en það er eins og íslenskir les­endur … hafi hingað til ekki verið mót­tæki­legir fyrir þeim.“

Bryn­hildur er auð­heyri­lega ánægð með þá þróun enda seg­ist hún sjálf vera mik­ill aðdá­andi slíkra sagna og hafi verið það um langt skeið. „Ég get víst ekki neitað því,“ segir hún og hlær. „Ég hef mjög gaman af þess­ari bók­mennta­grein og var ein þeirra sem tók þátt í að skipu­leggja síð­ustu tvær Ice-Con hátíðir.“ Í ár seg­ist hún þó ekki koma nálægt skipu­lag­inu, heldur ætli hún að láta sér nægja að stýra pall­borðsum­ræð­unum.

„Og talandi um það, þá er kannski rétt að taka fram að það verða tvö pall­borð á mál­þing­inu þar sem farið verður inn á fyrr­nefnd atriði, furðu­sög­una sem bók­mennta­grein, stöðu slíkra sagna í íslenskri sagna­menn­ingu og hvert þær stefna,“ segir hún. „Svo lesa höf­undar upp úr verkum sem eru ann­að­hvort í vinnslu eða eru vænt­an­leg um jólin. Og við endum þetta svo á hressu pubkvissi í Stúd­enta­kjall­ar­anum um kvöldið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina